Víkurfréttir - 14.07.2021, Síða 8
Hjónin Lovísa Falsdóttir og
Gunnar Þorsteinsson létu
slag standa og fluttu til Man-
hattan í New York-fylki í
Bandaríkjunum í byrjun árs
með börnin sín tvö. Ástæðan
að baki flutninganna var fram-
haldsnám Gunnars en hann
stundar nú nám í orkuverk-
fræði við Columbia-háskólann.
Heimsfaraldurinn setti strik í
reikninginn hjá fjölskyldunni
sem flutti út hálfu ári síðar en
til stóð í upphafi. Þetta hálfa
ár hefur, að sögn Lovísu, verið
mjög krefjandi en fjölskyldan
reynir að leggja áherslu á það
að njóta hvers dags.
Landið lokað fyrir
ferðamenn
„Við vissum að þetta yrði krefjandi
en höfðum ekki alveg búið okkur
undir heimsfaraldur ofan á allt
saman. Við erum svo heppin að eiga
svakalega gott bakland heima sem
við vissum að yrði duglegt að heim-
sækja okkur og því stíluðum við inn
á að vera bara einu stuttu flugi frá
Íslandi,“ segir Lovísa en Covid hafði
það í för með sér að Bandaríkjamenn
lokuðu landamærunum og ferða-
mönnum þar af leiðandi ekki hleypt
inn. Fjölskylda þeirra hefur því ekki
enn geta heimsótt New York.
„Flóki, eldri strákurinn okkar, var
rétt rúmlega tveggja ára og Marel
fimm vikna þegar við lögðum í
hann í janúar. Það hefur verið mjög
krefjandi að flytja á milli heimsálfa
með tvö lítil börn á tímum heims-
faraldurs,“ bætir hún við.
Fjögurra daga
gömul fyrirsæta
Flutningarnir gengu þó ekki snurðu-
laust fyrir sig þar sem erfitt reyndist
að sækja um landvistarleyfi fyrir þá
ófæddan Marel. „Ekki nóg með það
að hann fæddist stuttu fyrir brottför
heldur fæddist hann einnig rétt eftir
kosningar í Bandaríkjunum og rétt
fyrir jól. Tímasetningin var því ein-
staklega óheppileg. Þar að auki var
bandaríska sendiráðið að flytja á
milli húsnæða og enginn laus tími
í visa-viðtal fyrir hann fyrr en eftir
áætlaða brottför.“ Öll fjölskyldan var
því með landvistarleyfi nema nokk-
urra vikna gamli Marel sem fékk þó
leyfið að lokum og fína passamynd
af sér fjögurra daga gamall.
Íslenska símanúmerið
til vandræða
Á leiðinni til Bandaríkjanna þurfti
fjölskyldan að millilenda í Boston
en mætti svo í sóttkví í tóma, ískalda
íbúð í Manhattan. Að sögn Lovísu
gekk á ýmsu fyrstu dagana. „Eins
og sannir Skandinavar keyptum við
húsgögn, rúmin og allt það helsta í
eldhúsið frá IKEA og skipulögðum
það þannig að sendingin kæmi sama
dag og við lentum í New York. Skipu-
lagið reyndist of gott til að vera satt
og sendingin kom ekki við hjá okkur
vegna þess að sendlarnir náðu ekki
í okkur í íslenska símanúmerið. Við
enduðum á því að sofa nokkrar
nætur þrjú saman á lítilli vindsæng
með Marel í vagninum.“
Í dag reynir fjölskyldan að halda
rútínu, þ.e. eins mikilli og hægt er
með tvö ung börn og „vansvefta for-
eldra“. „Vegna þess að við seinkuðum
flutningunum þá náði Flóki fjórum
mánuðum á Garðaseli síðasta haust
og var bæði í boltaskólanum hjá
Agga og Svövu og í fimleikatímum.
Það voru því mikil viðbrigði fyrir
hann að vera aftur með mömmu
sinni allan daginn eins og hann var
áður en hann byrjaði á leikskólanum
og nú á nýjum stað með nýjan lítinn
bróður áfastan mömmu sinni.“
Nutu mannlauss
Times Square
Mikið er um að vera í borginni í
venjulegu árferði en raunveruleikinn
hefur verið annar síðustu misseri. „Í
jákvæðniskasti, þegar ákvörðunin
um að flytja var tekin, hugsaði ég að
það væri skemmtilegt í sögulegum
skilningi að upplifa borgina svona
tóma, geta farið með strákana á staði
sem við hefðum annars ekki treyst
okkur á vegna mannmergðar. Við
gátum til dæmis farið með strákana
á Times Square þar sem varla var
sála. Flóki fékk meira að segja að
losna úr kerrunni svo hann hljóp þar
um og dáðist að öllum ljósunum – en
eins er mjög skemmtilegt að upplifa
borgina lifna við að nýju núna.“
Sólborg Guðbrandsdóttir
vf@vf.is
Fluttu til Manhattan
í miðjum heimsfaraldri
8 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár