Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.07.2021, Page 10

Víkurfréttir - 14.07.2021, Page 10
SjálFbÆr FraMtíð iSavia Á síðustu árum hafa verið innleiddar ýmsar aðgerðir á Keflavíkurflugvelli í átt að sjálfbærri þróun til fram- tíðar. Lífrænum úrgangi er safnað og átak gert til að minnka matarsóun. Búnaður úr flugstöðinni er endur- nýttur. Kolefnisspor Isavia hefur minnkað um 34% frá árinu 2015. „Það getur verið áskorun að uppfylla þessi metnaðarfullu markmið. Það er ljóst að markmiðunum verður ekki náð án víðtækrar þátttöku samfélagsins. Við berum ábyrgðina saman,“ segir Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Isavia. Isavia leggur mikla áherslu á víð- tækt samráð við alla þá sem treysta á þjónustu fyrirtækisins eða verða fyrir áhrifum af starfsemi þess. Ein leiðin til að efla þá samvinnu er Suðurnesjavettvangurinn. Það er sameiginlegur stefnumótunar- og samráðsvettvangur með sveitar- félögunum Grindavík, Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum ásamt Kadeco og Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Í því samstarfi er byggt á Heimsmarkmiðum Sam- einuðu þjóðanna og unnið að sam- eiginlegum hagsmunum Suðurnesja. Á síðasta fundi samráðsvett- vangsins, sem haldinn var í Reykja- nesbæ í júní, var undirrituð viljayfir- lýsing um hringrásargarð á Suður- nesjum og kynntar niðurstöður tveggja ára vinnu Suðurnesjavett- vangsins um hvernig hægt er að efla atvinnulífið og styrkja innviði Suður- nesja í átt að sjálfbærri framtíð. Hjá Isavia er unnið í samræmi við Heimsmarkmið SÞ í átt að sjálf- bærri framtíð. Innan Suðurnesja- vettvangsins hefur félagið miðlað af reynslu sinni í því starfi. Hrönn segir Suðurnesjavett- vanginn verkefni sem sé sprottið upp í þessum anda. Við ræddum við Hrönn um verkefni Isavia á Kefla- víkurflugvelli. Kolefnisleysi á Keflavíkurflugvelli Hrönn segir að unnið hafi verið markvisst að því að minnka kolefnis- losun á Keflavíkurflugvelli síðan árið 2015 í gegnum kolefnisvottun flug- valla sem ACI, alþjóðasamtök flug- valla, standa fyrir. Það þýðir að fé- lagið hafi kortlagt kolefnisspor sitt, gripið til aðgerða til að minnka losun og sett markmið í þeim efnum. „Við höfum náð þeim árangri að minnka kolefnisspor Isavia um 34% frá árinu 2015,“ segir Hrönn. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, skrifaði undir yfirlýsingu hjá ACI Europe fyrir tveimur árum, ásamt forstjórum fjölda annarra flug- valla í Evrópu, um að vinna mark- visst að kolefnisleysi fyrir starfsemi Isavia á Keflavíkurflugvelli með það að markmiði að eigin starfsemi flug- vallarins verði orðin kolefnislaus árið 2050. Hlutirnir gerast hins vegar hratt hjá evrópskum flugvöllum og metn- aður hefur aukist. „Hinir flugvell- irnir á Norðurlöndunum hafa spýtt í lófana og ætla að vera komnir á þennan stað árið 2030,“ segir Hrönn. „Við höfum líka fært okkur nær í tíma og gefið út að ætla að verða kolefnislaus 2040 í samræmi við markmið Íslands og erum um þessar mundir að láta vinna ítarlega grein- ingu til að meta hvort við getum náð því árið 2030 eins og frændur okkar á Norðurlöndunum en það er ljóst að til þess að það náist þurfa að koma til töluverðar fjárfestingar.“ Útskipti á orkugjöfum Eldsneytisnotkun er sá þáttur sem hefur mest áhrif á kolefnisspor flug- vallarins. Langstærsti hluti elds- neytisnotkunar er vegna þjónustu og viðhalds á brautum og athafna- svæðum flugvallarins. Hrönn segir að þessa notkun hafi félagið kolefnis- jafnað síðastliðin þrjú ár en árangur náist frekar í minnkun kolefnisspors með endurnýjun bíla- og tækjaflota, skynsamlegri nýtingu auðlinda og innleiðingu vistvænna orkugjafa. Gildandi aðgerðaáætlun félagsins í umhverfismálum gerir ráð fyrir því að keyptir verði rafmagns-, hy- brid- eða metanbílar þar sem slíkir valkostir eru í boði. Þegar kemur að eðlilegri endurnýjun á rútum, tækjum og búnaði eins og til dæmis sameykjum skuli velja vistvænustu lausnina sem uppfyllir þarfir fé- lagsins. Þá skal skoða möguleikann á breytingum á tækjum og búnaði til þess að hægt sé að nota aðra orku- gjafa eins og t.d. metan eða rafmagn. Einnig skal skoða möguleikana á því að nota íblöndun á lífdísil fyrir orku- frek tæki. „Á síðasta ári hófst einmitt prófun á íblöndun repjuolíu á tæki á Kefla- víkurflugvelli í samvinnu við Sam- göngustofu. Tilraunir ganga vel og repjuolían hefur gefið góða raun. Vonir standa til þess að hægt verði að auka íblöndun og útvíkka til- raunina til fleiri tækja,“ segir Hrönn. „Þá erum við einnig að taka þátt í samvinnuverkefni þar sem verið er að skoða möguleika á að nota vetni sem orkugjafa á varaaflsstöðvar okkar sem í dag nota olíu sem orku- gjafa. Við stefnum á að taka þátt í fleiri svona nýsköpunarverkefnum til að ná enn frekari árangri.“ Hringrásarhagkerfið Þegar kemur að umræðu um hring- rásarhagkerfið segir Hrönn að Isavia leggi áherslu á góða nýtingu auðlinda í starfsemi sinni. Græn skref Um- hverfisstofnunar hafi verið notuð til að innleiða sorpflokkun. „Endur- vinnsluhlutfall fyrir árið 2020 var rúmlega 40% sem var í samræmi við sett markmið – en við getum gert betur.“ Á síðustu árum hafa verið inn- leiddar ýmsar aðgerðir. Lífrænum úrgangi safnað og átak í að minnka matarsóun í mötuneyti. Búnaður er endurnýttur ef þörf er á varahlutum. Samvinna með hagaðilum Í vegferð að umhverfisvænum lausnum og hringrásarhagkerfi er samvinna lykillinn að árangri, segir Hrönn. „Við höfum í gegnum árin átt gott samstarf við rekstraraðila á Keflavíkurflugvelli í útfærslu ýmissa lausna. Það eru tækifæri til umhverf- isvænni lausna varðandi pakkningar á vörum sem seldar eru í flugstöð- inni og að vinna að því að draga enn frekar úr myndun umbúða utan um vörur, tæki og búnað sem kemur inn í flugstöð og á flugvallarsvæðið. Með því að vinna saman og deila þekk- ingu náum við árangri.“ Hrönn segir mikilvægt að halda samstarfi Suðurnesjavettvangsins áfram. Mikilvægt sé að deila reynslu og vinna saman að sameiginlegum hagsmunamálum. Samstarf um notkun repjuolíu á vinnuvélar á Keflavíkurflugvelli Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia ohf., og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu, undirrituðu viljayfirlýsingu í september 2020 um samstarf vegna tilraunaverkefnis um íblöndun repjuolíu á stórvirk tæki á Keflavíkurflugvelli. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, óskaði aðilum verkefnisins til hamingju með þetta vistvæna skref. „Ræktun repju og nýting afurða hennar hefur marga góða kosti, bæði fyrir landbúnað og sem umhverfisvænn orkugjafi. Í dag er stigið mikilvægt skref á þeirri vegferð sem vonandi er rétt að byrja,“ sagði ráðherra við það tilefni. Hjá Isavia er unnið í sam­ ræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna í átt að sjálfbærri fram­ tíð. Innan Suðurnesja­ vettvangsins hefur félagið miðlað af reynslu sinni í því starfi ... Gildandi aðgerðaáætlun félagsins í umhverfis­ málum gerir ráð fyrir því að keyptir verði raf­ magns­, hybrid­ eða metanbílar þar sem slíkir valkostir eru í boði ... Á fundi samráðsvettvangsins sem haldinn var í júní. 10 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.