Víkurfréttir - 14.07.2021, Side 14
Lífið er rétt að byrja eftir fimmtugt
Elsa Pálsdóttir, 61 árs kraftlyftingakona úr
Garðinum, varð Evrópumeistari og setti auk
þess fimm heimsmet og fimm Evrópumet á
Evrópumóti öldunga í kraftlyftingum sem fór
fram í Pilzen í Tékklandi um helgina. Elsa
keppir í -76 kg þyngdarflokki í aldurshópnum
60–69 ára og varð að auki stigahæsti öldung-
urinn í sínum flokki þvert á þyngdarflokka.
Árangur Elsu er einstakur og eftirtekta-
verður en hún hefur ekki æft klassískar kraft-
lyftingar nema í rétt rúmlega tvö ár og keppti
fyrst í greininni haustið 2019.
Elsa lyfti fyrst 117,5 kg í hnébeygju sem er
nýtt heimsmet. Þá tvíbætti hún metið með
því að lyfta næst 125 kg og svo 130 kg, fjórtán
kílóa bæting á fyrra heimsmeti. Hún lyfti 52,5
kg og 60 kg í bekkpressu og í réttstöðulyftu
lyfti Elsa 140 kg og 157,5 kg sem er einnig
nýtt heimsmet. Með árangri sínum bætti Elsa
einnig heimsmetið í samanlögðum árangri
um 12,5 kg en hún lyfti samtals 347,5 kg á
mótinu.
Fann sína styrkleika
fyrir tveimur árum
Víkurfréttir slógu á þráðinn til Elsu þar sem
hún var stödd í Tékklandi og óskuðu henni til
hamingju með þennan einstaka árangur.
„Já, takk fyrir það. Þetta var svolítið flott hjá
manni.“
– Hvernig stendur á því að kona á gamals
aldri byrjar að stunda kraftlyftingar?
Elsa hlær og segir: „Heyrðu, stórt er spurt.
Málið er það að ég hef alltaf verið rosalega
dugleg í líkamsrækt en eftir fimmtugt fór ég
að keppa í þrekmótum með liði sem kallast
Fimm fræknar. Svo er það ekki fyrr en fyrir
svona tveimur, þremur árum að ég uppgötva
í hverju væri keppt í kraftlyftingum, ég hafði
aldrei spáð í kraftlyftingar. Þegar ég áttaði mig
á því í hverju væri keppt þá reyndust það bara
vera styrkleikarnir mínir – og þar sem ég er
komin af léttasta skeiði, eins og þú segir, þá
ákvað ég að gefa þessu tækifæri og einbeita
mér að kraftlyftingum.“
Fyrsta mótið sem Elsa tók þátt í var lítið
kraftlyftingamót í tengslum við Sólseturs-
hátíðina í Garðinum. „Það var í fyrsta skipti
sem ég keppti í kraftlyftingum og vissi ekkert
út á hvað þetta gekk – en þarna sá ég að ég ætti
alveg heima í þessu og ákvörðunin var eigin-
lega tekin. Síðan þá er ég búin að æfa kraft-
lyftinga almennilega.“
Elsa hefur alltaf æft í Lífsstíl og hún æfir
kraftlyftingarnar þar en hún keppir fyrir hönd
Massa.
„Ég var í fótbolta fram yfir tvítugt en síðan
þá hef ég bara verið í fjölbreyttri líkamsrækt og
lifað heilbrigðu líferni. Í janúar 2011 ákváðum
við svo nokkrar svona stútungskonur að prófa
að setja saman lið og taka þátt í móti sem var
haldið í Keflavík. Það var bara gaman. Þá hafa
þær í Fimm fræknar sennileg séð að maður
gæti eitthvað í þessu því þær pikkuðu í mig
og síðan þá hef ég verið að æfa mjög stíft með
þeim, allt að sex sinnum í viku.“
– Eftir að þú fórst að æfa svona markvisst,
hefurðu þá tekið stórstígum framförum?
„Já, eiginlega bara ótrúlegum. Þótt maður sé
orðinn fullorðinn er maður að sjá stöðugar
bætingar. Ég hef sett ótalmörg Íslandsmet
og það er ein hérna úti með mér sem situr í
stjórn Kraftlyftingasambands Íslands. Hún
var að segja að ég ætti nú þegar fjörutíu Ís-
landsmet, það hefur sennilega eitthvað bæst
í það með þessum árangri núna,“ segir Elsa
kát. „Þannig að þetta er orðið ágætt á þessum
tveimur árum.“
Á framtíðina fyrir sér
„Aldur er svo afstæður,“ segir Elsa, „og það
er svo merkilegt að heima er maður svolítið
gamall í þessu en hérna er bara fullt af fólki
sem er eldra en ég. Elsta konan sem keppti
hér er fædd ‘42 og ég held að elsti karlinn sé
fæddur ‘36. Þannig að maður á framtíðina fyrir
sér í þessu. Lífið er rétt að byrja eftir fimm-
tugt.“
Elsa á tvö börn, dóttir hennar keppti í sundi
og sonur hennar var í körfubolta. Elsa hlær
þegar hún segist eiga tvö börn sem séu orðin
svolítið fullorðin: „Ég á einmitt eftir að segja
syni mínum það að á næsta ári getum við farið
saman á öldungamót, hann í Master einum og
ég í Master þremur, því hann dettur inn í M1
þegar hann verður fertugur á næsta ári.“
„Ég hafði aldrei verið að spá í einhver heims-
eða Evrópumet. Ég vissi svo sem um Íslands-
metin en svo hafði KRAFT samband við Ellert,
sem er formaður Massa, og spurði hvort ég
ætlaði að fara á þetta Evrópumót.
Mér brá eiginlega og þurfti að taka mér smá
umhugsun því ég hafði ekkert hugsað mér að
fara að keppa erlendis. Svo gat ég ekki slegið
hendinni á móti þessu og sló til. Þá hafði ég
ekki hugmynd um einhver met – en svo sendi
hún, sem er með mér hérna úti, mér lista yfir
heimsmetin og þá sá ég að ég ætti nú bara góða
möguleika. Auðvitað veit maður aldrei hvernig
gengur þegar maður fer svona í fyrsta sinn á
stóra sviðið – en það small í þetta sinn.“
Elsa segir að hún hafi verið búin að taka
lyftur sem voru yfir heimsmetum, hún hafi
gert það á Íslandsmótinu sem var haldið í
júní. Þær lyftur voru hins vegar ekki teknar
gildar þar sem engir alþjóðlegir dómarar voru
á mótinu. „Þannig að ég þurfti að fara á svona
alþjóðlegt mót til að fá þessar þyngdir gildar.“
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Sumar-magasín
FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS
... er sumarútgáfan af
Suðurnesjamagasíni VF
þar sem við sýnum brot af
því besta sem við höfum
framleitt á síðustu mánuðum.
Elsa Pálsdóttir
er Suðurnesja-
kona sem sannar-
lega hefur krafta
í kögglunum.
Elsa gerði sér lítið fyrir og
varð Evrópumeistari í klass-
ískum kraftlyftingum um
helgina, auk þess setti hún
fimm heims- og Evrópumet
á Evrópumóti öldunga sem
fór fram í Tékklandi.
Elsa æfir stíft með Fimm fræknum og æfa
þær allt að sex sinnum í viku.
Mynd af Facebook-síðu Elsu
Þótt maður sé orð
inn fullorðinn er
maður að sjá stöð
ugar bætingar.
Ég hef sett ótal
mörg Íslandsmet ...
Elsa að lyfta 157,5 kg og bæta heimsmetið í réttstöðulyftu.
Skjáskot af YouTube-síðu Czech Powerlifting
Miðvikudagur 14. júlí 2021 // 27. tbl. // 42. árg.sport
Stöðugar uppfærslur og úrslit leikja á vf.is