Víkurfréttir - 08.12.2021, Blaðsíða 10
Arnar Gauti Sverrisson er uppalinn í Keflavík en flutti ungur til Reykjavíkur þar sem hann hefur lifað
og starfað í tísku- og hönnunarheiminum í rúm 30 ár. Hann hefur komið víða við og skilið eftir sig
vandað handbragð, m.a. á hans gömlu heimaslóðum, á Suðurnesjum.
Verkefni á Suðurnesjum
„Það sem hefur staðið upp úr hjá
mér með verkefni í Reykjanesbæ
er tvímælalaust Library bistro í
Radisson-hótelinu. Það var gaman að
koma til baka og gera þetta verkefni.
Bergþóra og Bjarni gáfu mér frjálsar
hendur við hönnunin og met ég það
mikils. Með þeim hætti nær líka sýn
mín sem hönnuður alla leið,“ segir
Arnar Gauti.
„Núna er ég að byggja í Vogunum
fjölbýlishús í samstarfi við tvo aðra
aðila í gegnum fyrirtæki sem heitir
Smartbyggð. Við erum að reisa tíu
íbúða fjölbýlishús og þetta er hönn-
unarsamstarfs Kristins Ragnars-
sonar arkitekts og
síðan vörumerkis
míns, „Sir Arnar
Gauti“. Pælingin með
þetta hús og íbúðir er
að upplifunin verði
svolítið öðruvísi en
gengur og gerist. Við
komum til með að
skila af okkur full-
hönnuðum íbúðum
sem m.a. verða með
fullkomnu loftræsti-
kerfi, liti frá minni
eigin málingarlínu
frá Húsasmiðjunni
og síðan hönnun og
innréttingum í sam-
ræmi við þann stíl
sem ég hef tileinkað mér í gegnum
tíðina.“ Fyrsta afhending íbúða
verður síðan í febrúar á næsta ári.
„Síðan er aldrei að vita hvað þetta
verkefni tekur mig lengra“ segir
Arnar Gauti og kímir.
Sjónvarpsferillinn
Arnar Gauti er með lífstílþáttinn
„Sir Arnar Gauti“ á Hringbraut
og hefur hann náð að festa sig
vel í sessi með um 40 þúsund
áhorf hver þáttur. „Ég byrjaði með
þennan þátt fyrir rúmu ári síðan og
fjórða serían fer í loftið á nýja ári.“
Þetta eru ekki fyrstu skref
Arnars Gauta á sjónvarpsskjánum,
hann tók við sjónvarpsþáttum
„Innlit – útlit“ sem var sýndur á
Skjá 1 á sínum tíma af Völu Matt
ásamt þeim Þórunni Högnadóttur
og Nadiu Banine og voru þau með
einn vinsælasta sjónvarpsþáttinn
á þeim tíma í þrjú ár. Þetta var
magnaður tími og skemmtilegt
verkefni, alltaf mikið líf og fjör í
kringum þáttinn.
Það er gaman að fá að hitta og
kynnast ólíku og hæfileikaríku fólki
sem er að gera ótrúlega hluti og
fá að fjalla um það í sjónvarpinu,
hvort sem það eru listamenn,
kokkar eða hvað það er. Þetta er
skemmtilegasti hlutinn við sjón-
varpið, þessi persónulegu tengsl og
fá að skyggnast inn í líf þessa fólks.“
Áhugi á tísku verður að starfi
„Ég á móður minni mikið að
þakka að hafa haft tækifæri á því
að komast á þennan stað sem ég
er á núna. Ég hafði alltaf áhuga á
tísku og þegar ég var um sautján
ára gamall þá tók ég rútuna til
Reykjavíkur þar sem ég vann í
tískufataverslun og móðir mín sótti
mig síðan um kvöldið á hverjum
virkum degi.“
Síðar flutti Arnar Gauti til
Reykjavíkur þar sem hann hefur
búið og starfað síðan, í um 30 ár í
hinum ýmsu tískufataverslunum.
Hann færði sig síðan til og fór að
vinna í húsgagnaversluninni EXÓ
þar sem hann kynntist ýmsum
efnum, húsgögnum og hönnun sem
varð til þess að áhugi kviknaði á
innanhúshönnun. „Ég bý að mikilli
reynslu úr tískuheiminum, hef
ferðast og séð mikið og er mjög
sjálfsöruggur í því sem ég tek mér
fyrir hendur og er ekki smeykur
við að fara mínar leiðir í hönnun.
Þetta hefur skilað mér ákveðnu
orðspori og vörumerkinu – Sir
Arnar Gauti.“
Sir Arnar Gauti verður til
Vörumerkið varð til þegar Arnar
Gauti sett af stað lífsstílstengda
heimasíðu og blogg um tísku og
hönnun. „Ég vildi að heimasíðan
hefði ákveðið kikk og þess vegna
varð til nafnið Sir Arnar Gauti.
Ástæðan fyrir nafninu er þessi
breska tenging sem er svo sterk
hjá mér í hönnun og tísku, t.d. Bur-
berry og Land Rover. Nafnið kemur
í raun frá vinum mínum sem höfðu
kallaði mig þetta í gríni.“
Þegar ég bað Arnar Gauta um
að rifja upp eftirminnileg atvik
á sínum langa ferli þá kom upp í
hugann hjá honum opnun tísku-
verslunar á Norðurlöndum en á
sínum tíma var hann fyrstur til
að flytja inn til Íslands tískuvörur
frá Burberry í London. „Það var
eftirminnilegt fyrir mig þegar ég
var beðinn um að opna fyrstu
flaggskipsbúðina hjá Burberry á
Norðurlöndum, þá rétt um 30 ára
gamall. Þetta var mikill heiður fyrir
litla strákinn úr Keflavík.“
Það er margt í farvatninu hjá
Arnari Gauta en auk fyrrgreindra
verkefna þá voru þau hjónin að
kaupa helmingshlut í tískuvöru-
versluninni Kroll í Kringlunni
þannig að Arnar og konan hans
Berglind eru komin aftur í tísku-
bransann.
Fyrst og fremst fjölskyldufaðir
„Fyrst og fremst er ég faðir, ég og
konan mín eignuðumst barn á síð-
asta ári og bæði áttum við tvö börn
fyrir þannig að ég er ríkur maður
og líf mitt snýst aðallega um þau.“
Arnar Gauti er mikið jólabarn
og finnst tíminn í desember og
fyrir jólin skemmtilegur og þá
helst í faðmi fjölskyldunnar. „Ég
held mikið upp á jólin, sérstak-
lega núna með stærri fjölskyldu.
Fyrir þar síðustu jól fórum við
úr bænum þegar Berglind, konan
mín, var ófrísk af Ivý, settum litla
jólatréð okkar og pakkana í bílinn
og keyrðum til Flúða þar sem við
áttum notalega jóla- og fjölskyldu-
stund í sumarbústað. Það var mikill
léttir að keyra úr bænum á Þorláks-
messu og eyða jólunum í fallegu
umhverfi Flúða þar sem allt var
þakið í snjó.“
Arnar Gauti
lifir og hrærist í tísku-
og hönnunarheimi
Jón Hilmarsson
ungo@simnet.is
Saman hugum við að heilsunni
Reykjanesapótek • Hólagötu 15 • 260 Reykjanesbæ
Sími 421-3393 • Vaktsími lyfjafræðings 821-1128
Opið frá kl. 9:00 til 20:00 virka daga og frá kl. 12:00 til 19:00 um helgar.
Reyklaus um jólin
af Nicorette í 8.–24. desember
20% afsláttur
10 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár
Arnar Gauti
og Berglind
kona hans.
Arnar Gauti hannaði Library
á Park Inn hótelinu.