Víkurfréttir - 08.12.2021, Blaðsíða 22
Umsóknarfrestur til
31. desember.
Fyrirtæki sem hafa
orðið fyrir tekjutapi
vegna Covid á tíma-
bilinu 1.- 30. nóv. 2021
geta átt rétt á styrk
óháð starfsgrein.
Við höfum aðstoðað
ótal fyrirtæki um allt
land og sótt styrki�
uppá�tugi milljóna.
Hafðu samband strax
í dag og kannaðu rétt
þinn.
VIÐSPYRNU
STYRKUR
S: 554 5414 | ferdavefir.is
upplysingar@ferdavefir.is
KOLBRÚN JÚLÍAEvrópumeistari í hópfimleikum
Keflvíkingurinn Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman vann það magnaða afrek
að verða Evrópumeistari með íslenska kvennalandsliðinu í hópfimleikum
um síðustu helgi. Eins og við var að búast var keppnin hörð en Ísland og
Svíþjóð voru jöfn að stigum að keppni lokinni, bæði lið hlutu 57.250 stig
en stórkostleg frammistaða íslenska liðsins á trampólíni auk þess að fá
hæstu einkunn mótsins í gólfæfingum, 22.300 stig, tryggði þeim Evrópu-
meistaratitilinn. Víkurfréttir heyrðu í Kolbrúnu sem var skiljanlega enn
í skýjunum eftir afrek helgarinnar.
„Þetta var alveg stórkostlegt,“ er
það fyrsta sem Kolbrún segir og
það dylst engum að hún er í sjöunda
himni. „Maður trúir þessu varla
ennþá en þetta er svo frábært lið,
frábærar stelpur, og við erum búnar
að vinna vel fyrir þessu.“
Kolbrún Júlía er 23 ára gömul og
býr á stúdentagörðunum í Reykjavík
en hún er á fullu í háskólanámi.
„Ég er nú alltaf með annan fótinn í
Keflavík, hjá mömmu. Svo er ég í Há-
skóla Íslands á þriðja ári í hagnýttri
stærðfræði og tölvunarfræði. Þar
sem ég hef þurft að einbeita mér að
Evrópumótinu hefur skólinn aðeins
setið á hakanum undanfarið. Ég helli
mér nú af fullum krafti í námið, þarf
að taka tvö sjúkrapróf í desember
en ég stefni á að klára bæði stærð-
fræðina og tölvunarfræðina á fjórum
árum.“
Þurfti að færa sig til
að verða betri
Eftir EM 2016 segir Kolbrún að hún
hafi verið komin það langt á veg að
hún var farin að skara fram úr öðrum
hjá Keflavík og hún þurfti á breyt-
ingu að halda.
„Ég þurfti að ákveða mig. Ég
var komin á ákveðna endastöð hjá
Keflavík, vinkonur mínar sem ég var
búin að æfa með allan þennan tíma
voru margar að hætta og ég fann að
til að verða betri þurfti ég að æfa
með stelpum sem væru betri en ég.
Ég var búin að vera að velta fyrir
mér að skipta yfir í Gerplu og svo
gerðist það að Gerpla kom í æfinga-
búðir í Keflavík og ég æfði með þeim.
Það varð til þess að ég tók ákvörðun
og skipti, þarna voru stelpur sem ég
leit á sem stórstjörnur og margar
þeirra eru í dag mínar bestu vin-
konur,“ segir Kolbrún sem hefur svo
sannarlega náð langt í sinni íþrótt.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fimleika
og eru það einu íþróttirnar sem þú
hefur stundað?
Kolbrún hlær. „Ég hef verið fjög-
urra eða fimm ára þegar ég byrjaði
í fimleikum, bara smá stelpa – en ég
var rosalega orkumikil sem barn og
það þurfti víst að hafa mig á fullu í
íþróttum, annars svaf ég bara ekki.
Ég var í sundi, fótbolta og svo lærði
ég líka á píanó.“
Hvað er svo framundan hjá þér?
„Eins og ég segi þá eru próf fram-
undan en svo byrja æfingar með fé-
lagsliðunum sennilega í næstu viku.
Það verður rosalega gaman að mæta
á æfingar og gera eitthvað nýtt því í
undirbúningi fyrir EM hefur maður
bara verið að æfa ákveðin stökk,
leggja áherslu á það sama aftur og
aftur – svo nú verður bara skemmti-
legt að fá að leika sér.
Svo hefst tímabilið hér heima
strax eftir áramót og það er verið að
fjölga mótunum, þau verða sennilega
fimm eða sex á tímabilinu janúar til
maí, endar á Íslandsmótinu í maí.“
Stutt í næsta Evrópumót
Covid-19 hefur sett mótahald úr
skorðum og Evrópumótið sem Kol-
brún og félagar hennar í íslenska
landsliðinu unnu um helgina er haldið
ári á eftir áætlun því EM er ávallt
haldið á ári sem endar á sléttri tölu.
„Næsta Evrópumót verður haldið
í september á næsta ári þannig að
ég býst við að undirbúningur fyrir
það hefjist strax,“ segir Kolbrún sem
hefur sett stefnuna þangað – hún
segist alveg geta hugsað sér annan
verðlaunapening eins og þann sem
hún vann núna um helgina.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Evrópumeistarar!
Kolbrún með
verðlaunin.
Kolbrún Júlía er alltaf með annan fótinn
í Keflavík en hún býr núna í Reykjavík
þar sem hún er á fullu í Háskóla Íslands
og æfir fimleika með Gerplu.
Myndir af Facebook-síðu Kolbrúnar
JÓLAGJÖFINA
FYRIR DÝRIN
FÆRÐU HJÁ OKKUR
KROSSMÓA - REYKJANESBÆ
Miðvikudagur 8. deseMber 2021 // 46. tbl. // 42. árg.sport
Stöðugar uppfærslur og úrslit leikja á vf.is