Víkurfréttir - 08.12.2021, Blaðsíða 17
„Ég bjóst alls ekki við því að fá til-
nefningu til neinna verðlauna þar
sem þetta er fyrsta bókin mín og
ég var bara nokkuð sátt með að ég
hafi náð að koma henni út, en þetta
er bara frábært og ótrúlega gaman
að fá þessa tilnefningu. Að vera
yngsti höfundur sem hefur verið
tilnefndur til verðlaunanna í flokki
fræðibóka og rita almenns efnis er
svo auðvitað bara stór plús,“ segir
Kristjana Vigdís Ingvadóttir en í
umsögn dómnefndarinnar sagði
m.a. að bókin væri „hressandi
lesning“- sem hún er mjög ánægð
með.
„Ég var að vonast til þess að
það myndu fleiri en sagnfræðingar
eða fræðimenn yfir höfuð vilja
lesa bókina þar sem þetta er efni
sem höfðar til margra, sérstaklega
þeirra sem hafa áhuga á íslenskri
tungu, fortíð hennar og framtíð.
Það að dómnefndin tali um hress-
andi lesningu kveikir því von hjá
mér um að bókin muni rata inn
á heimili breiðari hóps og fleiri
verði fróðari um Bjarna Jónsson
rektor og hugmyndir um afnám ís-
lenskunnar, áhrif Dana á Íslandi og
virðingu þeirra fyrir tungumálinu
og tungumálanotkun íslenskra
embættismanna, svo fátt eitt sé
nefnt.
Íslensku bókmenntaverðlaunin
verða afhent um mánaðarmótin
janúar og febrúar á komandi ári
af forseta Íslands, Guðna Th. Jó-
hannessyni - og ég bíð bara spennt
eftir því þó ég sé meira en sátt
með að fá bara tilnefninguna.
Hópur rithöfunda sem fékk tilnefningu Bókmenntaverðlauna 2021. Kristjana þriðja frá vinstri í neðri röð.
Umsögn dómnefndarinnar:
„Höfundur leitar svara við
nokkrum spurningum, m.a.
hversu víðtæk var notkun dönsk-
unnar á 18. og 19. öld á Íslandi,
hvar bar hana helst niður og hvers
vegna ekki var skipt yfir í dönsku
eins og rektor einn lagði til? Höf-
undur setur frumrannsókn sína
í samhengi við fyrri rannsóknir
fræðimanna á einstaklega skipu-
legan og ferskan hátt. Virðing
Dana fyrir menningararfi Ís-
lendinga kemur ef til vill einna
helst á óvart. Í lok bókar spyrðir
höfundur áhyggjum fyrri alda
varðandi íslenskt mál saman við
þær sem tilheyra deginum í dag.
Hressandi lesning.“
Tilnefnd til bókmenntaverð-
launa fyrir sína fyrstu bók
Öllu fjármagni til gestastofa
og sýninga verði ráðstafað til
uppbyggingar í Kvikunni
Bæjarráð Grindavíkur leggur mikla áherslu á að komið verði á fót sýningu og
fræðslusetri um náttúru og jarðfræði með áherslu á eldgosið í Fagradalsfjalli.
Mikill fjöldi ferðamanna hefur komið á gosstöðvarnar og gert er ráð fyrir að
svo verði áfram næstu árin jafnvel þótt eldvirkni verði ekki til staðar.
Á síðasta fundi bæjarráðs Grindavíkur kom fram að Grindavíkurbær leggur
fram aðstöðu í menningarhúsinu Kvikunni sem er sérstaklega hentugt og vel
staðsett húsnæði til þessarar starfsemi. Í ljósi aðstæðna og þess aðdráttarafls
sem gosstöðvarnar hafa fer bæjarráð Grindavíkur fram á að öllu því fjármagni
sem ætlað er til gestastofa og sýninga á vegum Reykjanes Geopark til ársloka
2022 verði ráðstafað til uppbyggingar í Kvikunni.
Kjúklingaskilti á hliðina í óveðrinu
Björgunarsveitir voru kallaðar út á sunnudag vegna óveðurs sem gekk
yfir landið. Foktjón varð víða og gámur tókst á loft í Grindavíkurhöfn.
Þá lagðist niður stórt auglýsingaskilti KFC í Reykjanesbæ.
AÐVENTURÁÐ
Apótekarinn Keflavík
Suðurgötu 2
S: 421 3200
Apótekarinn Fitjum
Fitjum 2
S: 534 3010
VIÐ BJÓÐUM YKKUR HJARTANLEGA
VELKOMIN Í DESEMBER
ÆJ, FÁÐU ÞÉR
NÚ EINN MOLA
OG LESTU GÓÐA BÓK!
- lægra verð
vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár // 17