Víkurfréttir - 08.12.2021, Blaðsíða 14
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu hjá
VSFK um kjör aðalstjórnar samkvæmt B-lið laga um stjórnar-
kjör og stjórn sjómannadeildar ásamt trúnaðarmanna-
ráði, stjórn sjúkrasjóðs, orlofsheimilasjóðs, fræðslusjóðs og
trúnaðarmannaráð.
Félagið leitar eftir félagsmönnum sem vilja taka þátt í starf-
semi félagsins og hvetjum áhugasama til að hafa samband.
Tillögum og ábendingum skal skilað á skrifstofu félagsins
í síðasta lagi þriðjudaginn 15. desember kl. 12.00.
Fylgt er reglugerð ASÍ þar að lútandi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins
Kjörstjórn VSFK og nágrennis.
Ríkisstjórnin styður við menntun og ný
námsúrræði með stofnun Menntanets Suður-
nesja sem Bjarklind Sigurðardóttir stýrir.
Samstarf við skólastofnanir á svæðinu.
Efla námsúrræði
fyrir íbúa og
atvinnuleitendur
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í september 2020 að stofna Menntanet
Suðurnesja í samstarfi við menntastofnanir á svæðinu til að efla námsúr-
ræði fyrir íbúa og atvinnuleitendur. Markmiðið er að auka samvinnu
menntastofnana, búa til menntaúrræði þvert á menntastofnanir með
áherslu á þarfir íbúa og hámarka nýtingu fjármuna, reynslu og þekkingar
sem fyrir er á svæðinu. Aðilar að Menntaneti Suðurnesja eru Fjölbrauta-
skóli Suðurnesja, Keilir; miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum og Fisktækniskóli Íslands. Verkefnastjóri
Menntanets Suðurnesja, Bjarklind Sigurðardóttir, hóf störf í mars á þessu
ári, hún er einnig stjórnarformaður Menntanetsins.
„Við í stjórn Menntanets Suðurnesja
hófum strax samtal um þau helstu
verkefni sem við vildum ráðast í og
sáum fyrir okkur að það væri gott að
styrkja og styðja við tvo viðkvæma
hópa á Suðurnesjum. Annars vegar
að fjármagna og halda námskeið
fyrir atvinnuleitendur og hins vegar
fjármagna og setja upp nám fyrir
unga útlendinga sem eiga erfitt með
að sækja hefðbundið nám. Stjórn-
endur og starfsmenn skóla hófu
þessa vegferð með því að hittast á
vinnufundi í byrjun október til að
greina þörfina hjá hópunum tveimur
og hugsanleg tækifæri til að aðstoða
þá. Leitast var við að finna svör við
ýmsum spurningum til að skrásetja
þekkingu á málefnunum sem svo
nýttist við áframhaldandi undir-
búning. Breiðari hópur fagaðila frá
skólum, sveitafélögum og öðrum
stofnunum funduðu og upplýstu
teymi um stöðu mála í þessum mála-
flokkum. Þannig náðum við að setja
saman öflugt teymi sem hefur góða
þekkingu og reynslu. Næstu skref
stjórnar voru að ráða fagaðila sem
verkefnastjóra til að stýra þessum
tveimur verkefnum innan skólanna,“
segir Bjarklind.
Námskeiðið Eflum
atvinnuleitendur
Í byrjun nóvember var verkefna-
stjóri ráðinn til að stýra og undirbúa
námskeiðið sem er fyrir atvinnuleit-
endur. Verkefnastjórinn er Jóhann
Birnir Guðmundsson, félagsfræð-
ingur. Hann er staðsettur hjá Mið-
stöð símenntunar á Suðurnesjum.
„Námskeiðið heitir Eflum atvinnu-
leitendur og byggir á þeirri hug-
myndafræði að einstaklingur sem
hefur trú á sjálfum sér sé virkari í
atvinnuleit og/eða sæki sér menntun
til að efla sig, hann er tilbúinn til að
takast á við nýjar áskoranir í lífinu.
Á námskeiðinu verður einstakl-
ingsmiðuð fræðsla tengd námi,
starfsmöguleikum og heilsu. Nem-
endur fá ráðgjöf sem styrkir einstakl-
inginn til að ná settum markmiðum
er tengist námi og atvinnu. Boðið
verður upp á sex mánaða dagskrá
þar sem farið verður m.a. í sjálfs-
styrkingu, heilsutengda fræðslu, fjár-
málafræðslu og starfstengda fræðslu
með möguleika á vinnuprófun, rétt-
indi og skyldur. Einnig verður í boði
uppbyggileg samskipti, núvitund og
jóga. Skólarnir bjóða nemendum upp
á örnámskeið sem tengist brautum
skólanna til að kynna fyrir þeim þá
menntun sem býðst á svæðinu og
nemendur fara einnig í vinnustaða-
heimsóknir.
Námskeiðið verður fyrir tvo hópa,
annars vegar fyrir íslenskumælandi
og hins vegar pólskumælandi. Gert
er ráð fyrir tólf nemendum í hvorum
hópi. Námskeiðið fyrir íslenskumæl-
andi hópinn byrjaði í lok nóvember.
Það er ennþá laus pláss í hópana en
er óðum að fyllast í hvorn hópinn
fyrir sig. Ég vil endilega koma því á
framfæri fyrir þá sem hafa áhuga að
hafa samband við Jóhann Birni hjá
MSS.“
Nám fyrir ungt fólk af
erlendum uppruna
Í lok nóvember var fenginn verk-
efnastjóri til að stýra og undirbúa
nám sem er fyrir ungt fólk af er-
lendum uppruna og eru á aldrinum
sextán til tuttugu ára. Verkefna-
stjórinn fyrir þessu verkefni heitir
Þjóðbjörg Gunnarsdóttir og er hún
kennari og sér um málefni nýbúa í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
„Eins og við vitum þá er sam-
félagið á Suðurnesjum fjölmenn-
ingarsamfélag. Ungt fólk af er-
lendum uppruna sækir nám bæði
í grunnskóla og hjá öðrum mennta-
stofnunum á Suðurnesjum. Nem-
endur koma frá ólíkum menningar-
heimum, tala ólík tungumál og sum
hver standa sig með ágætum í námi
á meðan önnur hafa ekki fengið
tækifæri á menntun í sínu heima-
landi. Menntanet Suðurnesja ákvað
að bjóða ákveðnum hópi ungs fólki
af erlendum uppruna í sérsniðið
nám sem byggist á grunnþjálfun í
íslensku og fræðslu á íslensku sam-
félagi. Þetta nám er til þess fallið að
það styrki einstaklingana og gerir
þeim kleift að sækja hefðbundið nám
hjá skólunum á Suðurnesjum eða
annarsstaðar í framtíðinni. Námið
verður í boði næstkomandi vorönn
2022.
Leitast er við að bjóða náms-
greinar sem efla nemendur sem
þekkja ekki íslenskt samfélag og
menningarlíf. Nemendur þjálfast
í grunnorðaforða, talþjálfun, fram-
burði og hlustun. Nemendur læra
að matreiða áhugaverða rétti, t.d.
íslenska rétti eða rétti frá öðrum
menningarheimum. Þeir eflast í
sköpun á hinum ýmsu listformum
og læra forritun sem tengjast tölvu-
leikjagerð. Einnig kynnast nem-
endur íslensku samfélagi í gegnum
kappleiki, söfn og aðra samfélags-
viðburði og læra að þekkja nærum-
hverfi sitt til að átta sig á þeirri fjöl-
breyttri þjónustu sem sveitarfélögin
á Suðurnesjum bjóða íbúum sínum.
Kennslan fer fram í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og kennarar sem koma
að kennslu og fræðslu koma frá
öllum skólunum. Menntanet Suður-
nesja stefnir á að bjóða tveggja anna
námsbraut haustið 2022 til að styðja
enn betur við þennan hóp og munu
fagaðilar nýta vorönnina 2022 sem
grunn og lærdómsferli fyrir þessa
tveggja anna námsbraut.“
Bjarklind segir að lögð sé áhersla í
báðum þessum verkefnum að sam-
nýta innviða skólanna fjögurra sem
sitja í stjórn Menntanets Suðurnesja,
nýta hæfni og reynslu þessara frá-
bæru kennarana sem þar starfa,
stjórnendur og tengslanetið sem er
til staðar, húsnæðin og annan að-
búnað.
„Það er margt spennandi sem við
getum svo gert á næsta ári. Við erum
í þessum töluðum orðum að fara yfir
ýmis hugsanleg framtíðarverkefni til
að efla íbúa og samfélagið okkar. Við
lögðum könnun fyrir atvinnulífið til
að sjá hvar við getum bætt okkur í
úrvali og framboði á menntun fyrir
starfsmenn og fyrirtæki á svæðinu.
Niðurstöðurnar liggja fyrir fljótlega.
Ég bind vonir um að þessar niður-
stöður geti verið að einhverju leyti
leiðandi. Einnig vitum við að miklar
breytingar eru og verða á framtíðar-
störfum og við í stjórn Menntanets
Suðurnesja viljum taka þátt við
að efla okkur sem samfélag og at-
vinnusvæði á Suðurnesjum,“ segir
Bjarklind.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Úr tungumálakenslutíma í Miðstöð
Símenntunar á Suðurnesjum. Einnig kynnast nem-
endur íslensku samfélagi
í gegnum kappleiki, söfn
og aðra samfélagsviðburði
og læra að þekkja nærum-
hverfi sitt til að átta
sig á þeirri fjölbreyttri
þjónustu sem sveitar-
félögin á Suðurnesjum
bjóða íbúum sínum ...
14 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár