Fréttablaðið - 25.01.2022, Síða 4

Fréttablaðið - 25.01.2022, Síða 4
Þó að hilli undir lok farald­ ursins gætu bólusetningar­ vottorð og gjá milli bólusettra og óbólusettra verið komin til að vera. Prófessor í stjórn­ málafræði segir fordæmin óheillavænleg. kristinnhaukur@frettabladid.is SAMFÉLAG Andstaðan við sótt­ varna aðgerðir og bólusetningar hefur ekki minnkað þrátt fyrir að endalok faraldursins séu í augsýn. Á sunnudag mótmæltu þúsundir í Washington og í Brussel sló í brýnu milli mótmælenda og lögreglu. Hér á Íslandi var bólusetningum barna mótmælt á Austurvelli. „Við erum mjög hratt að skera þá hópa sem ekki vilja láta bólusetja sig frá samfélaginu,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmála­ fræði við Háskólann á Bifröst. Þetta birtist til dæmis hjá austurrískum og frönskum stjórnvöldum. Emm­ anuel Macron Frakklandsforseti hafi farið fram með fordæmalausri hörku í garð minnihlutahóps. Eiríkur bendir á að þeir sem mót­ mæli séu ekki einsleitur hópur. Stór hluti sé á móti sóttvarnaaðgerðum vegna frelsisskerðingarinnar, sumir vegna mismununar bólusettra og óbólusettra og sumir telji bólusetn­ ingar vera skaðlegar og eru hallir undir samsæriskenningar. Hvað verði um þessa hópa eftir faraldur­ inn sé ekki augljóst. „Popúlistar hafa alltaf nýtt sér samsæriskenningar og jafnvel stað­ ið að dreifingu þeirra. Það er óljóst hvernig þeir muni nýta sér endalok þessa faraldurs sér til framdráttar,“ segir Eiríkur. Popúlistaflokkar hafi víða átt nokkuð erfitt uppdráttar í faraldrinum en fleiri færi geti nú aftur verið að opnast fyrir þá. Eitt dæmi, sem gæti reynst stórt, er brottvísun serbneska tennis­ kappans Novak Djokovic frá Ástr­ alíu vegna bólusetningarstöðu hans. Í augum sumra varð hann að píslarvætti vegna þessa og Eiríkur bendir á að óbólusettir hafi fengið leiðtoga til að líta til þess. Þá er umræðan um bólusetning­ arvottorð alltaf að verða háværari. Meðal annars hafa framkvæmda­ stjórar Samtaka verslunar og þjón­ ustu og Samtaka ferðaþjónustunnar hér á Íslandi sagt sig fylgjandi slíku fyrirkomulagi. Eiríkur segir eina mögulega sviðsmynd þá að bólusetningar­ staða muni ekki skipta máli þegar faraldrinum linni. Vottorðin hverfi og gjáin milli bólusettra og óbólu­ settra sömuleiðis. En þetta sé bjart­ sýn spá og að önnur framvinda sé einnig möguleg. „Manni sýnist að bólusetningar­ vottorð gætu allt eins verið fest í sessi, jafnvel þó að faraldrinum linni,“ segir Eiríkur. „Þá erum við komin með jaðarsettan hóp sem hefur ekki sama aðgang að sam­ félaginu og aðrir. Forsagan segir að slíkir hópar eflist í andstöðu við sitt samfélag.“ Þessi andstaða geti brotist út með hvaða hætti sem er, í ýktustu dæmum sem ofbeldi. Til séu að verða stórir hópar sem treysta ekki stjórn­ völdum og stjórnvöld ýti frekar út á jaðarinn sem magnar vantraustið. „Þetta er varasamur vítahringur sem fjölmörg fordæmi sýna að geta leitt samfélög í ógöngur. Sumir leið­ togar virðast frekar ætla að magna upp vandann en að leysa hann,“ segir Eiríkur. Farsælli leið væri að líta á óbólusetta sem hóp sem þurfi að hlúa að og reyna með skilningi og hlýju að sýna fram á að fari villur síns vegar í stað þess að jaðarsetja. n Forsagan segir að slíkir hópar eflist í andstöðu við sitt samfélag. Eiríkur Berg- mann, prófessor við Háskólann á Bifröst UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U F J Ó R H J Ó L A D R I F JEEP COMPASS LIMITED TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI 7.479.000 KR. EIGUM BÍLA TIL AFGREIÐSLU STRAX. KOMDU OG REYNSLUAKTU! Jeep rafknúnu jepparnir henta íslenskum aðstæðum um allt land JEEP RENEGADE TRAILHAWK TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI 6.499.000 KR. ÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU ÁRÉTTING Í Fréttablaðinu á laugardag birtist mynd af Oddi Helga Halldórssyni, fyrrverandi bæjarfulltrúa á Akur- eyri, með frétt um breytingar á gjaldtöku í miðbænum. Áréttað skal að aðkoma Odds Helga að ákvörðun bæjarins um breytingarnar er engin. bth@frettabladid.is AKUREYRI Engin skriðuhætta er vegna fyrirhugaðra fjölbýlishúsa við Tónatröð á Akureyri. Þetta kemur fram í skýrslu sem Oddur Sigurðsson, jarðtækniverk­ fræðingur hjá Geotek, hefur unnið fyrir verktakann, SS Byggi. Oddur gerði vettvangsskoðun til að meta jarðveg, jarðtækni­ legar aðstæður. Hann hefur skrifað bæjaryfirvöldum minnisblað þar sem hann leggur mat á byggingar­ hæfi lóða á grunni skýrslunnar og metur það gott. Mjög hefur verið tekist á um þessa fyrirhuguðu framkvæmd, einkum meðal þeirra sem búa nálægt og hafa stofnað Facebook­hópinn Björgum Spítalabrekkunni. Íbúarn­ ir hafa gagnrýnt verklag við skipu­ lagsundirbúning og sumir varað við veðrabreytingum í framtíðinni, ekki síst aukinni rigningu sem gæti skapað skriðuhættu, en húsin munu standa á brekkubrún ef þau rísa. Í skýrslunni segir: Það er mat undirritaðs að byggingarhæfi lóða sé með ágætum, grundunarað­ stæður einfaldar þar sem grafa þarf ofan í þéttan jökulruðning og fylla með burðarhæfu og frostöruggu malarlagi eða að grundað er beint á klöpp.“ Þá segir: „Hætta á skriðuföllum er engin og með tilkomu fyrirhugaðra mannvirkja verður vatnssöfnun neðan við svæðið enn minni en fyrr vegna tilkomu fráveitukerfa fyrir­ hugaðra bygginga.“ Þórhallur Jónsson, formaður skipulagsráðs Akureyrarbæjar, segist ánægður með hve afdráttar­ laus skýrslan er. Sérfræðingar Veðurstofunnar munu nú leggja sitt mat á jarðvegs­ niðurstöður Geotek. n Metur enga skriðuhættu hjá húsum á brekkubrún á Akureyri Teikning af áformuðum byggingum við Tónatröð. MYND/YRKI Leiðtogar magni upp andstöðu við óbólusetta en hlúi ekki að hópnum Hópur hefur mótmælt bólu- setningum í nokkur skipti á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Hrap í ferðaþjónustu hefur leikið Ísland grátt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR kristinnhaukur@frettabladid.is E F N A H A G S M Á L Fjá r má la ha l l i ríkisins var í fyrsta sinn undir 5 prósentum af landsframleiðslu í faraldrinum á þriðja ársfjórðungi ársins 2021. Hallinn var 4 prósent miðað við rúmlega 11 prósenta halla á öðrum ársfjórðungi. Engu að síður er hallinn á Íslandi meiri en meðaltal álfunnar, 3,3 prósent. Reksturinn var nánast á núlli en strax á fyrsta ársfjórðungi 2020, er faraldurinn skall á, hrapaði hann niður í nær 7 prósenta halla. Á þeim næsta var hallinn yfir 12 prósent, sem er það mesta á öldinni, ef frá eru talin nokkur skipti eftir 2008. Allan faraldurinn hefur hallinn á Íslandi verið meiri en meðaltal Evr­ ópu og á tímabili sá mesti í álfunni. Hallinn er nú mestur í Belgíu, nær 10 prósent. Níu ríki á EES­svæðinu hafa jákvæða afkomu en 2020 voru þau öll í mínus. Best hefur afkoman verið í Noregi, rúmlega 6 prósent á þriðja ársfjórðungi og í plús allt árið. n Afkoma ríkisins fer batnandi 4 Fréttir 25. janúar 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.