Fréttablaðið - 25.01.2022, Page 8

Fréttablaðið - 25.01.2022, Page 8
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Ástæða skýrleikans er ekki sú að ég hafi verið slík íþrótta- kempa að þar hafi ég varið flestum stundum, heldur vegna þess að þar leið mér alltaf illa. Gætum að því að fjölgun ráðuneyta getur veikt Stjórnar- ráðið, sérstaklega gagnvart sérhags- munaöfl- unum. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Árið 2011 gengu í gildi ný lög um Stjórnarráð Íslands sem höfðu það að markmiði að styrkja Stjórnarráðið meðal annars með því að fækka ráðuneytum og stækka þau. Færð voru gild rök fyrir þeirri ráðstöfun í skýrsl- unni Samhent stjórnsýsla sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lét vinna. Þar má lesa vel rökstuddar tillögur um uppbyggingu og styrkingu Stjórnarráðsins. Skipan ráðuneyta er á ábyrgð framkvæmdavaldsins og forsætisráðherra hefur verkstjórnar- og samræm- ingarvald í Stjórnarráðinu. Á því leikur enginn vafi. En ekki heldur á því að fjölgun ráðuneyta úr tíu í tólf var forsenda þess að formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja náðu saman um áframhaldandi samstarf eftir alþingiskosningarnar í haust. Til grundvallar fjölgun ráðuneyta liggur að þessu sinni hvorki formleg þarfagreining né önnur gögn fyrir alþingismenn að styðjast við í umfjöllun um málið. Fyrir liggur að tillögur um breytta skipan Stjórnar- ráðsins hafa verið til umfjöllunar í litlum hópi ráðherra (formanna stjórnarflokkanna) og æðstu embættis- manna. Forsætisráðherra hefur lýst því svo að með breytingunni sé verið að draga lærdóm af verkaskipt- ingu síðastliðins kjörtímabils og reynslu liðinna ára. Það er ekki dregið í efa en jafn ljóst má vera að fjölgun ráðuneyta þjónar einnig skýrum pólitískum hags- munum flokkanna þriggja sem mynda ríkisstjórnina. Í ráðuneytum Stjórnarráðsins og undirstofnunum þeirra býr ekki einungis sérþekking á hverju einasta stjórnarmálefni heldur einnig stofnanaminni sem nauðsynlegt er til að viðhalda góðri stjórnsýslu, tryggja jafnræði borgaranna og þjónustu við þá. Sterk og fagleg stjórnsýsla viðheldur því með sínum hætti kerfislegum og lýðræðislegum stöðugleika þótt pólitísk forysta ráð- herranna sé óumdeild og sú staðreynd að þeir fara með dagskrárvaldið í sínu ráðuneyti. Gætum að því að fjölgun ráðuneyta getur veikt Stjórnarráðið, sérstaklega gagnvart sérhagsmunaöflun- um en það þarf að hafa bolmagn til að gæta almanna- hagsmuna í sérhverju máli sem þar er til afgreiðslu. n Er fjölgun ráðuneyta góð hugmynd? Þórunn Svein- bjarnardóttir formaður stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis Á dögunum samþykkti skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar að frá og með næsta hausti verði nemendum áttunda bekkjar boðið að ljúka hæfniviðmiðum skóla- sunds við upphaf níunda bekkjar. Velji nem- endur það og standist hæfniviðmiðin geta þeir þá notað tímann sem annars færi í skólasund í annars konar val í síðustu tveimur bekkjum grunnskóla. Ólíkt því sem gengur og gerist víða er þjóðin meira og minna vel synd og það má þakka skólasundinu sem við öll höfum farið í gegnum. Sund er stór hluti menningar okkar enda hvergi í heiminum eins mikið um almenningssund- laugar þar sem fólk nýtur útivistar, hreyfingar og samveru á heilbrigðan hátt. En það eru ekki allir sem velja að nýta sér þessar laugar til að auka vellíðan sína enda tengja margir sundlaugaheimsóknir við allt aðrar tilfinningar. Ástæðurnar geta verið af ýmsum toga en flest á þetta fólk það þó sam- eiginlegt að hafa verið gert að mæta í sitt skóla- sund frá upphafi til loka grunnskólagöngu. Öryggis- og lýðheilsumarkmið vega þar aug- ljóslega þyngst og er engin ástæða til að efast um þau. En hvað tekur það að meðaltali langan tíma að kenna barni að synda? Áratug? Varla. Þó börnum virðist eðlislægt að líða vel í vatni er það líklega jafn eðlislægt að upplifa feimni við að bera sig frammi fyrir öðrum á unglings- árunum á tímum stórra líkamlegra breytinga. Að bjóða flugsyndum unglingum upp á val um það hvort þeir taki fáklæddir þátt í skólasundi eður ei er ég handviss um að geti haft mikið að segja um andlega líðan þessara sömu barna. Ekki aðeins er þessi breyting til góðs á tímum sífelldrar aukningar á kvíðagreiningum barna og unglinga heldur er hún merki um enn stærri viðhorfsbreytingu: Því þessi tillaga kemur frá börnunum sjálfum – og á þau var hlustað! Þegar ég ritaði þessi orð rann upp fyrir mér að hvað skýrustu æskuminningar mínar eru úr íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ frá níunda áratug síðustu aldar. Ástæða skýrleikans er ekki sú að ég hafi verið slík íþróttakempa að þar hafi ég varið flestum stundum, heldur vegna þess að þar leið mér alltaf illa. Það hefði þó aldrei hvarflað að mér að sjálf gæti ég haft áhrif á örlög mín sem grunnskólanemandi – að einhver fullorðinn myndi hlusta. Tillaga Elísabetar Láru Gunnarsdóttur, full- trúa ungmennaráðs Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, náði aftur á móti alla leið. Fyrir það munu margir þakka henni – og þeim sem á hana hlýddu! n Þau sem synda ser@frettabladid.is Nýir kettir Frægt var þegar Jóhanna Sigurðar- dóttir, þáverandi forsætisráðherra í vinstristjórninni 2009 til 2013, líkti því við að smala köttum er hún reyndi, ítrekað, að fá þing- menn og ráðherra Vinstri grænna til fylgilags við Icesave-samning- inn sáluga. Og varð þar með til eitt lífseigasta pólitíska orðatiltæki síðari tíma og hefur þótt fara vel í munni yfir óþekktarormana innan þings. En nú ber nýrra við þegar komið er fram á þriðja áratug aldarinnar, því jafnt þing- menn og ráðherrar Vinstri grænna eru einna líkastir björnum í vetrarhíði á meðan þingmenn og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins láta öllum illum látum. Seinni smölun Það kemur nú í hlut Katrínar Jakobsdóttur að smala köttum, en ófriðurinn í þingflokksher- bergi íhaldsins varir mánuðum saman, eilíflega með efasemdum eða þaðan af sterkari yfirlýsingum um sóttvarnaaðgerðir sem vaskir hægrimenn segja vera sovéska tilburði og algera ráðstjórn þegar betur fari á því að huga að frelsi einstaklingsins. Þessi seinni smölun íslenskrar pólitíkur er ekk- ert minna en áhugaverð áminning um að ábúðarfullir íhaldsmenn geta breyst í óstýriláta ketti, ef svo hentar til heimabrúks, rétt eins og vinstrimenn gerðu áður, einmitt til héraðsbrúks. n Handgerðir íslenskir sófar • Margar útfærslur í boði • Mikið úrval áklæða • Engin stærðartakmörk • Sérsmíði eftir þínum óskum Hvernig er draumasófinn þinn? Kíktu í heimsókn! Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is Sjá nánar á patti.is SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 25. janúar 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.