Fréttablaðið - 08.02.2022, Page 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Hann virðist hafa
skoðun á öllu, bílnúm-
erum og guð má vita
hverju.
Hugi Halldórsson og Sigmar
Vilhjálmsson eru búnir að
virkja forna frægð sjónvarps
þáttanna 70 mínútur af
slíkum krafti að samnefnt
hlaðvarp rýkur upp vinsælda
listann þótt ógeðsdrykkurinn
sé fjarri góðu gamni rétt eins
og sjónvarpstökuvélarnar.
odduraevar@frettabladid.is
„Þetta er gamalt og gott nafn sem
við ákváðum að nota og þurftum þá
ekkert að flækja það neitt en þetta
er ekkert í líkindum við þættina.
Það verða engir ógeðsdrykkir eða
neitt verið að sleikja tær eða hoppa
fram af húsþökum sko,“ segir Hugi
sem gerði ýmsa vitleysuna sem
OfurHugi í sjónvarpsþáttunum.
Engu að síður er óhætt að full
yrða að viðtökurnar sem hlaðvarpið
hefur fengið hafi farið fram úr hans
björtustu vonum en þátturinn
tyllti sér á topp vinsældalistans yfir
íslensk hlaðvörp undir hatti Apple
og skaut þar með Í ljósi sögunnar,
með Veru Illugadóttur, ref fyrir rass.
Hatarar beðnir afsökunar
„Sorry haters, back in the podcast
game. Góða helgi. Kveðja,“ skrifaði
Hugi á Twitter þegar hann birti
teng il á fyrsta þáttinn sem skartar
undirtitlinum: „Bubbi, Dorrit,
Valdimar og kynlífsverkafólk.“
Hugi segir samræður þeirra Sig
mars verða burðarásinn í hlaðvarp
inu þar sem þeir taka skemmtilega
snúninga á fréttum vikunnar og
öðrum uppákomum og dægur
málum.
„Svo er hugmyndin að hringja
og fá gesti sem koma og fara, en
aldrei svona „sit down“ eða djúpa
krufningu á málunum. Heldur
er þetta létt af þreying sem fólk
kannast alveg við. Þú hefur heyrt
þennan þátt áður. Þarna verðum
við bara tveir að skemmta okkur og
skemmta öðrum.“
Hugi fellst á að þrátt fyrir að
bygging þáttarins hljómi ansi
kunnuglega þá geti ekki allir hlað
varpsþættir státað af fyrrverandi
þáttastjórnendum 70 mínútna líkt
og hlaðvarpið 70 mínútur.
„Það er reyndar alveg rétt. Við
bara ákváðum að láta slag standa
með nafnið allavega. Mér hefur
gengið alveg ljómandi vel í þessum
hlaðvarpsleik og hef farið með þrjú
önnur hlaðvörp á toppinn en hug
myndin er ekkert að sigra heim
inn. Við höfum þetta bara létt og
skemmtilegt.“
Ætlaði aldrei í langt hlé
Hugi hefur áður stýrt hlaðvarps
þáttunum FantasyGandalf og The
Mike Show um fótbolta svo eitthvað
sé nefnt. Það síðarnefnda lagði upp
laupana eftir að þar voru látin falla
umdeild ummæli um Eddu Falak og
Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur.
„Það var nú ekki punkturinn
yfir iið. Punkturinn yfir iið var að
Mikael vildi prófa að fara áskriftar
leiðina. Ég vildi ekki prófa það og þá
fann hann leið til þess og allir voru
bara glaðir og vinir. Hæfæv og allt
það.
Ég hefði haldið áfram með The
Mike Show þrátt fyrir að hafa sagt
eitthvað óheppilegt að mati ann
arra og í eyru annarra,“ segir Hugi
og vísar þar til Mikaels Nikulás
sonar. „En eins og ég hef alltaf sagt,
ef maður særir einhvern þá er ekkert
sjálfsagðara en að segja sorrí.“
Talið berst þá að Sigmari sem
undanfarin ár hefur starfað í veit
ingabransanum og verið óhræddur
við að gagnrýna yfirvöld og segja
sínar skoðanir á mönnum og mál
efnum.
„Hann virðist hafa skoðun á öllu,
bílnúmerum og guð má vita hverju,
þannig að það er fínt fyrir hann að
fá eitthvert „platform“ og fólk getur
þá hætt að sjá hann dúkka upp
annars staðar og stillt inn þarna ef
það hefur áhuga, annars ekki,“ segir
Hugi og hlær. n
Hugi og Simmi vinsælir í
sögulegu ljósi 70 mínútna
Hugi og
Simmi hafa
engu gleymt
síðan þeir voru
á skjánum í 70
mínútum og
halda sínu stríki
í samnefndu
hlaðvarpi en láta
þó ógeðsdrykk-
ina eiga sig.
MYND/AÐSEND
PINTO
4ra sæta sófi í Kentucky stone eða koníak
bonded leðri. 253 x 97 x 85 cm. 249.990 kr.
Nú 174.993 kr.
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
*Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar
með fyrirvara um prentvillur.
RICHMOND
Borðstofuborð, olíuborin eik með
fiskibeinamynstri. Ø120 cm.
99.990 kr.
EDE
2,5 sæta sófi í Kentucky koníakslituðu
bonded leðri. 185 x 95 x 82 cm.
169.990 kr.
Fyrir
lifandi
heimili
BROSTE BUBBLE
Rauðvínsglas. 1.790 kr.
Hvítvínsglas. 1.490 kr.
Kampavínsglas. 1.790 kr.
toti@frettabladid.is
Hafi einhver verið búinn að gleyma
því að Reynir Pétur Ingvarsson, íbúi
á Sólheimum í Grímsnesi, varð sum
arið 1985 fyrsti maðurinn til þess að
ganga hringinn í kringum landið þá
voru þau hin sömu og aðrir sem ekki
vissu minntir hressilega á afrekið í
nýlegum Verbúðarþætti.
Reynir Pétur býr enn á Sólheim
um og þar urðu fagnaðarfundir
þegar Hrafn Jökulsson og Veraldar
vinir tóku á honum hús í tilefni þess
að Veraldarvinir eru að hefja sjálf
boðastörf á Sólheimum.
„Húfuna góðu úr Árneshreppi
færði ég Reyni Pétri ásamt galdra
steini úr Kolgrafarvík,“ segir Hrafn
og bætir við að honum hafi verið
mikill heiður að því að hitta Reyni
sem tók gjöfunum með mikilli
gleði.
„Stórkostlegt að hitta goðsögn
ina, einn mesta afreksmann 20.
aldar,“ heldur Hrafn áfram og víkur
að fyrrnefndu afreki. „Íslandsganga
hans 1985 markaði þáttaskil svo
mér fannst við hæfi að færa honum
íslenska húfu úr Árneshreppi,“ segir
Hrafn og bætir við að þeir stefni að
því að bralla ýmislegt saman. n
Reynir Pétur fékk galdrastein og húfu
Vel fór á með þeim Hrafni og Reyni
Pétri. MYND/ ÞÓRARINN ÍVARSSON
18 Lífið 8. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ