Fréttablaðið - 11.02.2022, Síða 2
Funduðu um vöggustofurannsókn
Hrafn Jökulsson, Árni H. Kristjánsson og Viðar Eggertsson mættu til fundar við Þorstein Gunnarsson borgarritara í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Þeir Hrafn, Árni
og Viðar voru allir vistaðir á svokölluðum vöggustofum á vegum borgarinnar. Ríki og borg ætla að vinna þétt að rannsókn á vöggustofum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Að minnsta kosti sjö mál eru
nú til rannsóknar hjá teymi
Þjóðkirkjunnar vegna séra
Gunnars Sigurjónssonar. Eftir
34 ára starf Kórs Hjallakirkju
lagði hann niður störf í fyrra
vegna framkomu séra Gunn-
ars í garð kórstjórans.
helenaros@frettabladid.is
TRÚMÁL Kór Hjallakirkju lagði niður
störf í apríl 2021 eftir 34 ára starf
vegna framkomu sóknarprests við
Digranes- og Hjallakirkju í garð Láru
Bryndísar Eggertsdóttur, kórstjóra
og organista, eftir að hún greindi frá
samstarfsörðugleikum milli sín og
séra Gunnars Sigurjónssonar.
Lára fór í veikindaleyfi vegna
málsins fyrri hluta ársins 2021 og
sagði svo formlega upp störfum í
apríl sama ár.
Í júní sendi Lára málið til teymis
Þjóðkirkjunnar þar sem nú fer fram
rannsókn á því.
Stundin greindi frá því fyrr í
vikunni að séra Gunnar hefði verið
sendur í leyfi frá störfum í desember
síðastliðnum eftir að sex konur stigu
fram og ásökuðu hann um kynferð-
islega áreitni, kynbundið ofbeldi og
einelti.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er mál Láru ekki eitt þeirra
sex sem Stundin greindi frá og því
eru að minnsta kosti sjö mál til rann-
sóknar hjá teymi Þjóðkirkjunnar
vegna séra Gunnars.
Stjórnarmeðlimur í Kór Hjalla-
kirkju segir í samtali við Frétta-
blaðið að kórfélögum hafi blöskrað
framkoman í garð Láru eftir að hún
greindi frá samstarfsörðugleikun-
um við séra Gunnar og segir hana
ekki hafa fengið þann stuðning sem
hún hefði þurft frá öðrum prestum í
prestakallinu.
Sóknarnefnd Hjallakirkju hafi
stutt vel við bakið á Láru en það hafi
ekki dugað til. Viðkomandi segir
kórinn í raun hafa orðið vitni að því
þegar Lára brotnaði hægt og rólega
niður fyrir framan þau.
Síðan hafi sú ákvörðun verið tekin
að leggja kórinn niður þegar Lára
sagði upp störfum. Sumir hafi fylgt
Láru í næsta kór á meðan aðrir hafi
hreinlega hætt.
Þann 24. mars 2021 sendu kór-
félagar í Hjallakirkju frá sér ályktun
vegna málsins, sem Fréttablaðið
hefur undir höndum, þar sem fram
kemur meðal annars að frá því að
sameiningarferli milli prestakalla
Digranes- og Hjallakirkju hófst hafi
hallað verulega á Hjallasókn að
þeirra mati.
„Við kórfélagar höfum átt gott
samstarf við Láru Bryndísi og tökum
nærri okkur að hún sjái sér ekki
lengur fært að mæta til vinnu vegna
samstarfsörðugleika. Við stöndum
við bakið á henni og styðjum í því
umróti sem hún stendur nú í varð-
andi samskipti á vinnustaðnum.
Okkur þykir ámælisvert hvernig
framkoma ákveðinna starfsmanna
kirkjunnar hefur verið í garð Láru
Bryndísar og það er ljóst að margir
kórfélagar munu ekki taka þátt í
kórstarfinu ef hún fer í leyfi. Við
erum miður okkar yfir þeim nei-
kvæðu áhrifum sem þessi átök
innan kirkjunnar hafa haft og munu
hafa á annars langt og farsælt kór-
starf við Hjallakirkju. Við sitjum
ekki þegjandi hjá þegar kórstýran
okkar, sem er fagmanneskja fram í
fingurgóma og góður félagi, hrekst
frá vinnu vegna þess sem okkur
sýnist jaðra við að vera einelti á
vinnustaðnum,“ segir jafnframt í
lok ályktunarinnar. ■
Blöskraði framkoma prests
og kórinn fylgdi stjórnanda
Lára Bryndís
Eggertsdóttir,
kórstjóri og
organisti
Séra Gunnar var sóknarprestur í Digranes- og Hjallakirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
bth@frettabladid.is
COVID-19 Ríkisstjórnin fundar um
afléttingar í dag og er von á tölu-
verðum breytingum, að líkindum
frá og með miðnætti.
Fyrir liggur að einangrun verður
ekki afnumin en gert er ráð fyrir að
heimilt verði að tvö hundruð megi
koma saman og fjöldatakmarkanir
á sitjandi viðburðum verði eitt þús-
und manns.
Þá er líklegt að skemmtistaðir og
veitingastaðir fái að hafa opið til eitt
en síðustu gestir komi inn fyrir mið-
nætti. ■
Afléttingar vegna
Covid í pípunum
bth@frettabladid.is
SAMFÉLAG 112 dagurinn er í dag.
Áhersla verður lögð á að vinna gegn
hvers konar ofbeldi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Neyðarlínunni hefur of beldis-
hegðun farið vaxandi hér á landi
þau tvö ár sem Covid-faraldurinn
hefur geisað.
Í tilefni dagsins miðlar Neyðarlín-
an fræðsluefni á gagnvirku mynd-
bandi um rétt og skilvirk samskipti
við neyðarverði sem svara í símann
þegar hringt er í neyðarnúmerið
112.
Horfa má á myndbandið með
því að smella á á hlekk á heimasíðu
Neyðarlínunnar sem og á heima-
síðum samstarfsaðila. ■
Ofbeldishegðun
er þema 112 í ár
arib@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Ung kona er alvar-
lega særð eftir að hún var skotin
í kviðinn í Grafarholti í fyrrinótt.
Karlmaður er særður eftir að hafa
verið skotinn í annan fótinn. Árás-
in átti sér stað utandyra.
Lögregla handtók í gær tvo menn
á þrítugsaldri, virðist vera sem þeir
hafi reynt að fela sig fyrir lögreglu.
Lagt var hald á ökutæki mannanna
og skammbyssu. Lögregla hefur
áður haft afskipti af báðum mönn-
unum.
Tilkynningin barst lögreglu á
fjórða tímanum í fyrrinótt, mun
ótengdur aðili sem var á svæðinu
hafa tilkynnt málið. Alls tóku um
áttatíu lögreglumenn þátt í leitinni
að mönnunum.
Miðlæg rannsóknardeild fer
með rannsókn málsins og er hún
á frumstigi. Talið er að tengsl
meintra árásarmanna við fólkið
sem varð fyrir árásinni séu ein-
hver. Ekki er vitað hvort f leiri en
eitt vopn var notað.
Fram kom í kvöldfréttum RÚV að
lögregla væri að skoða hvort árásin
hefði verið hefndaraðgerð og hvort
tengja mætti hana við skipulagða
glæpastarfsemi. ■
Alvarlega særð
eftir skotárás
Annar maðurinn var handtekinn í
aðgerð við Miklubraut í gær.
2 Fréttir 11. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ