Fréttablaðið - 11.02.2022, Page 8
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Réttur hins
saklausa
má aldrei
gleymast.
Fjárfesting
í staf-
rænum
lausnum er
fjárfesting í
innviðum.
Fjárfesting
til fram-
tíðar.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Það segir ansi margt um ríkjandi við-
horf í þjóðfélaginu að hver sá sem
minnir á að menn séu saklausir uns
sekt þeirra er sönnuð uppsker hörð
andmæli og þarf jafnvel að þola
árásir. Honum eru samstundis gerðar upp
illar hvatir og hann er sakaður um gerenda-
meðvirkni.
Þegar hin góða regla um sakleysi þar til
annað sannast er farin að víkja tekur önnur
regla völdin, sú að ásökun jafngildi sekt. Það
er vissulega f ljótlegt og skilvirkt að starfa
samkvæmt því lögmáli, en það á ekkert
erindi í samfélag siðaðra manna. Ef þessi
regla á að ríkja þá er um leið gengið út frá því
að enginn beri nokkurn tíma rangar sakir
á annan, sem er vitaskuld fjarstæða. Dæmi
finnast um slíkt og þó þau séu kannski ekki
gríðarlega mörg, þá eru þau of mörg meðan
einhverjum saklausum er refsað eða þarf
að þjást að ósekju. Réttur hins saklausa má
aldrei gleymast.
Um þjóðfélagið hefur undanfarið gengið
refsibylgja sem beinist gegn þeim sem sakaðir
hafa verið um ýmiss konar ósæmilegt athæfi.
Þótt mál þeirra hafi ekki ratað til dómstóla
þá fyrirfinnst annar dómstóll, dómstóll
götunnar, sem í nær öllum tilfellum dæmir af
miskunnarleysi og sviptir menn ærunni eins
og ekkert sé, og það án þess að vita ýkja mikið
um staðreyndir í viðkomandi málum. Öllu
er hrúgað saman þannig að dónaskapur og
ruddaskapur lendir í sama flokki og alvarleg
ofbeldismál. Ruddinn er nánast talinn jafn-
sekur og ofbeldismaðurinn – sem er gjörsam-
lega galið. Engu skiptir síðan hvort þeir sem
ásakaðir hafa verið segjast vera saklausir. Þeir
eru flokkaðir sem blygðunarlausir lygarar.
Svona gerast hlutirnir þegar mál fara ekki
í réttan farveg heldur er skellt á netið. Fjöl-
miðlamenn gleypa síðan græðgislega við
brotakenndum frásögnum í þeirri von að
vera með stórfrétt í höndunum.
Nú er komið fram nýtt af brigði í ásökunar-
stefnunni sem felst í því að bera fram ásakan-
ir án þess að nefna nafn viðkomandi. Gefnar
eru nokkrar vísbendingar sem eru samt ekki
svo afgerandi að hægt sé að benda af vissu á
einn einstakling, heldur liggja nokkrir undir
grun. Þeir þurfa síðan annað hvort að bera af
sér sakir opinberlega eða láta eins og þeir viti
ekki af því að þeir séu í hópi grunaðra. Þetta
er ekki staða sem setja á nokkurn mann í.
Við lifum í samfélagi þar sem farið er að líta
á dómhörku sem sjálfsagða og eðlilega. Ekki
beinlínis geðslegt samfélag. n
Ásakanir
kristinnhaukur@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
Ekki meir, Geir
Hún ætlar að reynast þrálát, þrá-
hyggja Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar um að þingheimur
biðji Geir H. Haarde afsökunar á
kærunni til Landsdóms sem lauk
með dómi fyrir stjórnarskrárbrot.
Geir fékk að vísu smjörsteiktan
smokkfisk í Washington í sára-
bætur í stjórnartíð Sigmundar sem
hann hefur alfarið þurft að reiða
sig á varðandi afsökunarbeiðni
þingsins eftir sneypuför til Strass-
borgar. Sigmundur hefur lagt fram
tillögu þess efnis árlega frá 2017, en
nú vekur athygli að enginn úr þing-
liði Sjálfstæðisflokks stendur að
tillögunni þannig að eftir stendur
aðeins þingflokkur Miðflokksins:
Sigmundur og Bergþór Ólason.
Kveðjukossinn
Nýsýknuð í meiðyrðamáli
Reynis Traustasonar, lék Arn-
þrúður Karlsdóttir á als oddi í
síðdegisþætti sínum á Útvarpi Sögu
á miðvikudag, þar sem hún hafði
Emmanuel Macron Frakklands-
forseta að skotspæni í spjalli við
Moskvubúann Hauk Hauksson um
Úkraínudeiluna. Tæpast mun það
kosta hana málsókn að hafa í lok
þáttar sent Macron kveðju frá Pútín
og Útvarpi Sögu með laginu Title,
þar sem söngkonan Megan Trainor
syngur til einhvers sem má hennar
vegna kyssa hana bless á rassinn,
og fór þar forgörðum dauðafæri til
að kasta kveðju á Reyni frekar en
Macron. n
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
Hvaða máli skiptir stafræn umbreyting fyrir okkur?
Með stafrænni umbreytingu geta sveitarfélög aukið
við þjónustu, gert hana skilvirkari og betri. Stafrænar
lausnir minnka flækjustig, samskipti verða liprari og
umhverfi notandans verður aðgengilegra. Notandinn
fær hraðari afgreiðslu, betra og auðveldara aðgengi að
gögnum, betri yfirsýn og meira gagnsæi.
Fjárhagslegur ávinningur
Fjárhagslegur ávinningur er líka töluverður, með fjár-
festingu í stafrænni þróun förum við betur með fjármuni.
Við nýtum líka tíma starfsfólks betur og í virðismeiri
verkefni, fólk sinnir þá fólki í stað bak- og pappírsvinnslu.
Tökum dæmi. Sveitarfélögin vinna nú að því að inn-
leiða stafrænt aðgengi að fjárhagsaðstoð. Í dag fara 28.300
klukkustundir á ári í vinnslu og afgreiðslu umsókna.
Áætlað er að í nýju stafrænu kerfi verði þetta 14.150
klukkustundir. Fjárfesting í stafrænum lausnum er fjár-
festing í innviðum. Fjárfesting til framtíðar.
Velferðartækni er hluti af stafrænni þróun og þar eru
fjölmörg tækifæri til að gera miklu betur. Ávinningur-
inn er hagkvæmni, minni sóun á tíma og mannafla og
umfram allt, aukin lífsgæði og sjálfstæði notenda.
Notandinn í forgrunni
Atvinnulífið er á fullri ferð í stafrænni þróun enda vill
enginn sitja eftir. Það sama á við um sveitarfélögin. Mikil
vinna er í gangi hjá þeim og sameiginlega er unnið að
mörgum og spennandi verkefnum, enda er hagræðing í
því. Við eigum að halda áfram og þróa stafrænar lausnir
út frá þörfum notandans í samstarfi við hugbúnaðar-
fyrirtæki á frjálsum markaði.
Yngra fólk nýtir þjónustu öðruvísi en við sem eldri
erum og þar eru stafrænar lausnir hluti af daglegu lífi. Við
getum gert svo margt með smelli í símanum! Sveitarfélög
verða að laga sig að raunveruleika allra bæjarbúa. Bætum
þjónustu og einföldum líf notandans.
Stafræn vegferð Garðabæjar er hafin.n
Velkomin í framtíðina,
velkomin í Garðabæ
Áslaug Hulda
Jónsdóttir
formaður bæjar-
ráðs Garðabæjar
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 11. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR