Fréttablaðið - 11.02.2022, Page 9
Ef við brjótum regluna
og lengjum meterinn
um 10%, mundi ekki
allt verða betra?
Við klifr-
uðum
sífellt yfir
vegginn á
Hressó og á
enni mínu
er ör eftir
rosalegt
stuðkvöld
á Kaffi-
barnum.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviða
ráðherra vill taka húsnæðisliðinn úr
vísitölu neysluverðs. Vísitala neyslu
verðs er mælieining, skilgreind til að
meta breytingar á útgjöldum Íslend
inga að meðaltali.
Nú er það svo að mönnum lærðist
snemma að ekki mætti krukka í
staðlaðar mælieiningar, því þá var
hægt að svindla á fólki. Einokunar
kaupmenn gátu svindlað við vigtun
á möðkuðu mjöli, með því að sverfa
hluta þyngdarinnar af reislublóðinu.
Menn smíðuðu sextant til að
mæla sólarhæð í gráðum. Hringur
inn er 360 gráður og hver gráða 60
mínútur. Vegalengd á sjó var skil
greind á þann veg að ef sólarhæð á
hádegi minnkaði um eina mínútu
á einum sólarhring, þá var stað
setningin einni sjómílu sunnar en
degi fyrr.
Þjóðverjar voru og eru nákvæmir
og þar áttu bakarar að hafa brauð
hleifinn af staðlaðri stærð. Þess
vegna voru smiðir fengnir til að
smíða úr tré staðalbrauð svo kaup
endur gætu borið brauð bakarans
saman við. Í hverjum bæ þurfti
eitt staðalbrauð svo margir smiðir
tóku að sér smíðina, en þar með var
hætta á að einhver trébrauðanna
væru ekki af réttri stærð. Þaðan
kemur máltækið að hengja bakara
fyrir smið.
Vegalengd var og er mæld á
ýmsan veg annan en í sjómílum,
samanber vísuna sem skilgreinir
fjarlægðina frá Þorlákshöfn vestur
í Selvog.
Frá Þorlákshöfn og út í vog
er svo mældur vegur
átján þúsund áratog
áttatíu og fjegur.
Í París geymdu menn sem dýr
grip hinn eina og sanna einn metra
gerðan úr eðalviði. Ef átti að fram
leiða tommustokk sem bæði sýnir
tommur og sentimetra, þurfti kon
ungsleyfi til að staðfesta lengdina
með samanburði. Síðar hefur skil
greining á einum metra verið gerð
vísindalegri.
Ef við brjótum regluna og lengj
um metrann um 10%, mundi ekki
allt verða betra? Ökuleiðin milli
Reykjavíkur til Akureyrar er fyrir þá
breytingu 387 km en mundi styttast
í um 350 km. Augljóst hagræði? Ég
held að Sigurður Ingi verði að finna
raunhæfari leið til að sigrast á verð
bólgudraugnum. ■
Lengjum metrann
Hallgrímur
Axelsson
verkfræðingur
Guðmundur
Steingrímsson
■ Í dag Þetta er svona:
Eftir hundruð ára af samfelldri
vosbúð, blautum ullarsokkum, tíð
indaleysi, tannleysi, handritaáti,
seinkun vorskipa, seinkun haust
skipa, draugagangi og óútskýrðum
ópum í fjarska, í hvínandi vindi á
afskekktum heiðum, rak vaxandi
velmegun og vaxandi neyslu á
Íslandsstrendur um og upp úr
síðara stríði. Fólk flutti á mölina.
Borgarmenningin varð til. Mun
aður varð til. Sjónvarpið byrjaði.
Fólk byggði sér hús og húsin voru
hlý, björt, héldu vindi og í þeim
var pláss. Fólk fékk alls konar
vinnu. Hlaut alls konar menntun.
Fólk eignaðist herbergi með eigin
glugga, rúmi, stól og hurð. Og fólk
eignaðist fé.
Ein fyrsta hugsun þorra fólks í
þessum nýju aðstæðum vaxandi
auðlegðar, tíma, frelsis og mögu
leika, eftir aldir af leiðindum, var
auðvitað einföld, skýr og aug
ljós: Nú dettum við hressilega
í það. Kósígallar voru keyptir í
útlöndum. Romm í kók, vodka í
engifer, bjórlíki í glerlíki og aðrar
guðaveigar flæddu inn um varir
Íslendinga, sem tjúttuðu eins og
fólk sem á það skilið, á nýteppa
lögðum stofugólfum með dökk
brúnum viðarhúsgögnum. Blár
sígarettureykur fyllti öll vit og öll
rými, á skrifstofum, skólum, flug
vélum og bílum.
Þegar ég hugsa um bernsku mína
og mótunarár – þennan tíma sem
ég nýt þess núna að upplifa í Ver
búðinni – finnst mér ég finna lykt
ina af stemningunni: af reyknum, af
klístruðum vínblettum á stofu
borði, af partí unum, af þynnkunni.
Mér finnst eins og það séu engar
ýkjur, þegar ég horfi til baka, að
á uppvaxtarárum mínum hafi í
minnst öðru hverju húsi búið fólk
sem var oft og iðulega mjög fullt á
daginn. Í gegnum Verbúðina sjáum
við þetta mikilvæga mótunarskeið
þjóðarinnar – níunda og tíunda
áratuginn – í fersku ljósi. Ég tilheyri
xkynslóðinni, afkvæmum eftir
stríðskynslóðarinnar. Við ólumst
upp við bjartsýnina, gassaganginn,
óraunsæið, vitleysuna, framtaks
semina, vonina, lífið, gleðina,
ómótuðu plönin, fyrstu sólarlanda
ferðirnar, sódastreamið, fótanudd
tækin og Hemma Gunn og við
héldum flest, held ég, að við ættum
líka að vera svona hress. Svona
rosalega glöð út af betri lífskjörum,
yfir bættum hag og öllu áfenginu
og þess vegna voru mennta og
háskólaárin mín eitt samfellt
djamm, þar sem keppt var að því
að sem flestir væru sem mest fullir
í sem lengstan tíma. Tequila flæddi
á Tunglinu þangað til það brann, og
Galíanó Hot Shot á Café Óperu þar
til hún brann. Við klifruðum sífellt
yfir vegginn á Hressó og á enni
mínu er ör eftir rosalegt stuðkvöld
á Kaffibarnum. Rogast var með
þungstrekkta plastpoka úr ÁTVR
í slabbi í partí um hverja helgi. Í
tvítugsafmælinu mínu drapst um
helmingur eftir ofdrykkju bollu
sem var blönduð með landa af vini
mínum sem var með kvef.
Svona var þetta og maður hugsar
núna bæði í einu: Mikið var þetta
gaman. Og hins vegar: Svakalega
var þetta mikið rugl.
Enda kom bindindismaðurinn
Cliff Barnes úr Dallas á skerið og
sagði frá því að hægt væri að fara
í svokallaða áfengismeðferð. Það
tók þjóðina áratugi að meðtaka
þann boðskap almennilega.
Og nú er öldin önnur. Eftir
stríðskynslóðin er komin á efri
ár og margir sem henni tilheyra
hafa gert sínar eigin uppgötvanir
um nauðsyn meira jafnvægis og
heilsusamlegri lífsstíls. Tappinn er
víða kominn í f löskuna, fólk stund
ar útivist og lítur vel út – ef það lifir
enn á annað borð. Reykingar heyra
sögunni til. Xkynslóðin hefur
líka smám saman uppgötvað að
fylleríin eru ekki endilega málið.
Lífið er stærra. Og nú vex úr grasi
ný kynslóð sem spilar saman og
horfir á kvikmyndir um helgar,
og nennir engan veginn að detta í
það. Ísland er orðið meira edrú.
Svo uppgötvar maður líka,
við áhorf Verbúðar, að fylleríið
snerist ekki einungis um neyslu
hugbreytandi efna. Fylleríið átti
sér líka aðrar birtingarmyndir, í
ákvörðunum sem teknar voru og
framkvæmdum sem ráðist var
í. Um ákvarðanir í tengslum við
kvótakerfið er fjallað í þáttunum,
hvernig óheyrilegur auður varð til
og safnaðist á fárra hendur í öllu
þessu égáþaðskilið umhverfi,
sem síðar þróaðist yfir í égáþetta
égmáþetta andrúmsloftið, sem
þandist út í fjársukksbombu sem
svo sprakk með ægilegum látum
og gríðarlegri þynnku. Á öðrum
sviðum sjáum við fylleríið líka.
Borgin þandist stjórnlaust út svo
núna þarf að þétta hana. Og lofts
lagsváin er afsprengi neyslusukks.
Orkuskortur, sem nú greinir frá í
fréttum, minnir okkur á orkufyll
eríið. Byggð voru þrjú álver, undir
þeim formerkjum að hér væri allt
vaðandi í orku, líkt og víni. Það
reyndist auðvitað ekki rétt. Cliff
Barnes hefði getað sagt okkur það
líka.
Svona getur vel heppnaður sjón
varpsþáttur fengið mann til að
hugsa um sögu heillar þjóðar og
hugleiða rætur samtímans.
Ég verð að segja það. ■
Verbúðin
FÖSTUDAGUR 11. febrúar 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ