Fréttablaðið - 11.02.2022, Side 16
Þegar rætt er um íþrótta-
iðkun að vetrarlagi koma
skíðaiðkun, vélsleðaferðir
og jafnvel skotveiðar upp í
hugann. Ýmislegt, sem fólk
tengir frekar sumri og sól,
hentar hins vegar vel í vetur-
inn. Vetrarhjólreiðar hafa til
dæmis færst mjög í vöxt.
olafur@frettabladid.is
Jóhann Níels Baldursson er tæp-
lega fertugur Akureyringur. Hann
er viðskiptafræðingur frá Háskól-
anum í Reykjavík og bjó fyrir
sunnan í mörg ár. Fyrir þremur og
hálfu ári f lutti hann ásamt eigin-
konu sinni, Hildi Jönu Júlíusdóttur,
og þremur sonum þeirra, tveggja,
sex og níu ára, aftur á heimaslóðir.
Jóhann Níels á og rekur fyrir-
tækið Karm, glugga og hurðir ehf.
ásamt Eyþóri Sigurólasyni. Þeir eru
báðir á fullu í hjólreiðum og saman
í hjólahópi sem hjólar saman á
hverju mánudagskvöldi, allan
ársins hring, hvernig sem viðrar.
„Ég hjólaði alltaf mikið sem
krakki og unglingur, en tók pásu
Í upphafi skyldi
endinn skoða
Jóhann Níels Baldursson er í hjólahópi sem hjólar saman á hverju mánudags-
kvöldi allan ársins hring, hvernig sem viðrar. MYND/AÐSEND
Við bestu aðstæður er brugðið á leik. Hér er prjónað á hjarni.
Þegar göslað er
í púðursnjó er
oft stutt í næstu
byltu. Þá er gott
að mun þægi-
legra er að lenda
í púðursnjónum
en á hjarni eða
auðri jörð.
um það bil um það leyti sem ég fór
í framhaldsskóla. Ætli bílprófið
hafi ekki spilað eitthvað inn í þar.
Svo dró æskufélagi minn, Bergur
Benediktsson, mig aftur á fjalla-
hjól í kringum 2010. Árið 2014 fór
ég svo að vinna hjá Lauf og þar
kynntist ég fyrst breiðhjólunum (e.
Fat bike). Það var þá sem ég fór að
hjóla daglega til og frá vinnu.
Ýmist á fjöllum eða í bænum
En hvernig kom það til að Jóhann
fór að stunda hjólreiðar að vetrar-
lagi?
„Fljótlega eftir að ég flutti aftur
til Akureyrar vorum við orðnir 4-5
félagarnir sem áttum breiðhjól. Við
ákváðum þá að taka frá mánudags-
kvöld og skella okkur út að hjóla,
sama hvernig viðrar. Þetta var í
nóvember 2018 og við höfum varla
misst úr mánudag síðan. Það hefur
aðeins fjölgað í hópnum og við
erum 15 breiðhjólarar í dag.
Það sem við gerum aðeins öðru-
vísi en flestir er að við erum að
fara svipaðar leiðir og við förum
á sumrin á fjallahjólum, en um
hávetur er það á breiðhjólum. Við
klöngrumst sem sagt upp fjöll
og hóla með hjólin, í þeirri von
að geta hjólað niður. Ef það er of
djúpur púðursnjór til að hjóla á
þessum helstu fjallahjólaleiðum
höfum við búið til innanbæjartúra
þar sem við þræðum bröttustu
brekkur bæjarins, yfirleitt meira á
hausnum en hjólinu,“ segir Jóhann
brosandi.
Jóhann segir það frábært við
Akureyri hve er stutt í góðar fjalla-
hjólaleiðir og segir hópinn vera
mikið á svæðinu fyrir ofan og inni í
Kjarnaskógi, Hlíðarfjalli, Fálkafelli
og þar fram eftir götunum.
En hvað er svona gott við hjól-
reiðar um hávetur?
„Í raun alveg það sama og hjól-
reiðar að sumri til. Útivistin, í
bland við smá adrenalín, er klassa
blanda. Svo er reyndar mun þægi-
legra að detta af hjólinu á veturna.
Svo opnast allar leiðir fyrir
hjólin ef það myndast gott hjarn.
Þá er hægt að komast á staði sem
eru jafnvel ófærir á sumrin,“ segir
Jóhann.
Hvernig útbúnað þarf svo í hjól-
reiðar að vetri til í snjó, drullu og
hálku?
„Í raun þarftu bara hjólið sem þú
átt, góð nagladekk, ljós og hlífðar-
föt eftir veðri. Þá ertu klár í þessar
hefðbundnu samgönguhjólreiðar
og ruddar leiðir. Það er ekki fyrr en
þú ert farinn að fara utan alfara-
leiða sem búnaðurinn þarf að vera
sérhæfðari,“ segir Jóhann. „Við
erum allir á breiðhjólum með vel
negld dekk, til að fá meira flot og
grip í snjó. Einnig erum við yfirleitt
á ferðinni í myrkri og í misgóðu
skyggni, þannig að við erum allir
með mjög öflug hjólaljós.“
Hafa skynsemi og síma með
Er ekki mikilvægt að undirbúa
vel hjólaferðir við misjafnar
aðstæður?
„Ja, er ekki alltaf sagt að í upp-
hafi skyldi endinn skoða? Okkur í
hópnum finnst mjög mikilvægt að
enda á að fá okkur 1-2 bjóra í lok
hjólreiðatúrs og fara yfir hetjusög-
urnar og stærstu bylturnar. Okkar
undirbúningur snýr því yfirleitt að
því hvar við ætlum að enda í bjór.
Vissulega er til bóta að skoða
aðeins veður síðustu daga og
ákveða leiðarval eftir því hvar
bestu aðstæðurnar eru líklegastar.
Svo er sjálfu sér er allt í góðu lagi að
vera einn á ferð í styttri dagtúrum.
Bara að láta einhvern vita hvert þú
ert að fara og taka símann og skyn-
semina með. Þetta er bara miklu
skemmtilegra með öðrum þannig
að ég er ekki mikið að fara einn.“
Jóhann segir mörg skemmtileg
atvik hafa orðið í hjólatúrum hóps-
ins og oft sé skemmtilegast þegar
allt gangi á afturfótunum.
Gerist alltaf eitthvað misgáfulegt
„Einu sinni ákváðum við að fara
upp í Hlíðarfjall í afleitri spá. Það
var hvasst og mikil úrkoma svo við
ætluðum að nýta okkur skíða-
brautirnar í smá brun. Í ljós kom að
það hafði snjóað töluvert meira en
við gerðum ráð fyrir og langt síðan
brautir voru troðnar, þannig að
við þurftum að halda á hjólunum,
vaðandi snjó upp í klof, alla leið
upp í Strýtuskála. Þegar þangað
var komið reyndum við hjóla niður
en snjórinn var allt of djúpur. Við
enduðum því með að halda á hjól-
unum niður aftur. Afleitur hjólatúr
en við höfum sennilega sjaldan
hlegið meira að okkur sjálfum.
Þessi hópur samanstendur
einfaldlega af ofvöxnum börnum
þannig að það gerist alltaf eitthvað
misgáfulegt og það er eitt af því
sem gerir þetta svo skemmtilegt,“
segir Jóhann Níels Baldursson að
lokum, kankvís á svip. n
4 kynningarblað A L LT 11. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR