Fréttablaðið - 11.02.2022, Qupperneq 17
Útilíf er með frábært úrval
af útivistarfatnaði, skíðum,
snjóbrettum og tilheyr-
andi búnaði frá þekktum
merkjum og þar er nú boðið
upp á 20% afslátt af skíða-
pökkum sem innihalda skíði
eða bretti, skó og bindingar
og 20-30% afslátt af skíða-
fatnaði.
„Útilíf var stofnað árið 1974 og er
því fyrir löngu búið að festa sig
í sessi og orðið þekkt fyrirtæki
í skíðabransanum hér á Íslandi.
Við fluttum úr Glæsibæ hingað í
Smáralind fyrir nokkrum árum
og erum búin að setja upp glæsi-
lega skíða- og útivistardeild, þar
sem við bjóðum upp á mjög gott
úrval af slíkum vörum,“ segir Gauti
Sigurpálsson, vörustjóri skíða- og
útivistardeildar Útilífs.
„Sérstaða okkar er mjög gott
úrval, góð þjónusta og mikil
þekking á vörunum sem við erum
að selja. Þeir sem starfa í skíðadeild
hafa mikla reynslu og þekkingu
á öllu sem viðkemur búnaði sem
til þarf,“ segir Gauti. „Við erum
með skíðaverkstæði til að sinna
viðgerðum á skíðum, snjóbrettum
og skíðaskóm og fleira. Verkstæðið
hefur verið starfrækt frá stofnun
Útilífs.“
Vandaðar vörur frá
þekktum merkjum
„Við bjóðum upp á skíði og
skíðaskó frá mjög skemmtilegum
og þekktum merkjum. Við erum
með skíði og skíðaskó frá Rossig-
nol, skíði frá Blizzard og Armada,
fjallaskíðaskó frá Tecnica og
skíðaskó frá Nordica,“ segir Gauti.
„Við erum líka með gott úrval af
skíðafötum frá The North Face og
Rossignol, en það má segja að það
sé eiginlega stærsta merkið okkar
í skíðunum. Við bjóðum upp á
mikið úrval af búnaði frá Rossignol,
sem er eitt besta merki sem völ er
á. Nýjung í vöruúrvali hjá Útilífi er
gönguskíðafatnaður frá Rossignol.
Við erum með gott úrval af
fjallaskíðum og búnaði tengdum
fjallaskíðamennsku, til dæmis
fjallaskíðabakpoka frá Ortovox,
sem eru mjög vinsælir hjá þessum
hópi. Síðustu ár höfum við líka
lagt áherslu á að bjóða upp á
gott úrval af gönguskíðum, bæði
brautarskíðum og ferðaskíðum,
eða stálkanta skíðum,“ segir Gauti.
„Vinsælustu gönguskíðin okkar
eru frá Rossignol og það eru svo-
kölluð skinn skíði sem eru vinsæl,
ferðaskíðin, eða stálkantagöngu-
skíðin, eru einnig vinsæl. Þau
henta fyrir erfiðari ferðir eins og
Allt sem þarf fyrir vetraríþróttir á einum stað
Örn Hjálmarsson og Gauti Sigurpálsson starfa í skíða- og útivistardeild Útilífs og búa yfir mikilli reynslu og þekkingu
á búnaðinum sem er í boði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Útilíf býður upp á allt sem þarf fyrir snjóbretti, meðal annars brettaskó frá
Northwave sem eru mjög vandaðir og góðir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Útilíf býður
upp á útivistar-
fatnað frá The
North Face,
sem hentar
sérstaklega vel
við íslenskar
aðstæður.
Um þessar mundir er 20-30% af-
sláttur af skíðafatnaði í Útilífi.
ALLT FYRIR
SKÍÐAFÓLK
áhuga á að prófa snjóbretti upp úr
7-8 ára aldri.“
Frábært fjölskyldusport
„Á síðustu 3-4 árum hefur orðið
sprenging í vinsældum skíðaiðk-
unar og þessar vörur hafa aldrei
verið vinsælli. Ástæður þess tel ég
vera að fleiri eru að stunda utan-
vegahlaup og hjólreiðar og þetta
fólk fer oft á skíði á veturna, bæði
til að fá hreyfingu og afþrey-
ingu,“ segir Gauti. „Þetta tengist
líka Landvættunum, þar sem fólk
stundar utanvegahlaup, gengur á
gönguskíðum, hjólar og syndir. Það
er að minnsta kosti alveg augljóst
að gönguskíði njóta gríðarlegra
vinsælda, við sjáum það bæði á
sölunni okkar og því að það eru
haldin skíðanámskeið um nánast
hverja einustu helgi hér og fyrir
norðan og á Ísafirði, sem eru alltaf
fullbókuð.
Það hefur líka orðið almenn
aukning á útivist hjá Íslendingum,
sérstaklega eftir að fólk hætti að
geta ferðast jafn mikið til útlanda.
Þá fór fólk frekar að heimsækja
eigið land. Þetta er góð hreyfing,
holl útivist og oft fara vinahópar
saman á skíði eða skíðanámskeið,“
segir Gauti. „Skíði eru líka frábært
fjölskyldusport, það er voða gaman
að fara saman upp í fjall, renna sér
nokkrar ferðir og fá sér kakó. Svo er
líka hægt að vera á gönguskíðum
fram eftir öllum aldri, svo þetta
hentar öllum aldurshópum.“
Afsláttur af búnaði og fatnaði
„Núna er rétti tíminn til að byrja
á skíðum eða endurnýja gamlan
búnað, því febrúar og mars er yfir-
leitt aðaltíminn í skíðasportinu,
sérstaklega marsmánuður, þegar
sólin fer að hækka á lofti,“ segir
Gauti. „Fjallaskíðatímabilið tekur
svo yfirleitt við aðeins seinna,
hápunkturinn er í apríl og maí.
Í tilefni af þessu erum við að
bjóða 20% afslátt af skíðapökkum
sem innihalda skíði eða bretti, skó
og bindingar og 20-30% afslátt af
skíðafatnaði, þannig að nú er tím-
inn til að koma og kaupa búnað eða
fatnað,“ segir Gauti. Við eru með
útivistardeild þar sem við bjóðum
upp á útivistarfatnað frá The North
Face sem hentar sérstaklega vel við
íslenskar aðstæður, hvort sem fólk
vill föt fyrir fjallaferðir eða bara
góðan jakka til að skýla sér fyrir
íslenska vetrinum.“ n
Nánari upplýsingar má finna
á utilif.is, í síma 545-1500 og í
gegnum netfangið vefverslun@
utilif.is.
upp á Vatnajökul. Svo er nýjung
sem hefur verið að ryðja sér til
rúms sem er svokölluð „hybrid“
skíði, en þau eru blanda af brautar-
og stálkanta skíðum. Þau henta
fólki til dæmis í bústaðinn eða
styttri ferðir.
Við bjóðum líka upp á snjóbretti
frá Rossignol og Drake og bretta-
skó frá Northwave, sem er mjög
vandaður og góður búnaður,“ segir
Gauti. „Snjóbrettin eru vinsælli
hjá yngri kynslóðinni, en oft byrja
krakkarnir á skíðum og fá svo
ALLT kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 11. febrúar 2022