Fréttablaðið - 11.02.2022, Side 23
Hún stillir vinkon-
unum þremur upp
sem táknmyndum, en
gleymir ekki að þær
eru persónur með sál
og fortíð.
LEIKHÚS
Ein komst undan
Caryl Churchill
Borgarleikhúsið
Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir
Leikarar: Kristbjörg Kjeld,
Margrét Ákadóttir, Margrét
Guðmundsdóttir og Sólveig
Arnarsdóttir
Leikmynd og lýsing: Egill
Ingibergsson og Móeiður
Helgadóttir
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Tónlist: Garðar Borgþórsson
Hljóðmynd: Þorbjörn
Steingrímsson
Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir
Aðstoðarleikstjóri: Halla
Káradóttir
Sigríður Jónsdóttir
Þrjár konur sitja í garði og skrafa,
ein bætist við hópinn og fer síðan.
Framvinda Ein komst undan eftir
Caryl Churchill er ekki flóknari,
en leynir svo sannarlega á sér.
Töfrarnir liggja nefnilega í samtöl-
unum og því sem er ekki sagt. Eftir
töluverðar tafir var sýningin í leik-
stjórn Kristínar Jóhannesdóttur
frumsýnd í Borgarleikhúsinu
síðastliðinn föstudag.
VI
heilu heimarnir í vasanum
LENA
svolítið áhyggjufull yfir Kevin og
Mary, þau segja aldrei neitt elsku-
legt við mig
SALLY
en engin veit neitt
MRS J
ef þú bara vissir hvað gengur á
Loksins! Loksins fá íslenskir
áhorfendur að komast í kynni
við Caryl Churchill á leiksviðum
landsins, eitt besta núlifandi
leikskáld Englands, sem hefur
alltaf farið síðan eigin leiðir.
Einungis eitt verka hennar hefur
verið tekið til sýningar í atvinnu-
leikhúsi hérlendis, en það var
Klassapíur, frumsýnt fyrir nærri
fjörutíu árum. Texti Churchill er
þeim kostum búinn að lifna við í
munni leikara, þannig að stundum
neistar af. Ein komst undan er um
klukkutími að lengd, barmafull af
dramatík, húmor og hugmyndum.
Samtölin eru ekki orðmörg en eins
og sjá má hér að ofan eru þau ávallt
innihaldsrík. Við erum stödd í eins
konar hliðarheimi þar sem fortíð
og framtíð skarast, heimurinn er
á vonarvöl og umhverfisváin er
yfirþyrmandi. Þýðing Kristínar
Eiríksdóttur er ein af hennar bestu:
nákvæm, taktvís og bráðfyndin.
Stundum þarf nefnilega ljóðskáld
til að þýða leiktexta.
Kraftur og listræn orka
Í leiklýsingu stendur: „Þær eru
allar að minnsta kosti sjötugar,“ og
á það við persónur verksins. Þær
Kristbjörg Kjeld, Margrét Áka-
dóttir og Margrét Guðmundsdóttir
taka áhorfendur í kennslustund í
hlustun og kómískum tímasetn-
ingum. Aldur er nefnilega afstæður,
líka á leiksviðinu. Leikrænn kraftur
og listræn orka koma nefnilega að
innan, ekki með æsingi. Þær Vi,
Sally og Lena birtast áhorfendum
sem aldagamlar vinkonur. Þær
klára setningar hverjar annarra,
segja alltaf sömu sögurnar, gleyma,
geyma leyndarmál og kýta.
Kristbjörg leikur hina
dularfullu Vi. Konu sem yfirgaf
verndarhjúp vinahópsins, ekki
endilega sjálfviljug. Fortíðin
kvelur hana. Hún reynir sitt besta
til að vera jákvæð og horfa fram
í tímann. Kristbjörg gerir þetta
listavel, enda ein besta leikkona
landsins þrátt fyrir að nálgast
níræðisaldurinn. Margrét Áka-
dóttir lék einnig í uppsetningu
Alþýðuleikhússins á Klassapíum,
hinu leikriti Churchill sem hefur
ratað upp á svið hérlendis. Hún
stimplar sig rækilega aftur á
leiksviðið í hlutverki Sally, sem
kallar ekki allt ömmu sína nema
ketti, hún hatar ketti. Kvíðinn
kvelur hana, en hún felur hann
með snörpum tilsvörum. Sú
þriðja í vinahópnum er Lena sem
Margrét Guðmundsdóttir leikur.
Þunglyndið kvelur hana. Hún
er kannski lágvaxin en ekki lítil
í leik, enda á Lena erfiðast með
að fela vanlíðan sína. Þær fá allar
hver sína einræðu til að leika sér
með en blómstra í samtölunum
sín á milli.
Gesturinn, frú Jarret, er leikin
af Sólveigu Arnarsdóttur sem á
heiður skilið fyrir að stökkva inn
í hlutverkið með nánast engum
fyrirvara. Hún leysir þetta erfiða
hlutverk konu sem er alltaf á
skjön, af öryggi og mýkt. Einræður
hennar sprengja upp hið persónu-
lega og hún segir frá þeim ólýsandi
hryllingi sem virðist hafa ausist
yfir mannkynið. Hungursneyð,
hamfaraflóð og hryllingur.
Kristín í essinu sínu
Leikstjórinn Kristín Jóhannes-
dóttir er hér í essinu sínu og á
heimavelli, með efni í hönd-
unum sem hentar bæði hennar
fagurfræði og nálgun. Hún stillir
vinkonunum þremur upp sem
táknmyndum, en gleymir ekki
að þær eru persónur með sál og
fortíð. Einhver samkvæmisleikur
virðist vera í gangi sem gesturinn
verður að stíga inn í og læra á. En
er skynsamlegt að læra af eldri
kynslóðinni eða verða hinar nýju
að feta sína eigin leið?
Upprunalega enska upp-
setningin staðsetti persónurnar í
hversdagsleikanum, en svo er alls
ekki hér. Hönnunarteymið Egill
Ingibergsson og Móeiður Helga-
dóttir sjá um leikmynd og lýsingu.
Þau umkringja konurnar háum
veggjum, sem gætu allt í senn
verið í kringum bakgarð, fangelsi,
kirkjugarður eða útrýmingarbúðir.
Lýsingin virkar ekki alveg jafn vel,
þá sérstaklega hliðarkastararnir
sem lýsa upp einræður frú Jarret,
en þeir fletja heiminn út frekar en
að stækka. Garðar Borgþórsson sér
um tónlistina og Þorbjörn Stein-
grímsson um hljóðmyndina, en
hvoru tveggja þyrfti að vera meira
afgerandi, enda nóg pláss inni í
þessari veröld fyrir stuðandi hljóð-
heim. Búningar Stefaníu Adolfs-
dóttur bera af, mótvægi við litlaust
umhverfið. Hver karakter hefur
sinn persónulega stíl, en búningar
þrenningarinnar bera samt keim
af einkennisbúningum, sem er
sjaldan góðs viti.
Ein komst undan endar á byrjun-
inni. Mun hringrásin halda áfram?
Mun eftirmiðdegið endalausa vara
að eilífu? Eða er þetta byrjunin á
endinum? Leikhús Churchill fjallar
ekki um svör heldur spurningar,
ekki um afstöðu heldur fjöl-
breytileika. Setningar enda ekki
á punktum heldur flæða áfram.
Hræðileg reiði kraumar undir. n
NIÐURSTAÐA: Leikkonurnar
bjóða til veislu þar sem te, tor
tíming og dúndrandi fínn leikur
eru á boðstólum.
Kjarnorkukonur í Borgarleikhúsinu
Leikkonurnar bjóða til veislu, segir gagnrýnandinn um Ein komst undan. MYND/AÐSEND
kolbrun@frettabladid.is
Þóra Sigurðardóttir sýnir í sal
félagsins Íslensk grafík, Hafnarhúsi.
Sýningin verður opnuð á morgun,
12. febrúar, og stendur til 6. mars.
Á sýningunni eru ætingar, prent-
aðar af málmplötum á bómullar-
pappír og teikningar unnar á
hörstriga.
Þóra Sigurðardóttir hefur starfað
við listkennslu, sýningarstjórn og
var skólastjóri Myndlistaskólans í
Reykjavík um árabil. Hún rekur nú
ásamt Sumarliða Ísleifssyni sýning-
arrými að Nýp á Skarðsströnd. Verk
Þóru eru í eigu opinberra safna og
einkasafna hér á landi og erlendis. n
Þóra sýnir grafík
og teikningar
Eitt af verkum Þóru á sýningunni.
kolbrun@frettabladid.is
Nú stendur yfir ljósmyndasýningin
Brooklyn, í Borgarbókasafninu
Spönginni í Grafarvogi. Hrönn
Axelsdóttir ljósmyndari bjó í Brook-
lyn í New York um síðustu aldamót,
í hverfi sem er á mörkum Park Slope
og Prospect Hights, þar sem fjöl-
breytileiki mannlífsins blómstrar.
Hrönn sýnir í fyrsta sinn 25 svart-
hvítar myndir, sem hún tók fyrir
framan innganginn á fjölbýlishúsinu
sem hún bjó í. Myndatakan spann-
aði 12 klukkustundir, vegfarendur
sem gengu fram hjá húsinu voru
beðnir um að sitja fyrir og ein mynd
tekin, stundum af einstaklingum,
stundum litlum hópum, hver og
einn réði því hvernig hann stillti sér
upp. Við hverja töku var skráð tíma-
setning og nöfn fyrirsætanna.
Svart-hvít Brooklyn í Spönginni
Einn þeirra vegfarenda sem Hrönn myndaði. MYND/AÐSEND
Hrönn hefur haldið
einkasýningar bæði
hér á Íslandi, í Banda-
ríkjunum og Mexíkó.
Amaconsort hlaut
fyrstu verðlaun í hinni
virtu alþjóðlegu Van
Wassenaer keppni árið
2021.
Verk Þóru eru í eigu
opinberra safna og
einkasafna.
kolbrun@frettabladid.is
Á tónleikum 15:15 tónleikasyrp-
unnar í Breiðholtskirkju á morgun,
laugardaginn 12. febrúar, f lytur
barokktónlistarhópurinn Amacon-
sort efnisskrá undir yfirskriftinni
Amasque.
Lea Sobbe (blokkflautur), Lena
Rademann (barokkfiðla og víóla),
Martin Jantzen (gömbur og barokk-
selló) og Halldór Bjarki Arnarson
(semball og orgel) eru alþjóðlega
virkir tónlistarmenn og margfaldir
verðlauna- og styrkhafar, sem hafa
öll lært við Schola Cantorum Basili-
ensis í Sviss.
Amaconsort hlaut fyrstu verð-
laun í hinni virtu alþjóðlegu Van
Wassenaer keppni árið 2021. Þar
að auki hreppti hópurinn sérstök
verðlaun Bæverska útvarpsins í
Deutscher Musikwettbewerb 2019,
og var sama ár prýddur titlinum
„Hirðhljómsveitin í Rheinsberg“
sem gerði þeim kleift að halda
reglulega tónleika árið um kring
í norðurþýsku höllinni Schloss
Rheinsberg. n
Amaconsort í
Breiðholtskirkju
Flytjendur eru margverðlaunaðir
listamenn. MYND/AÐSEND
Hrönn lærði ljósmyndun við
Rochester Institute of Technology
í New York-fylki. Hún hefur haldið
einkasýningar bæði hér á Íslandi, í
Bandaríkjunum og Mexíkó. Hrönn
hefur einnig tekið þátt í f jölda
hópsýninga. Sýningin stendur til
26. febrúar. n
FÖSTUDAGUR 11. febrúar 2022 Menning 15FRÉTTABLAÐIÐ