Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.08.1941, Síða 8
yður vandlega lesin ásamt bókum mínum, því það er
mitt hjartfólgna áhugamál að reyna að betra hið
vitstola grimdaræði, hernaðarbrjálæði, tortrygni og
hatur meðbræðra minna, svo varanlegur friður kom-
ist á í heimi hér, sem og í sálarlífi jarðarinnar
barna. — Pví miður eru ýmsir útsendarar myrkra-
valdsins,, öfundar, haturs, ágirndar og ilsku á trú-
arsnauðan en diplomatiskan hátt, hér starfandi með-
al Islendinga og öðrum þjóðum, sem sjálfum sér óaf-
vitandi vinna að því að brjóta niður kristindóm og
siðgæði og frið í heiminum, en það er einmitt þess-
um villuráfandi mönnum, sem þarf að sýna kærleika
svq að þeir sjái að þeir eru, elskaðir, eins og Krist-
ur elskaði þá, sem ofsóttu hann, húðstrýktu og kross-
festu. Mér hefur verið bægt frá því að birta nokk-
uð frá mér í útvarpinu og blöðum bæjarins, að und-
anskildu blaðinu »Stormur«, hvorki friðarboðskap
minn né annað. Nú við forsetakosningarnar hjá »Vik-
unni« hefur stórkostleg sviksemi átt sér stað,, sem
talið er, og ég er sannfærður um, að Jónas Jónsson,
alþingismaður frá Hriflu, eða sendisveinar, hans hafi
valdið. En samkvæmt áskorunum og tilmælum f jölda
manna og kvenna, bæði hérlendis og erlendis hef ég
ákveðið að gefa mig fram fyrir væntanlegan fyrsta
forseta Islands. Sannfærður um að fá flest atkvæði
og að það yrði til blessunar fyrir Island og önnur
lönd.
Með kærri vinar- og friðarkveðju,
Jóhannes Kr. Jóhamtesson,
Þórshamri, Templarasundi 5, Reykjavík.