Friðarboðinn og vinarkveðjur - 15.05.1947, Blaðsíða 3

Friðarboðinn og vinarkveðjur - 15.05.1947, Blaðsíða 3
3 hans heitir Luidand Cam Nox. Skuluð þér eindregið láta sendimann hafa svar til okkar. Einlægnislega, Virðingarfyllst, Mr. and Mrs. Roosevelt. Einkaritari: Leon Tampica. Aritun á umslagi bréfsins: Hr. Dr. hon causa Jóhannes Kr. Jóhannesson Roosevelt hennar hátign persónesa yfir íslandi. Til heimilis, Sólvallagata 20, Reykjavík ísland. Aritun aftan á umslagi bréfsins: Fr. Mr. Mrs. Roosevelt Washington, U. S. A. Landssími Islands. SÍMSKEYTI ÁRÍÐANDI Reykjavík, 12. febrúar 1945. Forsetahjón Bandaríkjanna, Franklin Th. D. Roosevelt og Elinóra Roosevelt, Washington. Hjartkæru kjörforeldrar mínir og væntanlegir tengda- foreldrar mínir. Eg hef með þakklæti móttekið 2 bréf ykkar frá Hvíta Húsinu í Washington dags. 27. nóv. og 26. des- ember 1944 (á annan Jóladag), frá milligöngumönnum og sendiboðum okkar. Eg er innilega samþykkur öllum áformum ykkar sem um ræðir í jólabréfi ykkar til mín, skrifuðu af einka- ritara ykkar, um komu ykkar til Islands á þessu ári og giftingu mína í sambandi við hingaðkomu ykkar.

x

Friðarboðinn og vinarkveðjur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Friðarboðinn og vinarkveðjur
https://timarit.is/publication/1666

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.