Fréttablaðið - 25.02.2022, Page 1

Fréttablaðið - 25.02.2022, Page 1
3 9 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 2 Óvenjulegir tónleikar Þrjú tonn af snilldartextum Menning ➤ 18 Lífið ➤ 20 Notaðu þetta frábæra tækifæri og fáðu þér vel útbúinn fjórhjóladrifinn Eclipse Cross PHEV tengiltvinnbíl með öllum þeim kostum sem hugurinn girnist – og meira til. Virðisaukinn er farinn út í bláinn! Við fellum niður 480.000 kr. VSK frá áramótum!* *Að sjálfsögðu greiðir Hekla öll gjöld og virðisaukaskatt af bílum til Ríkissjóðs. 480.000 kr. lækkunin á Mitsubishi Eclipse Cross er alfarið á kostnað Heklu. HEKLA · Laugavegi 170-174 · mitsubishi.is/eclipse lyaver.is Netapótek Lyavers Forsætisráðherra, Banda­ ríkjaforseti og fleiri fordæma þá ákvörðun Rússlandsfor­ seta að ráðast inn í Úkraínu. arib@frettabladid.is ÚKRAÍNA „Pútín hefur ráðist á grundvöll alþjóðafriðar. Allur heimurinn sér núna hvað Pútín og bandamenn hans standa fyrir,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti í ávarpi sínu í gær í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. „Hernaður Pútíns gegn Úkraínu mun verða Rússlandi dýrkeyptur, bæði efnahagslega og í samskipt­ um við aðrar þjóðir. Við munum sjá til þess. Pútín verður úrhrak á alþjóðavettvangi.“ Vladímír Pútín Rússlandsforseti tilkynnti um hernaðaraðgerðir í austurhluta Úkraínu í fyrrinótt og bar fyrir sig að hann væri að afvopna og afnasistavæða landið, hann ætlaði sér ekki að hernema það. Staðfest er að hátt í 60 hafi látist og 200 særst eftir árásir Rússa. Úkraínumenn höfðu í gær skotið niður f imm f lugvélar og þyrlu. Ráðist var á 70 skotmörk í Úkraínu í gær. Helstu átökin voru í austurhluta landsins en einnig hafa borist fregnir af skærum nærri Kænu­ garði og hafnarborgunum Odessa og Maríupol. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna telur að meira en hundrað þúsund hafi f lúið heimili sín vegna átakanna, þung umferð var í vesturátt frá Kænugarði í gær. „Þetta er skýrt brot á alþjóða­ lögum og á sér enga réttlætingu,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætis­ ráðherra. Jens Stol ten berg, fram kvæmda­ stjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði að varnarmálaáætlun hefði verið virkjuð. Boris Johnson, forsætisráð­ herra Bretlands, tók í sama streng og Biden og lagði mikla áherslu á harðar efnahagsaðgerðir, fór hann hörðum orðum um Pútín í ávarpi. Kínverjar hafa ekki fordæmt aðgerðir Rússa en kallað eftir að allir aðilar sýni stillingu í við­ brögðum sínum. Mikhaíl V. Noskov, sendiherra Rússlands á Íslandi, segir mark­ miðið eingöngu að vernda héruðin Donetsk og Lúhansk sem hafa lýst yfir sjálfstæði. Stjórnmálaskýrendur telja til­ gang Pútíns með innrásinni marg­ þættan. Innrás Rússa í Úkraínu getur valdið verðfalli á fasteigna­ og skuldabréfamörkuðum víða um lönd. Framferði Rússa var mótmælt víða um heim í gær, þar á meðal hér á landi. SJÁ SÍÐUR 2, 6 OG 8 Þjóðir heims fordæma stríð Vladímírs Pútíns Mótmælendur fjölmenntu fyrir framan rússneska sendiráðið á Túngötu í Reykjavík í gær til að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu, líkt og gert hefur verið víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.