Fréttablaðið - 25.02.2022, Page 4

Fréttablaðið - 25.02.2022, Page 4
Meirihluti Sjálfstæðis- flokksins heldur því fram að hann reki sveitarfélagið með ábyrgri fjármálastjórn- un en svo er hann ítrekað með svona gjörninga. Sara Dögg Svan­ hildardóttir, oddviti Garða­ bæjarlistans Hart er deilt um leigusamn- inga Garðabæjar við Terra um einingahús fyrir leikskóla í Urriðaholti. Forseti bæjar- stjórnar á hlut í Terra en for- maður bæjarráðs segir útboð hafa tafið málið um allt að ár. kristinnhaukur@frettabladid.is GARÐABÆR Í annað sinn á innan við ári hefur Garðabær leigt gáma- einingar af Terra án útboðs. Garða- bæjarlistinn gagnrýnir meirihluta Sjálfstæðisf lokksins harðlega og sakar hann um fúsk. Forseti bæjar- stjórnar, Björg Fenger, á hlut í Terra. „Þetta er bara fúsk. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins heldur því fram að hann reki sveitarfélagið með ábyrgri fjármálastjórnun en svo er hann ítrekað með svona gjörninga,“ segir Sara Dögg Svanhildardóttir, oddviti Garðabæjarlistans. Forsagan er sú að Urriðaholts- hverfið hefur vaxið hratt og um 100 leikskólabörn þurft á vistun utan hverfisins að halda. Bygging nýs leikskóla hefur tafist og brúa á bilið með einingahúsum. Í ágúst var greint frá sjö ára leigu- samningi við Terra einingar um færanlegar einingar fyrir leikskóla. Bókað var á fundi bæjarstjórnar að leiga á fasteignum væri ekki útboðs- skyld. Var samningurinn samþykkt- ur með 7 atkvæðum gegn 3. Björg Fenger vék sæti við afgreiðsluna. Mannlíf sagði frá því að Björg ætti stóran hluta í Terra. Hún sagðist myndu fylgja reglum og víkja er samningurinn kæmi á borðið. Á þriðjudag var svo fjallað um annan leigusamning við Terra ein- ingar í bæjarráði Garðabæjar. Hafði bæjarstjórn óskað eftir tilboðum frá bæði Terra og Stólpa. Leiguverð Stólpa var 2,3 milljónir á mánuði Segir Garðabæ brjóta útboðsreglur með kaupum af félagi bæjarfulltrúa Uppbygging leikskóla hefur ekki fylgt uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Urriðaholti. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANDRI en 2,7 hjá Terra en söluverðið hjá Stólpa hærra eftir tvö ár. Sara Dögg hefur gagnrýnt samn- inginn. Einnig að lögfræðiálit bæj- arins um lögmæti þess að sleppa útboði hafi ekki verið opinberað. Hún hafi fyrir tilviljun komist að tilvist þess og hafi fengið að sjá það bundin trúnaði. „Lög um opinber innkaup kveða á um að öll kaup á vöru eða þjónustu eftir 45 þúsund krónur beri að bjóða út. Þetta er ekki f lókið,“ segir Sara Dögg. Eins og Fréttablaðið greindi frá var Garðabær talinn skaðabóta- skyldur vegna brota á útboðsreglum um rafvirkjaþjónustu í nóvember. Samkvæmt Ásgeiri Þorlákssyni, framkvæmdastjóra Stólpa, mun fyr- irtækið ekki fara með málið lengra þó að tilboði Terra hafi verið tekið. „Þetta eru ekki útboðsskyld við- skipti, hvorki að fá einingarnar á leigu né til kaups. Það var farið í verðkönnun þar sem allir aðilar á markaðinum taka þátt, sem eru ekki margir. Útboð hefði tafið málið um 6 til 12 mánuði. Það er langur tími fyrir fjölskyldur sem vantar leikskólapláss,“ segir Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs. Áslaug segir ekki ákveðið hvort einingarnar verði keyptar þó að það hafi fylgt með í tilboðunum og hafi verið ástæða þess að tilboði Terra væri tekið. „Við töldum ekki ólík- legt að einingarnar yrðu í notkun lengur en tvö ár. Reynsla okkar er að það er gott að hafa lausar einingar við skóla því þegar hverfi eru að byggjast upp getur fjölgað mikið í skólum,“ segir Áslaug. Aðspurð segir Áslaug lögfræði- álit algeng sem hluta af gagnaöflun er embættismenn undirbúi mál og tillögur fyrir kjörna fulltrúa. „Ef kjörnir fulltrúar biðja um gögn þá eru þau alltaf aðgengileg.“ ■ ÍÞRÓTTAVIKAN MEÐ BENNA BÓ FÖSTUDAGA KL. 21.00 Benedikt Bóas fær til sín góða gesti til að ræða íþróttavikuna sem leið og skoðar það helsta sem gerðist á léttu nótunum. bth@frettabladid.is ORKUMÁL Skoðanir stjórnarþing- manna á því hvort æskilegt sé að selja hlut í Landsvirkjun eru skiptar. „Landsvirkjun verður ekki seld, hvorki að hluta né sem heild,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra. Guðrún Hafsteinsdóttir, verðandi ráðherra í ríkisstjórninni og núver- andi formaður efnahags- og við- skiptanefndar, talaði í Fréttablaðinu í gær fyrir sölu á 30 til 40 prósenta hlut í Landsvirkjun til lífeyrissjóða. Jóhann Páll Jóhannsson, sem situr í minnihluta efnahags- og við- skiptanefndar fyrir Samfylkinguna, segir það „afspyrnu vonda hug- mynd“ að einkavæða Landsvirkjun, selja hluta starfseminnar eða draga úr eignarhaldi ríkisins. Katrín segir sölu á hlut í Landsvirkjun ekki koma til greina Katrín Jakobsdóttir, forsætis­ ráðherra „Þetta er fyrirtæki sem við eigum saman og höfum trúað fyrir orku- auðlindum okkar. Arðurinn af nýtingu þeirra á að renna til þjóðar- innar,“ segir Jóhann. „Ég skil ekki hvernig nokkrum stjórnmálamanni getur dottið í hug, nú þegar rekstur Landsvirkj- unar hefur aldrei gengið betur, að selja þetta lykilfyrirtæki eða draga úr eignarhaldi ríkisins á því.“ Í svari til Fréttablaðsins segist Landsvirkjun ekki tjá sig um hug- myndir um breytt eignarhald. Hvað varði vatnsréttindi, sem prófessor við HÍ telur að þurfi að skila til ríkisins, gæti misskilnings. „Landsvirkjun hefur greitt fyrir þau vatnsréttindi sem fyrirtækið nýtir og greiðslur til landeigenda hafa verið mjög í samræmi við það sem til dæmis tíðkast í Noregi.“ ■ gar@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA „Ferðir ráðherra eða annarra einstaklinga með flugvél- um, þyrlum eða skipum sem Land- helgisgæslan hefur til umráða, í einkaerindum, eru alvarlega athug- unarverðar,“ segir Ríkisendurskoð- un í úttekt á Landhelgisgæslunni. Vísar Ríkisendurskoðun til þess er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi dómsmálaráðherra, var í ágúst 2020 sótt úr hestaferð í Reynisfjöru og f lutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til fundar í Reykjavík og aftur til baka. ■ Einkaþyrluferðir óforsvaranlegar Guðmundur Helgi Björgvins­ son, starfandi ríkisendurskoð­ andi benediktboas@frettabladid.is SORPHIRÐA Ruslatunnan verður ekki lengur sótt inn fyrir lóðarmörk verði hugmynd starfshóps um sam- ræmingu úrgangsflokkunar í sveit- arfélögum á höfuðborgarsvæðinu að veruleika. Víða í Evrópu sé á ábyrgð íbúa að koma sorpi út á gangstétt eða þann- ig að vegalengdin sé stutt fyrir þá sem sækja ruslið. „Sé vegalengdin ekki innan settra marka borga íbúar auka skrefagjald,“ segir í skýrslu sem lögð var fyrir umhverfis- og heil- brigðisráð borgarinnar. ■ Skrefagjald fyrir sorp verði innleitt 4 Fréttir 25. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.