Fréttablaðið - 25.02.2022, Page 8

Fréttablaðið - 25.02.2022, Page 8
17. febrúar 2022 ■ Bandaríkin vöruðu við því að Rúss- land væri á barmi þess að ráðast inn í Úkraínu í ljósi þess að herafli þeirra hafði ekki bakkað frá landa- mærum Úkraínu eins og krafist var. 3. janúar 2022 ■ Joe Biden fullvissaði Zelenskíj Úkra- ínuforseta um að Banda- ríkin myndu bregðast við af festu, réðust Rússar inn í Úkraínu. 17. desember 2021 ■ Rússar settu fram kröfur um að látið yrði af allri hern- aðarviðveru í Austur-Evrópu og Úkraínu og að engin fyrrum Sovétríki verði tekin inn í NATO. Aðdragandi innrásar Rússlands í Úkraínu • • • • • • • • • • • • • • • • • • • Nóvember 2021 ■ Gervihnatta- myndir sýndu hern- aðarupp- byggingu Rússa við landamæri Úkraínu. 24. febrúar 2022 ■ Víð tækar hernaðar að- gerðir Rússa hófust í Úkra- ínu á sama tíma og öryggisráðið fundaði. Þær voru for- dæmdar um allan heim. 7. desember 2021 ■ Bandaríkja- forseti varaði Rússa við víðtækum refsiaðgerðum yrði ráðist inn í Úkraínu. 10. janúar 2022 ■ Bandarískir og rússneskir ráðamenn hittust í Genf til að ræða diplómatískar lausnir. Við- ræður runnu út í sandinn. 24. janúar 2022 ■ NATO og banda- ríski herinn settu herafla í viðbragðsstöðu og efldu hern- aðarlega viðveru í Austur-Evrópu. Sendiráðsstarfs- fólk var kallað heim. 27. janúar 2022 ■ Stjórnvöld í Kína sýndu Rússum póli- tískan stuðning og sögðu að taka þyrfti lög- mætar öryggis- kröfur Rússa alvarlega. Febrúar 2022 ■ Vladímír Pútín neitaði því að inn- rás væri í undir- búningi og sakaði Bandaríkin um að hundsa öryggis- kröfur Rússlands. 8. febrúar 2022 ■ Macron Frakk- landsforseti hitti Pútín á maraþon- fundi í Moskvu og sagði blaðamönn- um að Rússland myndi ekki herða sig í deilunni. Kreml hafnaði því að samið hefði verið um slíkt. 10. febrúar 2022 ■ Utanríkisráð- herrar Bretlands og Rússlands hittust á fundi. Sergei Lavrov lýsti honum eins og samtali mállausrar manneskju við- heyrnarlausa. 11. febrúar 2022 ■ Bandaríkin fjölguðu her- mönnum í Póllandi um þrjú þúsund og fjöldi ríkja hvatti borgara sína til að yfir- gefa Úkraínu. 15. febrúar 2022 ■ Pútín sagðist reiðubúinn til að ræða við vest- rænu ríkin um hvernig vinda mætti ofan af deilunni en lagði áherslu á að mæta yrði kröfum Rússa. 18. febrúar 2022 ■ Alexander Lúkasj- enko forseti Hvíta- Rússlands fundaði með Pútín. 30.000 rússneskir her- menn eru í Hvíta- Rússlandi og héldu sameiginlegar heræfingar þar um síðustu helgi. 19. febrúar 2022 ■ Ráðamenn tveggja héraða í Úkraínu, Donetsk og Lúhansk sem njóta stuðn- ings Kremlar, tilkynntu aukinn her- viðbúnað. 21. febrúar 2022 ■ Pútín viðurkenndi sjálfstæði úkraínsku héraðanna Donetsk og Lúhansk og sendi herafla þangað til að „tryggja frið“. 22. febrúar 2022 ■ Þjóðarleið- togar ESB og NATO ræddu refsiaðgerðir. ■ Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman á neyðarfundi um stöðuna. 23. febrúar 2022 ■ Rússneskt herlið hóf innreið sína inn í Donbass í austurhluta Úkraínu, Bandaríkin og Evrópusambandið kynntu efnahagslegar refsiaðgerðir og Þjóð- verjar tilkynntu að gas- leiðslan Nordstream yrði ekki opnuð í bráð. Vending varð í innrás Rússa í gær þegar ljóst varð að innrásin snerist ekki bara um svæði aðskilnaðarsinna. Ofsahræðsla hjá íbúum. Ólík- legt að innrásin ógni öryggi Íslands. bth@frettabladid.is „Maður óttast að það gæti orðið stigmögnun, margir finna fyrir mikilli ónotatilfinningu, í versta falli gætum við verið að tala um Evr- ópustríð,“ segir Þórir Guðmunds- son, fyrrverandi starfsmaður Rauða krossins. Þórir bjó um árabil í Kasakstan og hefur einnig starfað sem fréttamað- ur í Úkraínu. Hann segir að ofsa- hræðsla hafi gripið um sig meðal íbúa Úkraínu. Fólk muni flykkjast að landamærum Póllands næstu daga og vikur. ESB þurfi að bregð- ast við þeirri miklu áskorun hvernig þeim mikla fjölda verði mætt. „Ég á von á því, af því að ég þekki undirbúning fyrir f lóttamanna- teymi, að menn séu farnir að skipu- leggja móttöku flóttamanna, farnir að tína til tjöldin í vörugeymslunum og útvega vistir.“ Þórir segir fjarri allri skynsemi að kalla Úkraínumenn nasista eins og talsmaður Pútíns hefur gert. Þótt einhverjir slíkir hópar hafi starfað fyrir átta árum séu íbúarnir gott fólk sem vilji tilheyra Evrópu. „Ég held að allir séu sammála um að Pútín fái ekki að komast upp með þetta,“ segir Þórir. „Það sem þarf að hafa í huga er að þarna er kjarn- orkuveldi sem ræðst á 40 milljóna Evrópuþjóð með sprengingum og skriðdrekum.“ Albert Jónsson, fyrr verandi sendiherra og sér fræðingur í alþjóðastjórnmálum, telur afar ólíklegt að Bandaríkjamenn eða alþjóðasamfélagið muni grípa til vopna vegna innrásar Rússa. Öryggisstefna Bandaríkjanna snúist um hvort ríki ógni Bandaríkjunum með beinum hætti. Svo sé ekki í þessu tilviki. „Rússland er ekki arftaki Sovét- ríkjanna í þessum skilningi,“ segir Albert. Hann segir að það tæki marga mánuði fyrir Bandaríkjamenn að f lytja heraf la til Evrópu. Hvorki Biden forseti sé yfirstjórn NATO hafi talað fyrir því. „Það yrði þriðja heimsstyrjöldin.“ Albert segir tilgang Pútíns með innrásinni margþættan. Rússar vilji ekki að Úkraína gangi í NATO eða ESB. Þá séu ónefnd þau mál sem varði aðskilnaðarsinna í austur- hluta Úkraínu. Það hafi komið á óvart hve langt Rússar gangi. Ákveð- in gírskipting hafi orðið í innrásinni um miðjan dag í gær. „Nú stefnir í umsátur um höfuð- borgina Kíev. Rússar eru að reyna að knésetja úkraínsku þjóðina, hrekja stjórnina frá löndum og leggja land- ið undir sig,“ segir Albert. Þótt Úkraína hafi ekki það vægi að stefni heimsfriði í hættu, skiptir Úkraína Rússa svo miklu máli að Albert segir að alþjóðlegar efna- hagsrefsingar gegn Rússum verði að vera mjög harkalegar. Afleiðingar verði margvíslegar utan Rússlands, svo sem hækkun olíuverðs og rís- andi verðbólga. „Svo lengi sem ekki kemur til átaka milli NATO og Rússlands verður engin breyting á stöðu Íslands, nema kannski aukin flug- umferð um Kef lavíkurf lugvöll,“ segir Albert. n Evrópustríð ekki útilokað en litlar líkur á þriðju heimsstyrjöldinni Búist er við stórfelldum flótta Úkraínumanna yfir landamæri Póllands. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA arib@frettabladid.is Minnst 400 mótmælendur voru handteknir í 38 borgum í Rússlandi í gær fyrir að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu. Lögreglumenn réðust gegn mótmælendum á Púskín- torgi í Moskvu í gær skömmu eftir að mótmælin hófust, sama endur- tók sig í Sankti Pétursborg. Yfirvöld í Rússlandi höfðu varað almenning við því að mótmæla. n Mótmælendur handteknir Þessi kona var handtekin á Púskín- torgi í Moskvu í gær. ninarichter@frettabladid.is Mótmælendur fjölmenntu fyrir framan rússneska sendiráðið í gær til að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu. Meðal mótmælenda var María, sem er frá Maríupol í Úkraínu og hefur búið á Íslandi í 21 ár. Hún segir hræðilegt að hafa vaknað við fréttir af stríði í heimalandinu. „En þetta er ekki nýtt fyrir mig. Þann 9. maí 2014 í Úkraínu í Maríupol og vaknaði við nákvæmlega þessa sömu skrið- dreka rétt hjá glugganum mínum,“ segir María. „Ég veit hvað ég er að tala um. Ég var þarna þennan hræðilega mánuð.“ María segist hafa verið í sambandi við vini og fjölskyldu í Úkraínu í allan dag. „Það eru allir fastir heima. Mamma er 79 ára og systir mín er 55 ára og þær eiga eignir þar. Það er ekki hægt að taka peninga út af reikning- um. Það er hægt að borga með reiðufé en það er ekki til staðar,“ segir María. „Ég vona að einhver stoppi þenn- an mann. Það er eina leiðin,“ segir hún. n Allir fastir heima Frá mótmælunum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Það sem þarf að hafa í huga er að þarna er kjarnorkuveldi sem ræðst á 40 milljóna Evrópuþjóð með sprengingum og skrið- drekum. Þórir Guð- mundsson 8 Fréttir 25. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐINNRÁS Í ÚKRAÍNU FRÉTTABLAÐIÐ 25. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.