Fréttablaðið - 08.03.2022, Side 4

Fréttablaðið - 08.03.2022, Side 4
Þau geta lært að lesa íslensku á sama tíma og við kennum þeim íslensku. Dr. Sigríður Ólafsdóttir, lektor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 WWW.ISBAND.IS • WWW.JEEP.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U F J Ó R H J Ó L A D R I F JEEP COMPASS LIMITED TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI 7.479.000 KR. ÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX. KOMDU OG REYNSLUAKTU! Jeep rafknúnu jepparnir henta íslenskum aðstæðum um allt land Langstærstur meirihluti inn- flytjenda er undir viðmiði þegar kemur að íslensku- kunnáttu. Lektor við Háskóla Íslands segir slæma íslensku- kunnáttu gera nemendum erfiðara fyrir. Mennta- málaráðuneytið segir þetta áhyggjuefni. birnadrofn@frettabladid.is MENNTAMÁL Í janúar voru 36 pró- sent fimmtán ára nemenda undir lágmarksviðmiði í lestri. Samkvæmt lesfimiprófum Menntamálastofn- unar hefur frá síðustu aldamótum um þriðjungur 15 ára nemenda verið undir lágmarksviðmiði í lestri. Niðurstöður PISA-könnunar- innar fyrir árið 2018 sýndu að einn þriðji hluti drengja hafði ekki lágmarksfærni í lesskilningi og helmingur nemenda af erlendum uppruna. Þá séu 92,5 prósent inn- flytjenda á rauðu eða gulu viðmiði þegar kemur að íslenskukunnáttu og þurfi því aðstoð við íslenskunám. Doktor Sigríður Ólafsdóttir, lekt- or á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, segir málþroska og læsi barna fara verulega eftir því hversu góð tækifæri þau fá til að nota tungumálið, hlusta á og segja sögur, tala saman um nýja þekkingu og velta fyrir sér ólíkum sjónarhorn- um. Í hvert sinn sem ákveðin við- fangsefni séu tekin fyrir í mál- legum samskiptum, jafnvel með ungum börnum í leikskóla, sé lagður grunnur að framtíðarfærni barna í að af la sér þekkingar og nýta sér hana. „Íslenskufærnin eykst síðan þegar börn lesa sjálf og sum börn þurfa meiri stuðning en önnur, markvissan stuðning með kennslu- aðferðum sem rannsóknir sýna að skila bestum árangri,“ segir Sigríður. Spurð að því hvort börn sem ekki kunni íslensku, það er börn sem f lytja til landsins á ýmsum aldri, geti lært að lesa á íslensku um leið og þau takist á við tungumálið segir Sigríður það gagnlegt. „Þau geta lært að lesa íslensku á sama tíma og við kennum þeim íslensku. Það er ein- mitt mjög æskilegt að lestur og mál- örvun fari saman með nemendum á grunnskólaaldri, því auðveldara er að læra orðin þegar maður heyrir þau og sér þau líka skrifuð með bók- stöfum,“ segir hún. Þá segir Sigríður að lestur tungu- máls sem nemendur skilji ekki færi þeim þó einungis tækni í lestri, það að kunna illa tungumál skólans geri þeim námið erfiðara. Þó verðum við að átta okkur á því að fram- farir í náminu leiði til þess að færni í tungumáli skólans eflist samhliða. „Ef við tökum stærðfræði sem dæmi, hvernig getur barn náð framförum í stærðfræði í íslenskum skóla án þess að íslenskukunnátta fylgi með, það er bara ómögulegt,“ segir hún. „Það sem er mjög alvarlegt hjá okkur á Íslandi er að munur á íslenskufærni barna með íslensku sem móðurmál og þeirra sem nota önnur tungumál en íslensku heima fer vaxandi,“ bætir Sigríður við. Strax í leikskóla séu tækifæri til að gefa börnum færni í íslensku, að þau myndi tengsl við starfsfólk og önnur börn og eigi í gagnkvæmum tjáskiptum. „Einkenni ungra barna sem skilja illa tungumál leikskólans er að þau draga sig í hlé. Taka ekki þátt í því sem krefst málnotkunar og fara því á mis við markvisst nám leikskólans og framfarirnar verða því minni.“ Í skrif legu svari menntamála- ráðuney tisins v ið f y r irspur n Fréttablaðsins segir að takmörkuð íslenskukunnátta innf lytjenda í grunnskólum sé áhyggjuefni. „Þetta á einnig við um börn innflytjenda sem fædd eru á Íslandi. Þessi mál eru í forgangi innan ráðuneytis og mikil vinna að eiga sér stað að færa þessi mál til betri vegar.“ Þar segir að búið sé að endur- skoða kafla um íslensku sem annað móðurmál í aðalnámskrá grunn- skóla og að meðal annars hafi verið sett ný hæfniviðmið fyrir íslensku. Nú sé unnið að innleiðingu þessara breytinga. SJÁ SÍÐU 9 n Áhyggjuefni að mikill meirihluti innflytjenda kunni ekki íslensku Niðurstöður könnunarinnar sýna að 92,5 prósent inn­ flytjenda séu á rauðu eða gulu viðmiði þegar kemur að ís­ lenskukunnáttu. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR sbt@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Heildarkostnaður ríkissjóðs við skimanir vegna Covid- 19 var rúmir níu milljarðar á um tveggja ára tímabili frá febrúar 2020 til og með desember 2021. Þetta kemur fram í svari Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Óla- syni, þingmanni Miðflokksins, um kostnað af skimunum innanlands og á landamærunum. PCR-próf voru dýrust, en kostnað- urinn við þau var um 5,3 milljarðar á umræddu tímabili. Kostnaðurinn við hraðpróf var um einn milljarður og landamæraskimanir kostuðu 2,3 milljarða. Í svari heilbrigðisráðherra var einnig útlistaður kostnaður við aðra þætti, svo sem sóttkví, rakningar og ferðamannavottorð en samtals var kostnaðurinn við þessa þrjá þætti um 350 milljónir króna. Hraðprófin voru kynnt til sögunn- ar síðastliðið sumar en með tilslök- unum á sóttvarnaaðgerðum sama haust jókst kostnaður vegna þeirra verulega en með þeim var heimilt að halda viðburði fyrir allt að fimm hundruð manns með skilyrði um framvísun hraðprófs. n Skimanir kostuðu ríkið um níu milljarða króna PCR-próf 5.361.253.085 kr. Hraðpróf 1.011.158.275 kr. Landamæraskimun 2.291.672.579 kr. Sóttkví 215.325.213 kr. Rakning 16.551.003 kr. Ferðamannavottorð 330.625.698 kr. Annað 746.887 kr. Samtals 9.227.332.740 kr. Kostnaður ríkissjóðs við skimanir vegna Covid-19 kristinnhaukur@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Samkvæmt nýju frumvarpi Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra verður stofnað sjö manna notendaráð heilbrigðis- þjónustu. Munu sjúklingasamtök tilnefna fulltrúa í ráðið og forstjór- ar og stjórnir heilbrigðisstofnana hafa samráð við ráðið til að tryggja að sjónarmið notenda séu til hlið- sjónar við ákvarðanatöku er varðar hagsmuni sjúklinga. MND á Íslandi, Geðhjálp og fleiri sjúklingasamtök gagnrýndu upp- runalegt frumvarp ráðherra þar sem ekki var gert ráð fyrir neinni aðkomu notenda að stjórn. Töldu þau eðlilegt að notendur fengju sæti í stjórn Landspítala. n Notendaráð gæti hags sjúklinga Willum Þór Þórsson, heil­ brigðisráðherra jonthor@frettabladid.is ALÞINGI Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra flutti munnlega skýrslu um innrás Rússa í Úkraínu á Alþingi í gær. Þar kom fram að Ísland væri á lista Rúss- lands yfir óvinveitt ríki. Þórdís Kol- brún sagði veru Íslands á listanum ekki óvænta og benti á að áhrif hans væru óljós, félagsskapur Íslands á listanum væri „ekki slæmur“. Síðari ræðu sinni beindi hún að þeim þingmönnum sem nefndu að Ísland væri herlaus þjóð. Sagði hún að þakka mætti fyrir það en það ætti ekki að gorta sig af því, það væri einnig sjálfsmynd Íslands að vera aðili að Atlantshafsbandalaginu. n Segir Ísland í góðum félagsskap á lista Rússlands Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkis­ ráðherra 4 Fréttir 8. mars 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.