Fréttablaðið - 08.03.2022, Page 6
Rúblan hefur fallið
um 49 prósent á 12
dögum.
bth@frettabladid.is
SAMFÉLAG Þorkell Sigurlaugsson
hætti við formannsframboð sitt
í gær en búist hafði verið við hita-
fundi á aðalfundi Félags eldri borg-
ara sem fram fer í dag. Ingi björg H.
Sverris dóttir mun líklega gegna for-
mannsstöðu áfram.
„Ástæðan er sú að ég kann illa við
þá andúð og átök sem virðast hafa
verið á bak við tjöldin vegna þessa
framboðs. Heift og úlfúð sem ég vil
ekki tengjast,“ sagði Þorkell í sam-
tali við Fréttablaðið í gærkvöld.
Illindin sem Þorkell vísar til eru
meðal annars umræða um að hann
hafi verið gerður út af Sigurði Kol-
beinssyni viðskiptamanni sem hafi
lagt á ráðin um fjandsamlega yfir-
töku í félaginu í eiginhagsmuna-
skyni. Deilan tengist að hluta ferða-
Dró formannsframboð sitt til baka vegna illinda
Þorkell
Sigurlaugsson
skrifstofumálum eldri borgara.
„Ég vísa því algjörlega á bug og
það sem mér fannst sorglegast
voru einmitt dylgjur um að ég væri
leppur Sigurðar,“ segir Þorkell. „Það
er dapurlegt að fá svona móttökur
frá fólki sem situr þarna í stjórn,“
segir hann.
Kári Jónasson, stjórnarmaður í
félaginu og fyrrverandi ritstjóri og
fréttastjóri RÚV, sagði í samtali við
Fréttablaðið áður en ákvörðun Þor-
kels lá fyrir að hann óttaðist að Sig-
urður Kolbeinsson viðskiptamaður
stæði á bak við formannsframboð
Þorkels.
Þorkell er frambjóðandi Sjálf-
stæðisf lokksins og býður sig fram
í 2. sætið. Hann segir að síst af
öllu hafi hann viljað að þetta mál
truf laði framboð hans til borgar-
stjórnar. n
Íslenskir veitingamenn hafa
tekið rússneskan vodka úr
hillum hjá sér og vinsælir
kokteilar á við Moscow Mule
og White Russian hafa fengið
ný nöfn, sem samstöðuaðgerð
með Úkraínumönnum. Einn
stærsti heildsali með vodka
á Íslandi sýnir samstöðuna
í verki og hefur hætt sölu á
vodka frá Rússlandi.
ninarichter@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Vínbúðin hefur í sam-
starfi við heildsöluna Vínnes tekið
fjórar af fimm rússneskum vodka-
tegundum úr sölu hjá sér, í samstöðu
með Úkraínumönnum vegna stríðs-
reksturs Rússa í Úkraínu. Birkir Ívar
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Vínness, segir fyrirtækið vissulega
finna fyrir minnkandi sölu.
„Við eigum fjórar af þessum fimm
vörum sem Vínbúðin tók úr sölu og
þá er þetta í samstarfi við okkur.
Mönnum er ekki heimilt að taka
einhliða vörur úr sölu. Það er þann-
ig. Ég þekki ekki umfangið á veit-
ingastöðum en það er auðvitað eitt-
hvað. Það verður væntanlega ekki
mikil ásókn í rússneskan vodka á
næstu dögum og vikum.“
Aðspurður hvort sala á rúss-
neskum vodka sé stórt hlutfall af
heildarsölu á vodka segir hann svo
vera. „Fólk er þá bara að taka annan
vodka, væntanlega frá samkeppn-
isaðilum. Það er í rauninni lítið við
því að gera,“ segir Birkir. „Og án þess
að ætla að reka pólitískan áróður á
hvorn veginn sem er, þá klárlega
tökum við afstöðu með því að taka
vöruna úr sölu í ÁTVR.“
Baldur Guðmundsson Hraun-
fjörð, veitingamaður á kokteil- og
vínbarnum Veðri, tekur í sama
streng. „Það er búið að breyta Mos-
cow Mule í Kyiv Mule og við erum
ekki með neinn rússneskan vodka
hjá okkur. Við erum að kalla White
Russian: White Ukrainian,“ segir
Baldur. „Ef einhver biður um White
Russian þá eru þeir að biðja um
White Ukrainian.“
Hann segir viðbrögð viðskipta-
vina hafa verið með eindæmum
jákvæð. „Já, viðbrögðin hafa verið
mjög góð og fólk virðist mjög stolt af
okkur. Alltaf kemur bros á vör þegar
fólk sér Kyiv Mule,“ segir Baldur.
„Fyrir fólk virðist það hafa mikla
þýðingu að sýna samstöðu.“
Fréttablaðið ræddi við f leiri
veitingamenn í miðborginni sem
tóku í sama streng og sögðust hafa
tekið allan rússneskan vodka úr
hillunum hjá sér og taka með því
afstöðu, en treystu sér þó ekki til
að koma fram undir nafni, að sögn
af ótta við að skaða orðspor vöru-
merkja og birgja. n
Moscow Mule verður Kyiv Mule á
börum bæjarins í samstöðuaðgerð
Moscow Mule, eða Moskvumúlasni, er búinn til úr rússneskum vodka, limesafa og engiferbjór. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ef einhver biður um
White Russian þá eru
þeir að biðja um White
Ukrainian.
Baldur
Guðmundsson
Hraunfjörð,
veitingamaður á
Veðri
Það verður væntanlega
ekki mikil ásókn í
rússneskan vodka á
næstu dögum og
vikum.
Birkir Ívar
Guðmundsson,
framkvæmda-
stjóri Vínness
olafur@frettabladid.is
RÚSSLAND Rúblan er í frjálsu falli
sem einna helst má líkja við fall
íslensku krónunnar 2008. Það sem
tók marga mánuði á Íslandi hefur
gerst á aðeins 12 dögum í Rússlandi.
Í byrjun febrúar kostaði einn
Bandaríkjadalur 77,7 rúblur. Við lok
markaða 23. febrúar, kvöldið áður
en her Pútíns réðst inn í Úkraínu,
kostaði dollarinn 78,8 rúblur.
Föstudaginn 4. mars kostaði doll-
arinn 109,5 rúblur og hafði hækkað
um 39 prósent. Þetta jafngildir falli
rúblunnar upp á um 29 prósent á
átta dögum.
Um helgina lét Anthony Blinken,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
þau orð falla í sjónvarpsviðtali
að Bandaríkin og Evrópa væru að
íhuga sniðgöngu á rússneskri olíu.
Þrátt fyrir að ekki séu taldar mikl-
ar líkur á slíkri sniðgöngu vegna
þess hve Evrópa er háð innf lutn-
ingi á olíu og gasi frá Rússlandi varð
blóðbað á gjaldeyrismörkuðum er
þeir opnuðu í gærmorgun.
Rúblan lækkaði við opnun mark-
aða, náði sér aðeins á strik aftur
fyrir hádegið en var svo í frjálsu falli
eftir hádegi til lokunar.
Lokagengi dagsins var 154,25.
Rúblan hefur því fallið um 49 pró-
sent á tólf dögum frá því innrásin í
Úkraínu hófst.
Svona hrun gjaldmiðils á einna
helst samlíkingu í því að íslenska
krónan missti helming verðgildis
síns árið 2008. Frá ársbyrjun til árs-
loka 2008 lækkaði krónan um 48,2
prósent gagnvart dollar og raunar
var lækkunin meiri á tímabili í nóv-
ember og desember.
Í Rússlandi hefur rúblan nú
fallið um 49 prósent á 12 dögum.
Þetta þýðir að allar erlendar vörur
tvöfaldast í verði og stefnir í óða-
verðbólgu. Höggið er gríðarlegt
fyrir efnahag Rússlands og fjárhag
almennings í landinu. n
Rúblan helmingast frá því að innrásin hófst
Bandaríkjadalur hefur tvöfaldast í
verði gagnvart rúblunni á aðeins 12
dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Frá samstöðufundi í Serbíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
arnartomas@frettabladid.is
RÚSSLAND Bókstafurinn zeta er
orðinn að sameiginlegu tákni
þeirra sem vilja sýna stuðning sinn
við rússnesku ríkisstjórnina. Stuðn-
ingsmenn Pútín-stjórnarinnar í
Rússlandi og fleiri löndum skreyta
nú fatnað sinn, bíla og annað með
zetunni.
Zetu-merkingin vakti heims-
athygli er rússnesk landtæki voru
merkt bókstafnum þegar innrásin
í Úkraínu hófst. Ekki liggur fyrir
hvað zetan stendur fyrir en vilja
sumir túlka hana sem styttingu á
Za pobedy (rússn. „Til sigurs“). n
Stuðningsmenn
Pútíns sameinast
undir zetunni
Íbúar flýja Íprín í gær.
arib@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Minnst 400 óbreyttir
borgarar hafa látið lífið í kjölfar inn-
rásar Rússa í Úkraínu samkvæmt
mannréttindaráði Sameinuðu
þjóðanna. Talsmaður ráðsins sagði
við blaðamenn í gær að erfitt væri
að fá réttar tölu yfir hin látnu og að
kallað hefði verið eftir því að starfs-
menn fengju að komast hindrunar-
laust að átakasvæðunum.
Harðir bardagar voru í gær í borg-
inni Míjkolaív, norðvestur af Kerson
í sunnanverðu landinu. Einnig hafa
rússneskar hersveitir farið inn í
bæinn Írpín, rétt vestan megin við
Kíjív.
CNN hefur eftir háttsettum
embættismanni í varnarmálaráðu-
neyti Bandaríkjanna að Rússar hafi
skotið 625 f lugskeytum á Úkraínu
frá því innrásin hófst. Þá séu Rússar
búnir að beita öllum þeim hersveit-
um sem hafi verið í viðbragðsstöðu
við landamæri Úkraínu fyrir inn-
rásina. n
Erfitt að fá rétta
tölu yfir þau látnu
6 Fréttir 8. mars 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ