Fréttablaðið - 08.03.2022, Síða 13
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
10. TBL. 8. MARS 2022
Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali.
Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is
Ráðgjöf varðandi húsnæðisskipti, erfðaskrá, kaupmála
eða dánarbúskipti. Lögmaður þér við hlið við sölu fasteignar
án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu.
BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu. Kynntu þér málið.
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð
Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is
Sérhæfð lögfræðiþjónusta
með áherslu á 60+
Dimmuhvarf 27 séð úr lofti. Eignin samanstendur af fjórum íbúðum, bílskúr og hesthúsi með gerði. MYNDIR/AÐSENDAR
Miklaborg og Jórunn, löggiltur
fasteignasali, kynna til sölu glæsi-
legt einbýlishús við Dimmuhvarf
27 á Vatnsenda í Kópavogi.
Húsið er 356,4 fermetrar með
fjórum íbúðum, sem allar eru með
sérinngangi og hesthúsi á lóð.
Húsið er teiknað af Herði Harðar-
syni og Þorsteini Helgasyni.
Eignin stendur á 1.681 fermetra
lóð á einstökum stað við Elliða-
vatn, á milli Norðlingaholts og
Vatnsenda. Hún skiptist í einbýlis-
hús með aukaíbúð með sérinn-
gangi, ásamt bílskúr og geymslu.
Hesthús er í tengihúsi með gerði,
geymslu og tveimur íbúðum með
sérinngangi.
Húsið er steypt, einangrað og
klætt að utan. Á fyrstu hæð er
þriggja herbergja aukaíbúð og á 2.
hæð er glæsileg íbúð með þremur
svefnherbergjum, stofum með
mikilli lofthæð, franskri hurð og
glæsilegum, innfelldum kösturum
í lofti. Stórt eldhús er opið inn í
stofurnar sem eru rúmgóðar og
bjartar með gólfsíðum gluggum
og útgengi í garðinn. Snyrting og
þvottahús er inn af forstofu. Bað-
herbergið er rúmgott og glæsilega
innréttað, með gluggum, góðri
snyrtiaðstöðu, baðkari og sturtu.
Svefnherbergin eru stór með
góðum skápum. Fallegur garður
er til suðurs, með möguleika á
heitum potti og gosbrunni sem
þegar hefur verið hannaður en
ekki kláraður. Í húsinu er 37 fer-
metra bílskúr með mikilli lofthæð.
Hellulagt plan með stæðum fyrir
þrjá bíla. Möguleiki er á að tengja
íbúð á fyrstu hæð við íbúðina á 2.
hæð.
Í tengihúsinu eru tvær íbúðir,
báðar með sérinngangi. Önnur er
einstaklingsíbúð og hin þriggja
herbergja. Íbúðirnar eru allar fal-
lega innréttaðar. Sú stærri er með
tveimur svefnherbergjum, opnu
eldhúsi inn í stofu og baðherbergi.
Norðanmegin eru bílastæði fyrir
íbúðirnar.
Hesthúsið er með gerði, góðri
aðstöðu og rúmgóðri geymslu.
Stórar bílskúrshurðar eru til að
opna rými og gönguhurð.
Um er að ræða einstaka eign sem
gæti hentað hestaáhugafólki eða
fjárfestum. Staðsetningin er vin-
sæl, með mikla tengingu við Elliða-
vatn og fallega gróðursæld. Stutt
er í skóla, verslun og þjónustu.
Hér gefst tækifæri til að eignast
fjórar hentugar útleigueiningar við
Vatnsenda. n
Nánari upplýsingar veitir Jórunn,
löggiltur fasteignasali, í síma 845
8958 og á netfanginu jorunn@
miklaborg.is.
Einbýli með hesthúsi á Vatnsenda
Allar íbúðirnar eru glæsilega innréttaðar og staðsetningin er einstök, í mikilli nánd við náttúruna og Elliðavatn.