Fréttablaðið - 08.03.2022, Síða 28

Fréttablaðið - 08.03.2022, Síða 28
Já, ég er bragðarefur. Kem sífellt á óvart. Rapphundurinn Erpur Eyvindarson, ekki síður þekktur sem Blaz Roca, hefur vanið sig á að gera róttækar lífsstílsbreytingar í nokkra mánuði á ári og setur þá tappann í flöskuna og gerir tilraunir með mataræðið. svavamarin@frettabladid.is „Ég tek alltaf þriggja mánaða þurrk, stundum alveg fjóra mánuði á ári án áfengis,“ segir rapparinn og romm- gæðingurinn Erpur Eyvindarson sem minnir sig þannig reglulega á hversu vel honum líður áfengis- lausum. „Maður gleymir því oft hvað þetta er frábært.“ Erpur hefur tekið þátt í veganúar í nokkur ár en seinkaði því átaki að þessi sinni um mánuð og gerði febrúar að vegrúar. „Gallinn við að vera vegan í febrúar er að maður þarf að redda sér sjálfur en í janúar er vegan ætt- bálkurinn geðveikt að peppa mann og hjálpa til með næringarfræðina og svona,“ segir Erpur og bætir við að honum hafi reynst erfiðast að finna út úr því hvað geti helst komið í stað mjólkurafurða, fisks og kjöts. Þá hafi vegan hópeflið auð- veldað honum lífið í leitinni að réttu baunategundunum. Fiskfars-mars „Í mars er ég að stúdera pescat- arian,“ segir Erpur um áherslu sína á sjávarfang þessa dagana undir formerkjum þess sem hann kýs að kalla fiskfars-mars. „Ég er auðvitað ekki að fara að fá mér fiskfars. Þetta hljómar bara betur,“ segir hann og hlær áður en hann upplýsir að apríl sé óráðinn hjá honum en hann sé opinn fyrir öllu. „Mér líður rosalega vel að sleppa mjólkurafurðum og maður fattar mjög snemma hvað allt kerfið er sátt við að sleppa því að blanda þeim í allt,“ segir Erpur sem finnst mjög skemmtilegt að gera tilraunir á sjálfum sér með því að prófa hinar ýmsu matarvenjur. „Það er verið að hvetja mig til að prófa að fasta í nokkra daga. Það gæti verið gaman.“ Hann bendir þó á að föstur séu honum ekki framandi þar sem hann stundi slíkt vanalega í um tólf til átján tíma á sólarhring. „Það er allt annað að prófa að fasta í nokkra daga í röð. Menn segja að maður verði miklu skýrari í hausnum.“ Þá segist hann stefna á að taka einn mánuð í hráfæði á næsta ári. Asískt og einfalt Þegar Erpur er spurður hvernig honum hafi gengið að gera vegan rétti segir hann það ekkert mál að gera góðan mat þar sem hann eldi mikið taílenskt. „Minn uppáhalds réttur er vegan Pad Ka Pow en uppistaðan í honum er heilög basilíka, chili, hvítlaukur og vegan fiskisósa. Ef þú hefur farið til Indlands þá eru langt flestir veitingastaðir vegan vegna þess að hindúarnir borða ekki nautakjöt, múslimar borða ekki svínakjöt og Búddarnir borða engar dýraafurðir. Þannig að ef þú ferð í asískar uppskriftir þarftu ekk- ert að vera að vera að rembast neitt við þetta og að ná fram góðu bragði af matnum.“ Bragðarefur sem kemur á óvart Erpur svarar því játandi að hann komi fólki vissulega á óvart með þessum lífsstílsbreytingum sínum miðað við þá mynd sem hann dreg- ur upp af sér í tónlistarheiminum. „Já, ég er bragðarefur. Kem sífellt á óvart. Ég er líka mikið að labba og synda og lifi nokkuð heilbrigðu lífi,“ segir Erpur og hlær. „Ég hleyp ekki en finnst miklu Árlegt þurrkatímabil í lífi Erps Erpur leynir á sér þegar matur og drykkur eru annars vegar enda annálaður bragðarefur. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Erpur fílar sig í botn í nýja laginu um Babar. MYND/KIDDI HJÁLMUR Erpur og Egill Ólafsson í góðum fíling. MYND/KIDDI HJÁLMUR skemmtilegra að ganga rösklega. Líka núna þegar það er orðið svo gott að labba um Reykjavík miðað við hvernig það var þegar ég var að alast upp og Sjálfstæðisflokkurinn réði öllu,“ segir hann háðskur og bætir við að borgin hafi verið eins og bílastæði fyrir utan Walmart í Detroit. „Einhver bílageðveiki skilurðu. Það er svo gaman að labba út um allt og heilinn verður svo frjór í fersku lofti,“ segir Erpur sem þannig afgreiðir flesta sína fundi og stefnu- mót á göngu um götur Reykjavíkur. Slaki Babarinn Erpur gaf nýlega út lagið Slaki Babarinn með Agli Ólafssyni og Memfismafíunni. „Lagið fjallar um fílinn Babar sem stóð í ströngu í Afríku þar sem hann tróð illsakir við nashyrninginn og keyrir svo um í blæjubíl með kórónu um götur Parísar,“ útskýrir Erpur og auðheyrt á honum að honum er mjög létt við að bókanir eru komnar aftur á fullt eftir langt veirutímabil. „Það eru fjögur eða fimm ár síðan ég gaf út lag síðast og núna er gott útlit fyrir að við séum í alvörunni að fara að lifa alvöru lífi ef við náum að sneiða hjá kjarnorkustríði.“ Hægt er að fylgjast með tilraun- um Erps í eldhúsinu á Instagram undir nafninu: Slakibabarinn. n odduraevar@frettabladid.is Tónlistarmaðurinn Haffi Haff seg- ist alls ekki sár yfir því að hafa ekki komist í úrslit Söngvakeppninnar sem hið svokallaða „aukalag“ sem  framkvæmdastjórnin velur. Reglur keppninnar gera stjórn- inni kleift að velja eitt lag í úrslitin þrátt fyrir að það hafi ekki komist áfram í símakosningu. Dúettinn Amarosis varð að þessu sinni fyrir valinu með lagið Don't you know. Heyra mátti harmakvein í þó nokkrum netverjum yfir því að Haffi Haff var ekki valinn. „Nei, nei, ,nei,“ segir Haffi hlæjandi aðspurð- ur hvort þetta séu vonbrigði. „Það er svo mikið af f lottum atriðum í ár. Við vorum bara að reyna að skemmta okkur. A guy is just doing his job, þú veist hvað ég meina?“ segir Haffi. Hann segir hópinn sinn afar stoltan og segir Íslendinga geta verið stolta af keppninni í ár. „Við erum með ótrúlega hæfi- leikar íkan og my ndarlegan blindan mann sem syngur og hann er ekki bara söngvari heldur líka íþróttamaður,“ segir Haffi hlæjandi og hrósar Amarosis í hástert. „Það hefði verið gaman að fá að sýna þjóðinni það sem við ætluðum okkur í úrslitunum. Sem viðskiptaþenkjandi maður ákvað ég að sýna ekki á öll spilin strax, en við grátum það samt ekk- ert. Við skemmtum þjóðinni vel og þetta var heljarinnar verk- efni.“ Haff i segist ekki eiga sér uppáhalds atriði í keppninni. „Stefanía var samt frábær og ég hef dáðst að henni í keppninni. En ég vil ekki velja einhvern sem er eftir, því þetta skiptir engu, við erum öll sigurvegarar og allir þarna verða frábærir fulltrúar Íslands. Það er ótrúlegt að vera hluti af þessu og þessu ferli.“ n Haffi Haffi alls ekki sár Haffi Haff gengur sáttur af velli. MYND/AÐSEND Friðartónleikar í Hallgrímskirkju verða þriðjudaginn 8. mars kl. 18. Ávörp flytja Kári Stefánsson og Cristofer Cristofer. Úkraínumenn sæta nú miskunnarlausum árásum af hálfu nágranna sinna, Rússa. Við fyllumst sorg, reiði og varnarleysi yfir þessari mannvonsku og illsku. Komum saman og sýnum samhug okkar með úkraínsku þjóðinni og líka með rúss- neskum almenningi sem mætir grimmd og harðræði fyrir að mótmæla innrásinni. Þessi mikli harmleikur snertir okkur öll. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og hægt verður að kveikja á friðarljósi fyrir Úkraínu. Fram koma Ragnar Kjartansson • KK • Ellen Kristjánsdóttir • Alexandra Chernyshova Þorsteinn Einarsson í Hjálmum • Kór Hallgrímskirkju • Eyþór Gunnarsson Sigga, Beta og Elín Ey • Jói P. og Króli • Bubbi og fl. Úkraína Friðartónleikar í Hallgrímskirkju • toti@frettabladid.is Þegar úrslit lágu fyrir í forvali Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs fyrir borgarstjórnar- kosningarnar varð ljóst að sagn- fræðingurinn Stefán Pálsson hafði komist þangað sem hann ætlaði sér, í 2. sætið. Stefán, sem er einhver helsti sérfræðingur þjóðarinnar þegar myndasögubækurnar um Sval og Val eru annars vegar, deildi frétt Mbl.is af úrslitunum á Facebook-síðu sinni á laugardaginn og fagnaði því að nú væri „hægt að snúa sér að slagnum við hina“ eftir óhjákvæmileg átök við samherja. Í kjölfarið rigndi hamingjuóskum yfir hann í löngum athugasemdahala þar sem einmitt einn „hinna“, Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, kom sterkur inn með kveðju sem hann sótti orðrétt á kápubak Svals og Vals bókanna sem eru Stefáni svo hugleiknar. „Nú byrjar gamanið, en það verður hættulegt!“ Svalur og Valur hafa hildi háð í bæði Feluborg og Bretzelborg en engum sögum fer enn af ævin- týrum þeirra í Reykjavíkurborg. En telur Stefán að Andrés hafi eitthvað til síns máls og að gamanið í Reykja- vík eigi eftir að verða honum hættu- legt? „Getur nokkuð verið gaman sem ekki er að minnsta kosti smá hættu- legt?“ spyr Stefán á móti eins og alvöru stjórnmálamanni sæmir og sprengir síðan pólitíkina út í enn stærra Svals og Vals samhengi en Andrés: „Annars er það sérdeilis skuggalegt fyrir okkur S&V buffin að sjá að Rússlandsher taki upp Z-una hans Zorglúbbs sem einkennistákn sitt.“ n Hættulegt gaman í Reykjavíkurborg Stefán Pálsson 16 Lífið 8. mars 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 8. mars 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.