Fréttablaðið - 09.03.2022, Qupperneq 2
Okkur hefur verið sagt
að það að moka snjó
út í sjó sé svokallað
varp í hafið.
Hjalti Stefánsson
Þetta er frekar lítil eyja
en þessar stóru kosta
miklu, miklu meira.
Magnús
Leópoldsson,
fasteignasali
Plebbar í stuði
„Við köllum okkur Plebbana,“ segir Viktor Benóný Benediktsson sem ásamt félaga sínum Daníel Frey Steinarssyni brá á leik í göngum undir Reykjanesbraut
í Hafnarfirði í gær. Þar hafði vatn flætt yfir bakka Lækjarins og valdið talsverðum vandræðum og jafnvel flætt inn í bílskúra. Viktor og Daníel létu tækifærið
ekki fram hjá sér fara og bjuggu sig til vatnsleikja og voru að taka upp myndband fyrir Tik Tok þegar ljósmyndari rakst á þá. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
www.bjornsbakari.is
bth@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Reykjavíkurborg
bárust í febrúar 3.500 ábendingar
frá íbúum um ófærð í íbúðagötum
vegna snjóa.
„Það hefur verið erfitt að missa
þetta svona í klakann en við erum á
fullu eins og við höfum verið,“ segir
Hjalti Guðmundsson, skrifstofustjóri
reksturs og umhirðu borgarlandsins
hjá Reykjavíkurborg.
Reykjavíkurborg mokar ekki snjó
út í sjó eins og nágrannasveitar-
félögin.
„Okkur hefur verið sagt að það að
moka snjó út í sjó sé svokallað varp
í hafið og geti verið óæskilegt út
frá umhverfisáhrifum. Þess vegna
erum við með okkar á þurru úti á
Geldinganesi, en snjórinn lekur svo
þaðan út í sjóinn hvort sem er,“ segir
Hjalti.
Helgi Guðjónsson, verkefnisstjóri
hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur,
segist vita að mörg sveitarfélög losi
sig við snjó í sjó. Ekki sé um bann
í borginni að ræða heldur fremur
tilmæli. Snjór sem kunni að vera
mengaður megi helst ekki fara í
sjó nálægt ósum. Hins vegar henti
ágætlega að aka honum í hafnir þar
sem botnsvæði séu röskuð fyrir. Það
væri til bóta ef sveitarfélögin kæmu
sér saman um reglur sem næðu yfir
allt höfuðborgarsvæðið. n
Sendu þúsundir
kvartana vegna
ófærðar á borgina
Snjórinn hefur á sér ýmsar hliðar.
Sumar til ama – aðrar til ánægju.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Eyjan Ólafsey á Breiðafirði er
til sölu á 35 milljónir króna.
Á eyjunni stendur um 45 fer-
metra hús og gestahús en um
45 mínútur tekur að sigla til
eyjunnar frá Stykkishólmi.
Eyjurnar í Breiðafirði eru
náttúruparadís sem ganga oft
kaupum og sölum. Björk átti
einu sinni að fá að búa þar
leigulaust í þakklætisskyni
fyrir starf sitt í þágu þjóðar.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Þetta er ekki fyrsta
eyjan sem ég sel. Ég er búinn að
selja, á þessum 35 ára ferli mínum,
nokkrar eyjar á Breiðafirði en
þessi er minni í sniðum,“ segir fast-
eignasalinn Magnús Leópoldsson
sem hefur fengið til sölu Ólafsey á
Breiðafirði.
Ásett verð á Ólafsey, sem telur 2,5
hektara, er 35 milljónir króna. Þar er
45 fermetra hús sem er einnig með
gestahúsi og geymslu.
Stóru-Tungueyjar, sem Ólafs-
ey tilheyrir, er eyjaklasi utan til á
Hvammsfirði nokkuð fyrir innan
Röst, breiðasta og dýpsta eyja-
sundið sem er á milli Breiðasunds
og Hvammsfjarðar. Langey er nyrst
af Stóru Tungueyjum. Við hana eru
tveir hólmar, sá vestari kallaður
Stöng en sá austari Reiðingshólmi.
Nokkru sunnar er Ólafsey. Vestan
til við eyjuna er Bjarnarey en hún er
syðst af Stóru-Tungueyjum og stutt
frá skipaleiðinni þegar farið er inn
Hvammsfjörð.
Magnús segir að það taki um 15
mínútur að sigla frá Arnarbæli en
um 45 mínútur frá Stykkishólmi.
„Þetta er frekar lítil eyja en þessar
stóru kosta miklu, miklu meira,“
segir hann.
Árið 2018 fjallaði Fréttablaðið um
að nokkrar eyjar á Breiðafirði væru
til sölu. Ein þeirra var Arney með
íbúðarhúsi og góðu vatnsbóli en
með henni fylgdi hálf eyjan Bíldsey
auk tíu annarra smáeyja og hólma.
Var ásett verð 150 milljónir króna.
Þá var Snóksey sem sögð var „fal-
lega gróin eyja með fögru útsýni frá
háum hólum yfir söguslóðir elstu
Íslendingasagna, með frábæru báta-
lægi, dúntekju og óspilltri náttúru,“
en sú kostaði 32 milljónir króna árið
2018.
Þá sagði Davíð Oddsson, þáver-
andi forsætisráðherra, í ræðu sinni
um aldamótin að Björk Guðmunds-
dóttir fengi að reisa sér hús á Elliða-
ey á Breiðafirði og búa þar leigulaust
í þakklætisskyni fyrir starf hennar
í þágu lands og þjóðar. Björk þáði
ekki boðið og er eyjan nú í eigu
Stykkishólmsbæjar. Þó gætir enn
þess misskilnings að Björk búi þar
en erlendur aðdáandi hennar tísti
þegar Covid stóð sem hæst að hún
vildi vera í einangrun með Björk á
eyjunni hennar. Sú birti reyndar
mynd af Elliðaey í Vestmannaeyjum
og þótt íslenskir aðdáendur reyndu
að leiðrétta misskilninginn fékk
konan, Sarah McGonagall, um sjö
þúsund læk á færsluna sína.
„Það er smá mál að eiga eyju,“
segir Magnús en hann bendir á að
húsið sem stendur í Ólafsey hafi allt-
af fengið gott viðhald og núverandi
eigendur hafi verið mjög sniðugir
þegar komi að lausnum varðandi
kalt vatn. n
Afskekkt eyja og sumarhús
á Breiðafirði á 35 milljónir
Húsið á eyjunni er 45 fermetrar og hefur fengið gott viðhald alla tíð.
MYND/FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN
arib@frettabladid.is
COVID-19 Staðan á Landspítala er
mjög þung vegna Covid-19 farald-
ursins, samkvæmt upplýsingum
frá farsóttarnefnd voru í gær 60
sjúklingar í einangrun með virkt
smit. Þar af voru fjórir á gjörgæslu
og tveir í öndunarvél. Í fyrradag
létust tveir karlmenn með Covid
á gjörgæsludeildum. Samkvæmt
tölum almannavarna hafa um 3
prósent þjóðarinnar greinst með
Covid síðustu fimm daga.
Samkvæmt farsóttarnefnd þurfa
hlutfallslega fáir á sjúkrahúsvist
að halda í ljósi samfélagslegrar
útbreiðslu, þeir sem streymi nú inn
séu einstaklingar með ónæmisbæl-
ingu, þeir sem hafa alvarlega undir-
liggjandi sjúkdóma og aldraðir sem
þola illa sýkinguna. n
Ónæmisbældir
streyma inn
2 Fréttir 9. mars 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ