Fréttablaðið - 09.03.2022, Blaðsíða 36
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þessi óhappasaga hans
er samt svo fáránlega
ótrúleg að maður þarf
ekki neitt að skálda
inn í það.
O G FÁ Ð U LÚ X U S N Ó T T Á
H I LT O N Í K AU P B Æ T I
97.485 kr.
S PA R A Ð U
Náttborð á mynd er ekki
innifalið í verði.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
25%
SERTA SPLENDID ROYAL
FIMM STJÖRNU STILLANLEGT RÚM MEÐ HÖFÐAGAFLI
SETTU ÞIG Í STELLINGAR FYRIR BETRI SVEFN
MEÐ ÞVÍ EINU AÐ SNERTA TAKKA GETUR ÞÚ STILLT
RÚMIÐ Í HVAÐA STELLINGU SEM ÞÉR HENTAR
SPLENDID ROYAL heilsurúmið er virkilega vandað rúm
sniðið að þínum þörfum. Botninn er fjaðrandi (box-spring)
samsettur úr 20 cm háum gormum sem gefa rúminu enn meiri
þægindi og lagar það fullkomlega að þér.
Splendid Royal heilsudýnan frá Serta er pokagormadýna skipt
upp í fimm mismunandi svæði.
Gormakerfið er með þéttari stuðning við bak og mjaðmasvæði en
mýkri við axlir. Þannig tryggir þú rétta svefnstellingu hver sem
svefnstaða þín er og hjálpar þér að ná dýpri og betri svefn. Hægt
er að velja um tvo stífleika, allt eftir því hvað hentar hverjum og
einum.
Yfirdýnan er millistíf heilsudýna sem vinnur á einstakan hátt
með fjöðrunarkerfinu í dýnunni. Höfuðgaflinn er fágaður og
stílhreinn. Hægt er að fá náttborð og bekk í stíl við rúmið, hvort
tveggja er selt sér.
FIMM STJÖRNU LÚXUS HÓTELRÚM
– HEIM TIL ÞÍN –
Fullt verð: 552.415 kr
15% afsláttur – Ocean Splendid stillanlegt 160 x 200 cm
(Botn, fætur, dýna, yfirdýna og Ocean gafl) Fullt verð: 649.900 kr.
NÓTT FYRIR TVO Á HILTON
Nú fylgir nótt fyrir tvo á Hilton, ásamt
morgunverði og aðgangi að Spa,
kaupum á Serta 5 stjörnu hótelrúmi.
Verðmæti: 38.900 kr.
ninarichter@frettabladid.is
Þýskir kvikmyndadagar hefjast í Bíó
Paradís á föstudaginn og standa til
20. mars. Hátíðin er nú haldin í 13.
skipti og er jafngömul starfseminni
í húsinu.
G a ma n my nd i n ma r g ver ð -
launaða Ich bin dein Mensch eftir
Mariu Schrader fjallar um konu sem
ákveður að búa með vélmenni sem
á að vera hinn fullkomni karlmaður.
„Það eru yfirleitt fáar kvikmyndir
á hátíðinni, aðeins fimm til sex,
þannig að dagskráin er viðráðanleg.
Þemað í ár er mannréttindi sem við
höfum valið í ljósi aðstæðna í heim-
inum,“ segir Ása Baldursdóttir, dag-
skrárstjóri Bíó Paradísar
„Þetta er þema sem okkur lang-
aði mjög lengi að nota,“ segir hún
og bendir á að það eigi sérstaklega
við vegna ástandsins í Úkraínu.
Hún nefnir síðan tvær myndir, Dear
future children og The Ant and the
grasshopper, sem falla fullkomlega
að þemanu en aðgangur er ókeypis
á þessar myndir og allir velkomnir.
„Það stingur kannski í stúf að
þessar myndir séu á ensku, en báðir
leikstjórarnir voru með það að
markmiði að hafa efnið sem aðgengi-
legast, auk þess eru persónur og leik-
endur ekki þýskir,“ útskýrir Ása.
„Fólk býst bara við þýskum gæða-
kvikmyndum í mars. Dagskráin
hefur alltaf verið þverskurður af
því besta í þýskum kvikmyndum
það árið,“ segir Ása um hátíðina og
bendir á að stjórnendur hátíðarinnar
fari á Berlinale-hátíðina á hverju ári
til að fylgjast með því ferskasta í
þýskri kvikmyndagerð. „Við sjáum
alltaf það nýjasta og erum mjög með
puttann á púlsinum þarna.“
Ása segir að sín uppáhalds kvik-
mynd á hátíðinni sé Grosse Freiheit.
„Hún fjallar um mann sem er fang-
elsaður stuttu eftir síðari heims-
styrjöld, fyrir samkynhneigð, en þá
var bannað með lögum að vera sam-
kynhneigður. Myndin er rosalega
flott og falleg og fellur vel að þema
okkar um mannréttindi,“ segir Ása
sem fer nánar yfir það sem segja má
að einkenni þýska kvikmyndagerð
dagsins í dag. ■
Mannréttindi á þýskum dögum
Ása Baldurs-
dóttir,
dagskrárstjóri í
Bíó Paradís
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
Lilja Sigurðardóttir beygði út af glæpabrautinni fyrir Storytel og hitti þá fyrir sjálfan Ernest Hemingway í leikaranum
Erni Árnasyni sem talar fyrir rithöfundinn ógæfusama í hljóðvarpsþáttunum um 100 óhöpp hans. MYND/AÐSEND.
Bandaríski rithöfundurinn
Ernest Hemingway og þá
helst ótrúleg óheppni hans
lokkaði Lilju Sigurðardóttur
út af glæpabrautinni þegar
hún ákvað að rekja 100 óhöpp
Hemingways í tíu hljóðvarps-
þáttum fyrir Storytel þar sem
Örn Árnason bregður sér í
hlutverk hrakfallabálksins
goðsagnakennda.
toti@frettabladid.is
„Ég elska Hemingway,“ segir rithöf-
undurinn Lilja Sigurðardóttir og
hlær dátt þegar hún er spurð hvort
hún hafi verið með bandaríska rit-
höfundinn Ernest Hemingway á
heilanum lengi. „Ég hreifst af bók-
unum hans bara sem unglingur og
svo hef ég alltaf verið að lesa meira
og meira um hann,“ heldur Lilja
áfram og bendir á að enginn skortur
sé á bókum hvorki um höfundinn
sjálfan né verk hans.
„En það er einhvern veginn einn
þráður í ævi hans sem mér finnst
svo áhugaverður og hefur ekki endi-
lega verið mikið skrifað um sem
er þessi furðulega óheppni hans,“
segir Lilja, sem er einna þekktust
fyrir glæpasögur sínar en hefur nú
gert hrakförum Hemingways skil í
tíu þátta hljóðvarpsseríu sem er sú
fyrsta sinnar tegundar á Storytel þar
sem sjálfur Örn Árnason bregður sér
í hlutverk Hemingways.
Örn Hemingway
„Örn Árnason er sko bara alveg frá-
bær í þetta hlutverk. Erni tekst þetta
rosalega vel og það var mjög gaman
að vinna með honum. Hann er nátt-
úrlega ofboðslega flinkur leikari og
svo er röddin hans einhvern veginn
hlý og falleg og passar rosalega vel
inn í þetta,“ segir Lilja. „Hann hefur
þessa dýpt og líka þessa aldurs-
breidd þannig að hann getur ein-
hvern veginn túlkað Hemingway
alveg frá því að hann er ungur
þangað til hann er orðinn gamall
maður. Eða hann varð náttúrlega
ekkert rosa gamall. Hann dó 61 árs,“
segir Lilja og snýr sér aftur að kjarna
málsins.
„Maðurinn var auðvitað alltaf
fullur og ástundaði mikla áhættu-
hegðun. Var alltaf að veiða með
byssum og eitthvað svona en öll
þessi óhöpp voru ekkert endilega
alltaf öll honum að kenna. Hann
var einhvern veginn bara svo oft á
röngum stað og röngum tíma. Þetta
verður svo yfirgengilega mikið að
þetta er pínulítið næstum því eins
og bölvun,“ segir Lilja og bætir við
að hana hafi lengi langað að rekja
þennan þráð frekar.
Sjálfsagt skáldaleyfi
Hún hafði oft hugsað hvernig hún
geti gert þessu efni skil og segist
hafa látið slag standa þegar hún sá
fyrir sér að efnið gæti fallið vel að
hljóðmiðlinum sem hefur verið í
mikilli sókn undanfarið.
„Storytel hefur lengi verið að
biðja mig um að gera eitthvað
skemmtilegt efni og þannig small
þetta einhvern veginn saman. Af
hverju geri ég ekki bara eitthvað um
Hemingway? Við vitum ekki alveg
hvað á að kalla þetta. Þetta var kall-
að svona fléttuþáttur í gamla daga
og þetta er svolítið svoleiðis hjá mér.
Ég segi frá lífi hans og svo koma
leikarar inn og það eru leiknir kaflar
og leikin samtöl og svo eru ákveðnir
hlutar sem ég skálda bara sem eru
svona frá sjónarhorni Hemingways
eins og ég ímynda mér að hann hafi
séð hlutina.“
Lilja segist þarna njóta þess að
vera hvorki sagn- né bókmennta-
fræðingur og rithöfundar hafi að
sjálfsögðu skáldaleyfi. „Maður getur
ímyndað sér og sett sig í sporin og
leyft sér aðeins að fylla inn í. Þessi
óhappasaga hans er samt svo
fáránlega ótrúleg að maður þarf
ekki neitt að skálda inn í það og ég
er svona kannski frekar svona að
ímynda mér hans viðhorf til þess
arna. Og það var svolítið gaman og
þetta kemur skemmtilega út þótt ég
segi sjálf frá.“ ■
Hrakfarir Hemingways
20 Lífið 9. mars 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ