Eldhúsbókin - 10.09.1983, Síða 3
úr einu í annað
Hrísgrjónarönd með rækjum
Hér kemur auðveld uppskrift
að rækjurétti. 2 dl hrísgrjón
(notið brún hrísgrjón, þau eru
hollari), 1 tesk salt, vatn til
suðu, farið eftir leiðbeiningum
á hrísgrjónapakkanum, 1 dl
rjómi, 1 dl majones, 1 tesk
karrý, 400 gr rækjur, blaðsalat,
sítrónur. — Sjóðið hrísgrjónin og kælið þau síðan í rennandi
vatni (notið sigti). Þeytið rjómann, hrærið majones saman
við og kryddið með karrý, aukið magnið ef ykkur finnst það
betra. Blandið þessu saman við hrísgrjónin og setjið það í
hringmót og þrýstið vcl niður. Látið á kaldan stað, skemmst
í eina klst. Hvolfið hrisgrjónaröndinni á fat og fyllið inn í
hringinn með salatblöðum og rækjum, raðið sítrónubátum
utan með hringnum.
Eggjarauðuna má geyma þann-
ig að hún þorni ekki, með því
að láta hana í bolla og láta
kalt vatn renna varlega, þann-
ig að það fljóti yfir hana.
Fennikel er gömul og mikið not-
uð kryddjurt. Upphaflega kem-
ur hún frá suður-Evrópu, þar
sem hún er einnig nýtt sem græn-
meti. Við þekkjum þessa jurt lít-
ið, þar sem hún hefur ekki feng-
ist hér fyrr en á síðari árum.
Fennikel má nota á ýmsan hátt.
Sem kryddjurt er hún liöfð með
basilikum og dilli og sem græn-
meti má steikja hana í smjöri
með lauk- og paprikustrimlum. Gott með ýmsum kjöt- eða
fiskréttum. Asta.
KÁL — (Framhald af bls. 66)
Hreinsið rósakálið og skiptið hverju þeirra í tvennt. Setjið i pott
baconbita, Iaukhringi og smjör eða smjörlíki. Látið krauma þar til
laukurinn er mjúkur og ljósgulur. Setjið þá í pottinn rósakál og
paprikuræmur. Látið allt malla í 5 mín og hrærið í pottinum allan
tímann. Bætið þá soði í pottinn það miklu að það rétt fljóti yfir
grænmetið. Látið malla þar til rósakálið er mjúkt. Bragðbætt með
salti og kryddi. Borðað með soðnum kartöflum.
Blómkál er oft hægt að fá á tilboðsverði á þessum tíma. Það er ágætt
til frystingar. Kaupið það þegar það er sem ódýrast, skiptið því í
hrxslur og látið það liggja í sjóðandi vatni í nokkrar mín. Snöggkælið
það undir rennandi vatni, látið renna af því og pakkið því síðan í
plastpoka í þeirri stærð sem óskað er.
Blómkálssalat með bacon
1 litið blómkálshöfuð, 225 gr frosnar grænar baunir, i/> agúrka,
nokkrar radisur, 1 /2 dl sýrður rjómi, graslaukur, 4 harðsoðin egg,
ca. 150 gr bacon.
Hreinsið blómkálið og skiptið því í hríslur. Sjóðið það i létt-
söltuðu vatni (1 tesk salt í 1 lítra af vatni) i 5 mín. Skerið baconið
í ræmur og steikið það á pönnu og kælið það. Þiðið grænu baun-
irnar. Skerið agúrkuna í teninga og radísurnar í sneiðar. Setjið allt
grænmetið í salatskál og hellið sýrða rjómanum yfir sem bragðbæta
má eftir smekk. Skreytið með eggjabátum og baconbitum og stráið
klipptum graslauk yfir.
Blómkál í ostasósu
1-2 blómkálshöfuð eru soðin mátulega mjúk í léttsöltuðu vatni.
Búið til sósu úr smjörlíki, hveiti, blómkálssoði og rjómablandi og
bragðbætið hana með rifnum osti, salti, pipar og múskati. Hrærið
1-2 msk af majones saman við. Setjið blómkálið á djúpt fat, hellið
sósunni yfir. Setjið dálítið af tómatsósu efst ásamt saxaðri stein-
selju. Borðað með reyktri medisterpylsu eða öðrum pylsuréttum.
Blómkál með eggjum og rækjum
1 blómkálshöfuð, 1 msk smjörliki, 2 msk hveiti, 4 dl mjólk, 40 gr
rifinn ostur, salt, pipar, cayennapipar, 4 harðsoðin egg, 100 gr
rækjur, dill eða steinselja.
Blómkálið er soðið mátulega mjúkt í léttsöltuðu vatni, það má
67 ekki sjóða það svo mikið að það detti í sundur. Sósa er búin til
úr smjörlíkinu, hveitinu og mjólkinni. Rifnum ostinum bætt i og
sósan er krydduð eftir smekk. Nokkur korn af cayennapipar gefa
sósunni gott bragð en nota verður hann með gætni þar sem hann
er mjög sterkur. Blómkálshöfuðið er sett varlega á stórt kringlótt
fat og sósunni hellt yfir. Skreytt er með eggjabátum, rækjum og
dilli eða stcinselju. Borðað með heitu snittubrauði.
Bakað blómkál
Skiptið einu blómkálshöfði í hríslur og setjið það í sjóðandi
léttsaltað vatn. Sjóðið kálið mátulega mjúkt. Hellið þvx í gata-
sigti og látið renna vel af því. Setjið kaldar blómkálshríslurnar í
smurt eldfast mót og setjið nokkra smjörbita ofan á. Þeytið stífar
2 eggjahvítur og hrærið þær saman við 4 msk af majonesi, og
kryddið með salti, pipar esdragonediki og muskati. Ef majonesið
er mikið kryddað verður að krydda sósuna með gát. Setjið sósuna
yfir kálið og setjið fatið í 275°C heitan ofn þar til yfirborðið hefur
fengið fallegan lit.
Blómkál og skinka
1 stórt blómkálshöfuð er soðið mátulega mjúkt og síðan skipt í
hríslur sem raðað er í smurt eldfast mót. Sósa er búin til úr
smjörlíki, hveiti, blómkálssoði og rjómablandi. Bragðbætt eftir
smekk. Að lokum er einu þeyttu eggi lirært saman við. Skinku-
bitum er raðað yfir blómkálið og sósunni hellt þar yfir. Sett í
225°C heitan ofn, þar til sósan hefur fengið aðeins lit. Borið fram
með brauði og smjöri.