Sögur og skrítlur - 15.07.1938, Blaðsíða 3
Eitur* byrla rin n
— Norsk smásaga —
Allan júní-mánuð nafði Osló verið eins og glóandi
bakaraofn. Larsen-fjölskyldan, sem bjó í Apótekara-
götunni, var ef til vill verr sett með hitann en flestir
aðrir, því að herbergin þeirra voru fremur lítil, og
ýlduþefurinn úr sorpkyrnunum að húsabaki vor orðinn
alveg óþolandi. Frú Gústafa lét ekki manninn sinn,
Anton Larsen, bókara, fá lifandi frið. Þau lögðu inn
nokkur tilboð í »sumarbústaði« í »Aftenposten«, og dag
nokkurn sköœmu síðar kom bókarinn heim með rós í
hnappagatinu og sagðl henni elsku Gústöfu sinni, að
hann hefði leigt sumarbústað í inndælli »villu« úti á
Stabekk. Bæði íbúðin og garðurinn var út af fyrir
sig, skift þvert sundur í miðju, svo að hver fjölskyldan
væri alveg út af fyrir sig og óháð hinni á allan hátt,
Þetta þótti Larsen framúrskarandi ágætt, en frúin var
nú ekki alveg eins hrifin. — ]?ví hún vildi gjarnan
hafa einhvern til að spjalla við.
Það liðu nokkrir dagar, áður en Larsen-hjónin sáu
nokkuð til húsbændanna hinum megin, Hann var dökk-
hærður Vestlendingur og kennari. Lönli að nafni, á