Sögur og skrítlur - 15.07.1938, Page 8

Sögur og skrítlur - 15.07.1938, Page 8
6 Sög'ur og skrítlur. að vera eins rólegan og honum væri Jrekast unnt og varast að komast í geðshræringu. Pá myndi allt ganga vel, Reginald stillti sig, þótt honum félli það eriiðlega, llann var námuverkstjóri frá Wales, 32 ára að aldri, En hann lét sig samt ekki, fyrr en Gladys lofaði hon- um því að biðja vin hans að blístra Wales lög, þegar hann gengi fram hjá sjúkrahúsinu, Hann varð að fá eitthvert lífsteikn frá Edgar Smith, Það var erfitt fyrir Gladys Wilson að halda tárunum f skefjum, Hún var sjálf frá Wales og þekkti báða piltana vei. En nú voru mörg ár liðin, síðan þeir fóru að heiman og fengu vinnu í námunum. Edgar hafði skrifað henni öðiu hvoru, en frá Reginald hafði hún ekkert heyrt árum saman, þó hún einu sinni hefði haldið, að honum þætti vænt um hana. Nú þekkti hann hana ekki einu sinni aftur á röddinni. Daginn eftir, þegar Gladys hafði hlé, heyrði Beginald gömlu Wales-lögin blístruð fyrir utan gluggann á stofu nr. 7. Edgar gerði sitt til að gleðja og hughreysta hinn veika félaga sinn. Og daginn eftir blístraði hann líka. En svo liðu 2 — 3 dagar, þangað til Reginald heyrði aftur blístrað. Það var eins og þessi gömlu lög ýttu undir batann. Og senn leið að því, að óhætt væri að taka umbúðirn- ar frá augum sjúklingsins. Og Gladys varð að lofa því, að þegar sá tími kæmi, skyldi Edgar fá að koma og heilsa upp á Reginald. Daginn áður en átti að taka bandið frá augum hans, kom yfiriæknirinn inn á nr. 7. Hann fór að spjalla yið Thornton um námuslysið, Og áður en hjúkrunar-

x

Sögur og skrítlur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sögur og skrítlur
https://timarit.is/publication/1668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.