Sögur og skrítlur - 15.07.1938, Qupperneq 13

Sögur og skrítlur - 15.07.1938, Qupperneq 13
Sögur og skrístlur 11 nú blaut Ramóna þó að hafa lært það, að bænsni voru friðhelg. Og svo var hún leyst úr bandi. En undireins daginn eftir, þegar Ramóna fór út með börnunum. fékk hún þef af bústinni og þriflegri hænu á einum bænum og elti hana og hætti ekki, fyrr en hún hafði stútað henni og fært börnunum hana. Um kvöldið kom konan á bænum og barmaði sér illa yfir árans tíkinni, sem dræpi allt lifandi nálægt sér. Og leikslokin urðu þau. að við urðum enn á ný að borga fyrir hænu og hafa hana til miðdegisverðar. Að þessu sinni var það húsmóðirin sjálf, sem tók að sér að kenna tíkinni mannasiðu. Refsingin var hátíðleg og ýtarleg mjög. En tíkin opnaði ekki sinn munn, hún stóð grafkyr og róleg og tók öllu með þögn og þolinmæði og varð ekki einusinni þykkin — bún skildi hvernig í öllu lá, — og fyrirgaf það. >Óskepnan þín,< sagði húsmóðirin, »óhræsis Ramóna, hvað hefirðu nú gert einusinni enn? Sko hérna, sérðu hænuna þá arna? Og nú skaltu verða barin!* En það sveið ekkert undan prikinu. Húsmóðirin var of hjartagöð, og tíkin hafði of þykkan feld. Eins og við var að búast, hafði þetta engin áhrif á syndarann. Ramóna stóð nú bundin allan daginn, en var leyst á kvöldin, þegar allt íiðrað hafði setzt til svefns á vögluni sínum. Það var aðeins eitt, sem brást í þessari áætlun. Hver vaknar eins snemma og hundarnir? Ekki fólk að minnsta kosti. En hænsnin eru árvökur. Og svo hendi það, að Ramónu tókst að kverka eina eða tvær

x

Sögur og skrítlur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sögur og skrítlur
https://timarit.is/publication/1668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.