Sögur og skrítlur - 15.07.1938, Síða 15
Börnin sem villtusi
í Hyde-Park*)
Fred og Mary — tvíburarnir litlu — höfðu nærri
því daglega heyrt sagða söguna um það, hvernig á
því hefði staðið, að foreldrar þeirra skiidu, Pabbi
þeirra, James Ferguson hafði skömmu eftir brúðkaupið
drukkið sig þreifandi fullan, Og þá skömm og hneisu
hafði ekki Elsie móðir þeirra viljað þola. Þau höfðu
lent í háa rifrildi, sem lauk með því, að Elsie skellti
útihurðinni á eftir sér og fór heim til foreldra sinna.
f*ar grét hún lengi og sárt, en var hugguð eftir beztu
getu og sofnaði svo út frá öllu saman. En er hún
hélt heim aftur með hjartað fullt af fyrirgefningu, var
maðurinn hennar ekki í húsinu og fannst hvergi. Síð-
an hafði hún aldrei séð hann, og votu þó liðin fimm
ár frá því þetta'hendi.
Elsie vöknaði um augu í hvert sinn, og hún sagði
sögulokin. Og tvíburarnir grétu einnig ofurlítið mömmu
sinni til samlætis. — — —
*) Hyde Park er stærsti lystigarðurinn i
Lundúnum, og er geysimikið landflæmi.
Þýð.