Fréttablaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 36
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
STÓR PIZZA
PÖNNUTILBOÐ
ALLA DAGA Í MARS
1. 590
PEPPERONI • HAWAII • MARGARITA
EF ÞÚ SÆKIR
pizzahut.is - 515 1617 - Smáralind og Staðarbergi 2–4 Hafnarfirði
margret@frettabladid.is
Smá blóð er ekki að fara að eyði-
leggja allt, segir kynfræðingurinn
Indíana Rós Ægisdóttir, um blæð-
ingakynlíf, og segist fagna þeirri
þróun að túrblóð sé loksins að verða
eðlilegt. Á Íslandi eru nú komnar á
markað vörur sem miða að því að
bæta upplifun fólks á blæðinga-
kynlífi.
„Fólk getur auðvitað verið mis-
verkjað á túr og mismunandi hvort
fólk sé til í kynlíf yfirhöfuð. Sum
verða extra gröð og til í kynlíf á
meðan túrinn er á meðan aðrir vilja
ekki heyra minnst á kynlíf,“ segir
Indíana Rós.
„Svo er kynlíf auðvitað miklu
meir en samfarir þar sem eitthvað
fer inn í leggöng, svo það er alltaf
hægt að skella í sig túrtappa, bikar
eða einhverri annarri tíðavöru og
nota ímyndunaraf lið. Kynlíf og
fullnægingar losa auðvitað um hell-
ings af vellíðunarhormónum sem
geta minnkað túrverki og vanlíðan
á meðan túrinn er.“
Latexbuxur fyrir leikinn
Saga Lluvia Sigurðardóttir, rekstrar-
stjóri kynlífstækjaverslunarinnar
Losta, tekur undir það. „Það er svo
gaman að sjá þróunina að túrblóð
sé loksins að verða eðlilegt, sem það
er og hefur alltaf verið. Það er ekkert
óalgengt að fólk vilji stunda kynlíf
á túr.“
Að sögn Sögu Lluviu hefur þeim
vörum fjölgað á markaðnum, sem
miða að því að bæta upplifun fólks
á blæðingakynlífi. „Til dæmis eru til
latex-nærbuxur sem þú klæðist til
þess að stunda kynlíf, efnið er ótrú-
lega teygjanlegt.“
Hún segir að vegna þess hve
þunnar nærbuxurnar séu finni
fólk fyrir allri snertingu og örvun í
gegnum þær. „Þær eru það teygjan-
legar að þú getur stungið puttum
inn í leggöng í gegn um nærbux-
urnar.“ Saga Lluvia segir kynlíf vera
mjög verkjastillandi og að gredda
eða aukin kynhvöt sé mjög eðlileg
í kringum blæðingar. ■
Teygjanlegar túrbrækur úr latexi
lausnin í lostafullu blæðingakynlífi
Saga Lluvia
Sigurðardóttir,
verslunareig-
andi
Indíana Rós
Ægisdóttir kyn-
fræðingur
„Ég er frá Portúgal og hef
búið á Íslandi í sex ár. Á þeim
tíma hef ég hitt rétta fólkið
og skapað tengslanet sem ég
vissi að myndi gagnast mér
vel núna,“ segir skipuleggj-
andi góðgerðartónleikanna
ReyKYIVík sem fram fara á
Húrra í kvöld, hverra ágóði
rennur til góðgerðarsam-
takanna Flottafólks.
ninarichter@frettabladid.is
Portúgalski tónlistarmaðurinn
Alexandre M. Gonçalves er einn
skipuleggjenda góðgerðartónleika
til styrktar nauðstöddum Úkraínu-
mönnum sem fara fram á skemmti-
staðnum Húrra í kvöld.
Ekki er rukkaður aðgangseyrir, en
þess í stað tekið við frjálsum fram-
lögum. „Tónlistarfólkinu fannst
mikilvægt að hleypa öllum að og
líka þeim sem ekki hafa ráð á að
greiða aðgangseyri,“ segir Alexandre.
„Við vildum bara gera allt sem við
gátum. Við sem skipuleggjum þetta
erum tónlistarmenn og vildum nota
aðstöðu okkar og hæfileika.“
Skemmtistaðurinn Húrra lánar
aðstöðuna skipuleggjendum að
kostnaðarlausu. Alexandre kann
þeim miklar þakkir fyrir og segir
Húrra einnig hafa útvegað hljóð-
mann sem gefi vinnu sína í verk-
efnið.
Aðspurður hvort félagarnir hafi
persónulega tengingu við málið
segir Alexandre að svo sé ekki. „Nei,
það er engin slík tenging. Mér finnst
skrýtið að árið 2022 sé fólk að ráðast
inn í önnur lönd og reyna að drepa
fólk. Það er bara of mikið,“ segir
Alexandre.
Ætlaði að syngja þjóðsönginn
Alexandre segir skipuleggjendur
hafa haft samband við tónlistar-
fólk úr tengslaneti sínu, en þeir hafi
boðað til viðburðarins með viku
fyrirvara. „Við vorum síðan með
konu frá Úkraínu sem ætlaði að
koma og f lytja úkraínska þjóð-
sönginn. En hún gat því miður ekki
komið af því að mamma hennar er
þessa stundina að reyna að f lýja
stríðið,“ segir hann. „Mamman er
að reyna að komast til Íslands og
konan þarf því að vera til taks allan
sólarhringinn, til að sækja hana á
flugvöllinn.“
Að sögn Alexandre lögðu þeir upp
með að styrkja góðgerðarsamtök
sem starfrækt væru hérlendis. „Við
vildum velja góðgerðarsamtök sem
einbeittu sér að neyðarhjálp á svæð-
unum þar sem blóðsúthellingar eru
að eiga sér stað núna,“ segir hann.
„Við vildum líka velja samtök sem
starfrækt eru héðan vegna þess að
við teljum að þeim mun skemmri
vegalengd sem fjármagnið ferðast,
þeim mun líklegra sé að það skili
sér á réttan stað. Við fundum því
góðgerðarsamtökin Flottafólk, sem
aðstoða úkraínska flóttamenn við
að komast til Íslands,“ segir hann.
„Við seljum líka boli sem Viktor
Weisshappel hannaði. Ágóðinn af
sölunni rennur beint til UNICEF-
verkefnisins sem styður við börn
í Úkraínu. Við vildum tryggja að
söfnunin gagnaðist f lóttafólki við
að komast til landsins en líka fólki
sem er í þessum aðstæðum, núna.“
Tónlistarkonan Salóme Katrín hefur
leika klukkan 20.00, diskóstjörn-
urnar í Flott stíga næstar á svið, þá
koma rokkararnir í Sucks to be you
Nigel og kvöldinu er síðan lokað með
dansvænum tónum BSÍ. ■
Leggja flóttamönnum
lið með ljúfum tónum
Alexandre M.
Gonçalves, einn
skipuleggjenda
góðgerðartón-
leika á Húrra
Bolir eftir Viktor
Weisshappel
eru til sölu á við-
burðinum.
MYND/AÐSEND
28 Lífið 17. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ