Fréttablaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 12
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hann er
ekki sama
víðsýna og
umburðar-
lynda
stjórn-
málaaflið
og hann
var áður
þegar hann
var mynd-
aður af
breiðfylk-
ingu fólks
frá ysta
hægri inn
að mildri
miðju.
Miklu
skiptir
að þetta
fólk mæti
hér hlýju,
skilningi
og fjöl-
þættri
aðstoð.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Aðalfundur Ferðafélagsins Útivistar verður haldinn
fimmtudaginn 31. mars 2022 kl. 20.
Fundurinn verður haldinn í sal
Garðyrkjufélags Íslands að Síðumúla 1.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar
Ferðafélagið Útivist
AÐALFUNDUR
arib@frettabladid.is
The Man
Alveg eins og kínamatur í Kína
er einfaldlega kallaður matur þá
hlýtur sýslumaður án sýslu ein
faldlega að kallast „maður“, eða
„maðurinn“. Á skiltunum fyrir
utan útibúin má endilega fylgja
ensk þýðing, „The Man“. Það
kann líka að vera að stofnana
nafna nefnd dragi upp nafnið
stiftamtmaður ríkisins. Sama
hvernig fer með nafnið á end
anum þá er alveg ljóst að búið er
að ákveða hver verði fyrsti „The
Man“, það er Brynjar Níelsson,
ekki ráðherra heldur landstjóri.
Bensínstöðvasjoppuhreppur
Örnefnanefnd heldur áfram að
sinna því hlutverki sínu að drepa
allar mögulega skemmtilegar
hugmyndir sem gætu gert fólk
stolt af sinni heimabyggð. Nú
á að passa upp á að sameining
Skútustaðahrepps og Þingeyjar
sveitar verði til þess að drepa
kortalesendur úr leiðindum.
Tillögurnar eru Zzzzþing, Ein
hverstaður og Bensínstöðva
sjoppuhreppur. Óvíst er hvort
heimamenn berjist gegn þeim
leiðindum enda hættulega
nálægt Múlaþingi. Það eru full
komlega sæmilegir valkostir
til að berjast fyrir, þar á meðal
Andabyggð, sem hljómar eins
og Andabær. Hraunborg, sem
rykföllnu málfræðingarnir telja
ekki hæfa því svæðið hefur verið
dæmt til dreifbýlis til eilífðar. Og
Mýþing, sem er nett. ■
Forkólfar Sjálfstæðisflokksins leggja
höfuðáherslu á það í sinni pólitík að
vera utan helsta og sterkasta friðar
bandalags Evrópu þar sem lýðræði,
markaðsfrelsi, samkeppni og nýsköpun
skipta meginmáli ásamt afdráttarlausri áherslu
á mannréttindi. Af ræðum þeirra og ritum
má eiginlega ráða að Íslandi standi ekki meiri
stuggur af nokkru bandalagi – og að nokkurn
veginn allt sem það standi fyrir sé Íslendingum
óviðkomandi. Gott ef sama bandalag muni ekki
gleypa landið í einum bita fari svo að Ísland
gangi í björgin þau arna.
Gamli flokkurinn sem talaði á fyrri tíðum
digurbarkalega fyrir vestrænni samvinnu og
öflugum viðskiptasamböndum á alþjóðavísu
er nú hjáróma talsmaður þess að hundsa helsta
efnahagsbandalag álfunnar sem líklega hefur
aldrei staðið sterkar og þéttar saman um að
hrista af sér óværu einræðis og yfirgangs í sínum
heimshluta.
Þessi einbeitti ásetningur flokksins er líklega
stærsti pólitíski afleikurinn í sögu hans. Honum
er bókstaflega stefnt gegn meginstefnumálum
flokksins um frelsi og markaðshyggju. Hann er
úr takti við kröfu hans um óskorað lýðræði og
réttarríki. Og það er auðvitað líka til marks um
þessa veruleikafirringu flokksins að hann er eini
hægriflokkurinn af sínu tagi í Evrópu sem efast
jafn óskaplega um ágæti bandalagsins, ellegar –
og það er kannski betur orðað – hræðist það og
skelfist. Raunar er nú svo komið að flokkurinn
er úti á þekju í evrópsku samstarfi hægriflokka
vegna þessa og varla eða ekki húsum hæfur með
langflestum þeirra, enda er það höfuðeinkenni
langflestra sambærilegra flokka á meginlandi
álfunnar að tala fyrir sterku efnahagsbandalagi.
Ásýnd Sjálfstæðisflokksins hefur beðið
hnekki vegna þessa. Það sér á flokknum. Hann
er ekki sama víðsýna og umburðarlynda stjórn
málaaflið og hann var áður þegar hann var
myndaður af breiðfylkingu fólks frá ysta hægri
inn að mildri miðju. Hann hefur einangrast í
afturhaldi og óttablandinni umræðu um að
hagsmunum Íslands sé best borgið með tak
markaðri aðild að sterkasta lýðræðisbandalagi
heims, en þiggja þaðan molana, vissulega, án
þess þó að hafa þar nokkuð að segja um reglu
verk og ákvarðanir.
Sjálfstæðisflokkurinn er að þessu leyti úti á
túni í Evrópu. Og það er hlutskipti sem hann
hefur ákveðið sjálfum sér. Það eru ótrúleg örlög
flokks sem lagði á það ofuráherslu í eina tíð
að vera fjöldahreyfing fólks sem virðir vest
ræna samvinnu umfram allt annað. En kannski
langar hann bara að verða lítill? ■
Afleikurinn
Á annað hundrað flóttamenn frá Úkraínu hafa óskað
eftir hæli hérlendis. Væntanlega verður tekið á móti
um 2.000 manns. Sumir snúa jafnvel aldrei aftur heim.
Miklu skiptir að þetta fólk mæti hér hlýju, skilningi og
fjölþættri aðstoð.
Margt þessa stríðshrjáða fólks mun setjast að
með börn sín í Reykjavík. Við getum átt von á 200
úkraínskum börnum til Reykjavíkur, jafnvel fleiri.
Borgarbúar, fyrirtæki og stéttarfélög hafa boðið fram
húsnæði af öllu tagi. Þak yfir höfuðið er frumskilyrði.
Umfangsmikillar aðstoðar er þörf
Flóttamennirnir koma hingað allslausir. Hlutverk
Reykjavíkurborgar er að veita flóttafólkinu fjárhags
lega og félagslega aðstoð. Börnin þurfa að komast sem
fyrst í leik og grunnskóla, í frístund og tómstundir.
Mikilvægt að þau geti sem allra fyrst lifað eðlilegu og
öruggu lífi.
Ljóst er að nú þarf borgarmeirihlutinn að endur
skoða útdeilingu fjármagns. Fresta fjárfrekum fram
kvæmdum. Geislabaugurinn skrautlegi á Lækjartorgi
verður að fara á ís. Sama gildir um önnur verkefni sem
ekki eru nauðsynleg.
Bíða með fjárfrekar framkvæmdir
Flokkur fólksins vill breyta forgangsröðun við
útdeilingu fjármagns. Setja á fólk og þarfir þess í
fyrsta sæti. Með komu úkraínsku barnanna bætist
í hóp barna sem þarfnast aðstoðar af ýmsu tagi.
Meirihlutinn getur ekki lengur lamið hausnum við
steininn. Flokkur fólksins skorar á borgarstjóra og
meirihlutann að sýna lit. Langir biðlistar eru eftir
aðstoð af öllu tagi í Reykjavík. Börnin, sem bíða eftir
fagþjónustu skóla, eru 1.804. Langur biðlisti er eftir
félagslegu húsnæði og sértæku fyrir fatlaða. Ef spilin
verða ekki endurstokkuð er hætta á að Reykjavíkur
borg axli hvorki ábyrgð sína um lögbundna þjónustu
né megni að sinna stríðshrjáðum fjölskyldum frá
Úkraínu. ■
Geislabaugurinn á
Lækjartorgi á ís
Kolbrún
Baldursdóttir
oddviti Flokks
fólksins í Reykja
vík
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 17. mars 2022 FIMMTUDAGUR