Fréttablaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 13
Óöryggið er utan bandalaga Evrópu. Blóðbaðið í Úkraínu er sterk áminn- ing. Það sýnir hversu f ljótt veður skipast í lofti. Þessa daga skilja engir betur en Úkraínumenn að afl lýðræðisþjóða í Evrópu til að tryggja hagsmuni sína felst í aðild að Evrópusamband- inu og Atlantshafsbandalaginu. Einhugur í stað efasemda Allar lýðræðisþjóðir álfunnar deila þessum skilningi með úkraínsku þjóðinni. En örlög hennar ráðast nú af því að hún stendur utan dyra. Fyrir rúmu ári voru uppi raun- verulegar efasemdir um hvort Atlantshafsbandalagið gæti staðið við fimmtu grein sáttmálans um að árás á eitt ríki jafngilti árás á þau öll. Þáverandi forseti Banda- ríkjanna hafði berum orðum gefið til kynna að það væri ekki gefið mál. Nú er bandalagið meira einhuga en nokkru sinni fyrr. Eins er með Evrópusambandið. Brexit og uppgangur popúlista í Evr- ópu leiddi í fyrstu til þess að margir efuðust um að það gæti áfram verið kjölfesta stöðugleika, hagsældar og friðar, ef verulega reyndi á. Það gerðist hins vegar ekki. Eitt í útlöndum en annað heima Nokkrum dögum eftir innrás Rússa fékk forsætisráðherra fyrirspurn á Alþingi um hvort full samstaða væri í ríkisstjórninni um allar aðgerðir Evrópusambandsins og Atlantshafs- bandalagsins. Forsætisráðherra sagði að þrátt fyrir stefnu VG talaði hún á erlend- um vettvangi fyrir þjóðaröryggis- stefnunni, sem Alþingi samþykkti en flokkur hennar gat ekki fellt sig við. Hvað þýðir þetta í raun og veru? Það er vissulega samstaða í ríkis- stjórninni um stuðning við allar aðgerðir bandalagsþjóðanna. En forsætisráðherra talar bara á erlendum vettvangi fyrir utanríkis- stefnunni. Hún ætlar öðrum að færa rök fyrir henni hér heima. Styrkurinn felst í sannfæringunni En þessi orð segja annað og meira. Þegar leiðtogi þjóðarinnar talar á erlendum vettvangi fyrir utanríkis- stefnunni er það vegna lagaskyldu en ekki sannfæringar. Forsætisráðherra og f lokkur hennar telja hagsmunum Íslands best borgið utan Atlantshafsbanda- lagsins og Evrópusambandsins. En nú eins og jafnan áður felst styrkurinn í málf lutningi fyrir íslenskri utanríkisstefnu í sann- færingu fyrir málstaðnum. Veikleikinn felst í tilvísun í sam- þykktir, sem aðrir hafa gert. Samstarfsflokkar VG í ríkisstjórn hafa ákveðið að málf lutningur á þeim grunni þjóni best íslenskum hagsmunum, jafnvel á örlagaríkum tímum. Hjartað sló ekki með Í minni mitt er greipt gamalt sjón- varpsviðtal, sem Bogi Ágústsson átti við Uffe Ellemann-Jensen fyrr- verandi utanríkisráðherra Dana. Þar sagði þessi reyndi stjórnmála- leiðtogi að engin þjóð ætti að sækja um aðild að Evrópusambandinu nema gera það með hjartanu. Með öðrum orðum: það þarf sann- færingu fyrir því að hagsmunum þjóðarinnar sé best borgið þar og hjartað þarf að slá með þeim gild- um, sem samstarfið snýst um. Þegar Ísland sótti um aðild 2009 samþykkti VG umsóknina í ríkis- stjórn og á Alþingi en lýsti því jafn- framt yfir að það myndi vinna gegn henni í samræmi við stefnu flokks- ins. Hjartað sló sem sagt ekki með. Því fór sem fór. Langvarandi áhrif Heimsmyndin hefur mikið breyst frá því í kalda stríðinu. Og styrjöldin í Úkraínu hefur svo kollvarpað hlut- unum. Þessir grimmilegu atburðir munu hafa meiri áhrif á valdahlut- föllin milli lýðræðis og einræðis í heiminum en við sáum áður fyrir. Mestu áhrifin fyrir Ísland koma fram í því að í fyrirsjáanlegri fram- tíð munum við í ríkari mæli en áður tryggja hagsmuni okkar best með aukinni efnahagslegri samvinnu og viðskiptum við bandalagsríki í Evrópu. Þar verður öruggast skjól fyrir frjáls viðskipti. Óöryggið er utan bandalaga Evr- ópu. Pólitísk staða Íslands styrkist hins vegar með setu við borðið í Evr- ópusambandinu eins og í Atlants- hafsbandalaginu. Nýtt stöðumat Lokaskrefið frá aðild að innri mark- aði Evrópusambandsins til fullrar aðildar gerist ekki í einu vetfangi. Það kallar á umræðu milli f lokka og innan f lokka. En nýtt stöðu- mat er óhjákvæmilegt. Orð eru til alls fyrst. Fyrsta skrefið er að opna umræðu, sem hefur verið lokuð. Við höfum séð vel að undan- förnu að samvinna í varnarmálum og efnahags- og viðskiptamálum verður ekki í sundur greind. Og við höfum fundið að slík samvinna verður að byggjast á sameiginlegum gildum. n Hjartað þarf að slá með Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli FIMMTUDAGUR 17. mars 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.