Fréttablaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 17.03.2022, Blaðsíða 18
Tónlistarmaðurinn Ísidór sendi í síðasta mánuði frá sér fyrsta lagið af væntanlegri plötu sem kemur út í vor. Lagið heitir Ekki fokkí mér en væntanleg plata er að hans sögn í raun tilraun til að búa til músík sem er byggð á popptónlist. „Ég hef samið mikið af tilraunatónlist og tónverkum og í þeim reynt að vinna með hljóð og áferðir sem eru óhefðbundnar. Gerð þessarar plötu var mín tilraun til að taka þessi óhefðbundnu hljóð og máta þau við form popptónlistar. Platan er búin að vera til í þó nokkurn tíma, í að verða tvö ár. En loksins kom allt það saman sem þurfti til að leyfa henni að líta dagsins ljós.“ Með mörg járn í eldinum Ísidór, sem heitir fullu nafni Ísidór Jökull Bjarnason, útskrifaðist með BA í nýmiðlatónsmíðum síðasta vor. „Ég hef unnið sem hljóðmaður hjá Borgarleikhúsinu í nokkur ár og hef mikinn áhuga á leikhúsi og gjörningalist. Ég hef verið að semja og spila tónlist síðan ég var í grunnskóla og spilað í alls konar bílskúrsböndum. Sá áhugi óx svo stöðugt í menntaskóla. Á seinasta ári gáfum við drengirnir í hljóm- sveitinni Vill, sem inniheldur auk mín Muna og Jóa Pé, út plötuna Milljón Ár.“ Hann samdi einnig tónlistina og hljóðhannaði fyrir leikritið Ég hleyp, sem frumsýnt var nú í mars í Borgarleikhúsinu. „Sýningin er einleikur, en Gísli Örn leikur og Harpa Arnardóttir leikstýrir. Sýningin hefur hlotið góða dóma og er ég hæstánægður með mjög jákvæða umfjöllun um tónlistina í verkinu.“ Gaman að vinna með öðrum Það eru því spennandi tímar fram undan að hans sögn. „Mig langar mikið að vinna að fleiri tónverkum. Bæði sjálfstæð verk og verk fyrir aðra miðla, eins og kvikmynda- og leikhústónlist. Ég er í augnablikinu að elta uppi nýjar áskoranir og að reyna að koma sjálfum mér á óvart með því sem ég er að semja. Einnig hef ég mjög gaman af því að semja og pródús- era músík með öðru tónlistarfólki og langar að gera meira af því.“ Ísidór Jökull Bjarnason sýnir lesendum inn í fataskápinn sinn. Spurt og svarað: Hvernig hefur tískuáhugi þinn þróast undanfarin ár? Tískuáhugi minn hefur gjör- breyst á seinustu árum. Það er ekki mjög langt síðan ég velti mér voða lítið upp úr tísku og mínum eigin fatastíl. Í dag nýt ég þess mikið að gera tilraunir og skoða nýja hluti. Mér finnst skemmtilegt að skoða smáatriðin í f líkum, hvernig breytingar í sniðum breyta stemm- ingunni og svoleiðis. Hvernig fylgist þú helst með tískunni? Ég er að elta nokkur fatamerki og verslanir á samfélagsmiðlum en skoða aðallega fólk í kringum mig. Ég á nokkra vini sem eru að læra fatahönnun og kynnist nýjum pælingum í gegnum þá. Annars reyni ég bara að fara í búðir og skoða nýjar fatalínur. Hvar kaupir þú helst fötin þín? Ég kaupi flest allt notað, í Verzl- anahöllinni eða álíka stöðum. Annars reyni ég líka að grípa flíkur í spennandi fatabúðum erlendis sem eru kannski með annan stíl í boði en er hérna heima. Hvaða litir eru í uppáhaldi? Ég hef verið að vinna með dökka liti í dágóðan tíma núna en er að koma mér út úr því. Ég leyfi mér ekki að kaupa neitt svart í augna- blikinu. Annars hugsa ég almennt ekki um hluti sem uppáhalds. Það fer alltaf eftir samhengi og Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Hér klæðist Ísidór Misbhv-gollu og bol frá COS. Prufubuxurnar eru saumaðar af Eysteini Aroni Halldórssyni og Muna Jakobssyni. Svartur eyrnalokkurinn er frá Högnu Heiðbjörtu Jónsdóttur. Hér klæðist Ísidór 66°Norður x CCTV-jakka og peysan er saumuð af Muna Jakobssyni. .FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Samsøe Samsøe vegan leðurbuxur og hvítur netabolur sem var keyptur not- aður. Keðju-eyrnalokkar frá Högnu Heiðbjörtu Jónsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Starri Freyr Jónsson starri @frettabladid.is stemningunni sem maður er í. Þessa stundina er ég samt mikið að horfa til jarðlita, líður þannig þessa dagana. Áttu minningar um gömul tísku- slys? Þó nokkur af unglingsárum mínum voru tískuslys út í gegn, endalausir litir settir saman alveg samhengislaust. Það er að hluta til af hverju ég færði mig meira í dökka liti, mig vantaði eiginlega „reset“ á minn eigin fatastíl. Hvaða þekkti einstaklingur er svalur þegar kemur að tísku? Hef alltaf fílað lúkkið á King Krule og A$ap Rocky. Hvaða f líkur hefur þú átt lengst og notar enn þá? Það er líklegast svarta Rassvet crewneck-peysan mín. Áttu uppáhaldsverslanir? Hérna heima fíla ég að fara í Verzlanahöllina og Rauða kross- inn. Þegar ég ferðast reyni ég alltaf að taka góðan hring í Acne, það er svo gaman að skoða flíkurnar þar og sækja innblástur. Einnig hef ég gaman af því að skoða Doverstreet Market á netinu. Áttu eina uppáhaldsf lík? Ég held að það myndi vera mjúku leðurbuxur frá Samsøe samsøe. Notar þú fylgihluti? Ég er alltaf með hálsmen og eyrnalokka og nýt þess mikið að nota mismunandi skartgripi við mismunandi lúkk. Eyðir þú miklum peningum í föt miðað við jafnaldra þína? Nei, ég geri það ekki. Mér finnst best að kaupa notað og missi mig ekki í búðum almennt. Það koma líka oft löng tímabil þar sem ég velti tísku lítið fyrir mér og eyði öllum mínum pælingum í músík eða verk sem ég er að vinna að. Tek síðan tímabil á móti þar sem ég pæli í fötum og er þá duglegri að kaupa nýjar flíkur. n Ég er í augnablik- inu að elta uppi nýjar áskoranir og að reyna að koma sjálfum mér á óvart með því sem ég er að semja. Mér finnst skemmti- legt að skoða smáatriðin í flíkum, hvernig breytingar í sniðum breyta stemm- ingunni og svoleiðis. 2 kynningarblað A L LT 17. mars 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.