Fréttablaðið - 24.03.2022, Page 1
5 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 2 4 . M A R S 2 0 2 2
Samupplifunin
er mikilvæg
Kántrísveifla í
gangi í poppinu
Lífið ➤ 20 Lífið ➤ 22 HRINGINN
OPIÐ ALLAN
SÓLAR-
Á GRANDA
OG Í MJÓDD
Pssst ...
Einn smellur og
maturinn lifnar við!
– með Snjallverslun Krónunnar
Þú finnur
Snjallverslun
Krónunnar í
App store
Play store
kronan.is
Forsætisráðherra segir
áherslu vera lagða á mesta
mögulega gagnsæi við sölu
Íslandsbanka.
elinhirst@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA „Þegar viðskiptin
verða gerð upp mun Bankasýsla
ríkisins birta upplýsingar um þau
enda áhersla stjórnvalda að eins
mikið gagnsæi og mögulegt er ríki
um söluna. Verðmæti eftirstand-
andi hluta ríkisins jókst verulega
eftir frumútboðið í fyrra þannig að
það verð sem fékkst nú var í takti
við væntingar,“ segir Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra.
„Fyrsti hluti Íslandsbanka – eða
35 prósent – var seldur í fyrra með
þátttöku meira en 20.000 nýrra
hluthafa. Núna er seldur um það bil
fimmtungur með söluaðferð sem
er sambærileg því ferli sem víðast
hvar er notað í sambærilegum við-
skiptum í Evrópu.“
Bjarni Benediktsson, fjármála-
og efnahagsráðherra, kveðst mjög
ánægður með söluna og fram-
kvæmd hennar. Hann segist sjálfur
ekki hafa séð lista yfir kaupendur
enn þá, en næst sé að gera grein
fyrir hvernig kaupendahóparnir
skiptast. Það séu að langmestu leyti
innlendir aðilar sem hafi keypt í
Íslandsbankaútboðinu og lífeyris-
sjóðirnir séu stærstir.
„Mér sýnist að það sé íslenskur
almenningur sem er að verða eig-
endur í bankanum gegnum lífeyr-
issjóðina. Við erum að koma á heil-
brigðara eignarhaldi í bankakerfinu
og við erum að fá mjög gott verð,“
segir Bjarni. SJÁ SÍÐU 4 OG 8
Áherslan á mesta mögulega
gagnsæi við sölu bankans
D Ó M S M Á L Fy r r verandi íbúar
Bræðraborgarstígs 1 og fjölskyldur
þeirra þriggja sem létust í brun-
anum í húsinu sumarið 2020 hafa
stefnt eiganda hússins og krefjast
bóta upp á rúmar 324 milljónir.
Upphæð bótanna sem er krafist er
allt frá fjórum milljónum upp í nær
30 milljónir, samanlagt 324.174.202
krónur auk vaxta.
Í stefnunni er vísað í skýrslu Hús-
næðis- og mannvirkjastofnunar, í
minnisblaði byggingarverkfræð-
ings sem unnið var fyrir lögmann
eigandans eru miklar athugasemdir
gerðar við ýmis atriði í skýrslunni.
Miða hefði átt við reglugerð bruna-
varna frá byrjun 20. aldar en ekki
síðustu aldamótum. SJÁ SÍÐU 4
Krefja eiganda á
Bræðraborgarstíg
um 300 milljónir
FÓTBOLTI Af þeim ársreikningum
sem knattspyrnufélög í tveimur
efstu deildum á Íslandi hafa skilað
er aðeins ÍA sem greinir frá því
hversu mikinn ríkisstyrk félagið
fékk en það fékk um 30 milljónir
króna í ríkisstyrk.
Öll íþróttafélög gátu sótt um styrk
vegna Covid-lokana. Flest félög færa
þessa fjármuni undir aðrar tekjur og
því er ekki hægt að sjá hversu mikið
ríkið setti í vasa knattspyrnudeilda
á síðasta ári. Ljóst er að stærri félög
á höfuðborgarsvæðinu fengu stærri
sneið af kökunni en Skagamenn.
Mikil aukning er í útgjöldum og
virðist vera launaskrið í íslenskum
fótbolta en laun og launatengd gjöld
hækka mikið á milli ára. SJÁ SÍÐU 12
Ríkið varði háum
fjárhæðum til
knattspyrnustarfs
Lífeyrissjóðir eru
stærstu kaupendur
í útboðinu í Íslands-
banka.
Það er til marks um endalok samkomutakmarkana sem fylgdu Covid-faraldrinum að í gær náðu þessir stórglæsilegu nemendur í 7. bekk Vesturbæjarskóla að frumsýna jólaleikritið Jóladagbókin.
Leikritinu hefur verið frestað síðustu tvenn jól en nú, skömmu fyrir páska, fengu foreldrar að koma í sal skólans og njóta sýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK