Fréttablaðið - 24.03.2022, Síða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Hildur er litaglöð í fatavali og
leitast almennt eftir því að blanda
saman nýjum og notuðum flíkum
með glæsilegri útkomu. Hún þorir
að fara sínar eigin leiðir og fylgja
sannfæringu sinni og þar koma
stjórnmálin sterk inn. Hildur hefur
alltaf haft mikinn áhuga á stjórn-
málum, fasteignum, útihlaupum og
sætabrauði sem má segja að sé afar
góð blanda.
Eins og komið hefur fram er
Hildur nýkjörinn oddviti Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík en hún hefur
starfað sem borgarfulltrúi síðast-
liðin fjögur ár. „Ég hef heilmikla
ástríðu fyrir borgarmálunum enda
standa þau fólki svo nærri. Þau snúa
að daglegu lífi fólks og nauðsyn-
legri þjónustu í hversdeginum. Ég
elska borgina og brenn fyrir því að
gera hana betri fyrir okkur öll.“
Hefur þú ávallt haft skoðun á því
hvernig fötum þú vilt klæðast?
„Ætli ég hafi ekki haft nokkuð
sterkar skoðanir á því alveg frá
barnæsku. Fataval er samt enginn
miðpunktur í mínu lífi og ég á
fremur auðvelt með að velja föt sem
henta mér.“
Mamma og móðuramma
fyrirmyndirnar
Þegar Hildur er spurð hvort hún
eigi sér fyrirmynd þegar kemur að
klæðaburði segir hún að það séu
þær sem hafa staðið henni næst.
„Ætli mamma og móðuramma
mín heitin séu ekki helstu fyrir-
myndirnar. Þar hefur áherslan
verið á fáar en vandaðar flíkur og
persónulegan stíl. Amma sagði
alltaf „ekkert er ódýrt sem óþarft
er“, sem er ágætt að hafa hugfast
við fatainnkaup.“
Hvernig myndir þú lýsa fata-
stílnum þínum?
„Síðustu ár hefur hann almennt
verið nokkur litskrúðugur. Hér
áður fyrr gekk ég nær eingöngu í
svörtu en nú verða bjartir litir oftar
fyrir valinu. Mér finnst gaman að
blanda saman nýju og notuðu og
legg almennt áherslu á að kaupa
færri en vandaðri flíkur.“
Kjóll og hælar við formlegheitin
Finnst þér skipta máli í hverju þú
kemur fram við formlega viðburði?
„Mér finnst aðallega skipta máli
að fötin endurspegli persónuna
og láti manni líða vel. Við formleg
tilefni vel ég sennilega oftast kjól
og háa hæla.“
Þegar konur vilja láta bera
virðingu fyrir sér og ávinna sér
traust, finnst þér þá skipta máli
hvernig þær klæða sig og hvernig
fylgihluti þær bera?
„Hér áður fyrr töldu konur sig
þurfa að klæða sig eins og karlar
til að njóta virðingar. Ég hef aldrei
nálgast fataval með þeim hætti og
finnst þvert á móti mikilvægt að
sýna konur í ábyrgðarstöðum sem
jafnframt eru kvenlegar í klæða-
burði. Ég reyni að ávinna mér
traust með gjörðum og framkomu
– fatavalið endurspeglar svo bara
persónuleikann.“
Aðspurð segist Hildur vera
mikið fyrir föt sem eru inndregin
í mittið þegar kemur að vali á
sniðum. Það heilli hana frekar
er annað. „Ég er mikið fyrir föt
sem eru inndregin í mittið en að
öðru leyti er ég nokkuð opin fyrir
sniðum. Á síðustu árum hef ég
lagt aukna áherslu á þægileg og
klæðileg snið.“
Áttu þér uppáhaldsf líkur?
„Ég er mikið fyrir hlýjar og góðar
yfirhafnir. Í sérstöku uppáhaldi
þessa dagana er gul ullarkápa
sem ég fékk á helmingsafslætti í
COS. Ég er mikil aurasál og finnst
sérlega skemmtilegt að finna mér
góðar vörur á góðu verði.“
Áttu þinn uppáhaldshönnuð?
„Mér finnst MAGNEA alveg
svakalega flottur fatahönnuður.“
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Hildur er þekkt
fyrir sinn glæsi-
lega fatastíl og
fáguðu fram-
komu hvert
sem hún kemur.
Hún velur sér
klæðileg og
vönduð föt sem
henni líður vel í.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Hildur er mikið fyrir föt sem eru
inndregin í mitti og undirstrika
kvenlegan vöxt. Hér er Hildur í fal-
legri ljósri buxnadragt með mynstri,
sem er inndregin um mittið og við
dragtina valdi Hildur bláa hælaskó
með oddmjórri tá sem er hennar
uppáhaldsskósnið.
Bláir tónar klæða Hildi vel og má segja að blár sé einn af
hennar litum. Hér klæðist Hildur bláum gallasamfestingi
úr gallaefni, sem bundinn er í mittið og kemur vel út.
Bleikir og bláir tónar
Þegar kemur að litavali, fylgir þú
tískustraumunum hverju sinni
eða áttu þér þína uppáhaldsliti
sem þér finnst klæða þig best?
„Bleikur hefur alla tíð verið
minn uppáhaldslitur en hann
hefur ekki læðst inn í fataskápinn
í miklum mæli fyrr en síðustu ár.
Sennilega vegna tískustrauma.
Mér er reyndar sagt af mér
fróðara fólki að bleikir og bláir
tónar klæði mig vel. Sel það ekki
dýrara en ég keypti.“
Hvernig myndir þú lýsa skótísk-
unni sem þú heillast helst af?
„Ég vel mér oftast frekar fínlega
skó enda finnst mér grófari skór
klæða mig illa.“
Þegar þú velur þér fylgihluti,
hvað finnst þér vera ómissandi að
eiga í dag?
„Ég á nánast enga skartgripi
og nota lítið af fylgihlutum. En
í mínum huga eru góðir skór,
vandaðar yfirhafnir og góð
taska það mikilvægasta í fata-
skápnum.“
Flíkur sem hafa notagildi
Hildur segist vanda fatakaupin
og velja klassískar f líkur sem
endast lengi. „Ég hef síðasta
áratuginn haft aukinn áhuga á
„slow fashion“ sem byggir á því
að kaupa færri en vandaðri f líkur
sem endast um lengri tíma. Ég fer
ekki til útlanda og kaupi hrúgald
af fötum sem endast stutt. Mun
fremur kaupi ég bara eina f lík sem
endist lengur. Áður en maður veit
af hefur maður byggt upp góðan
skáp af vönduðum flíkum í klass-
ískum sniðum sem hafa notagildi
næstu áratugina. Það er eitthvað
sem ég mæli með.“ n
2 kynningarblað A L LT 24. mars 2022 FIMMTUDAGUR