Fréttablaðið - 24.03.2022, Síða 20
Sjón er sögu ríkari
og ég hvet alla til að
mæta og sjá það sem fer
fram á sýningunni Verk
og vit, þar verður mikið
að sjá í alls konar flottum
básum. Við hlökkum til
að sjá sem flesta.
4 kynningarblað 24. mars 2022 FIMMTUDAGURVERK OG VIT
Verkís veitir ráðgjöf og
alhliða þjónustu á öllum
sviðum verkfræði og í
skyldum greinum og hefur
tekið þátt í flestum stór-
framkvæmdum hér á landi.
Fyrirtækið fagnar nú 90 ára
stórafmæli og ætlar að halda
upp á það með ýmsum
hætti, meðal annars með
spennandi bás á sýningunni
Verk og vit.
oddurfreyr@frettabladid.is
„Verkís heldur upp á 90 ára afmæli
sitt í ár, en það eru nú liðin 90
ár síðan Sigurður Thoroddsen
stofnaði verkfræðistofu í Reykjavík
og miðast aldur Verkís við þann
atburð,“ segir Egill Viðarsson,
framkvæmdastjóri Verkís. „Verkís
veitir ráðgjöf og alhliða þjónustu á
öllum sviðum verkfræði og í skyld-
um greinum og í f lestum stórfram-
kvæmdum hér innanlands hefur
sérfræðiþekking Verkís komið við
sögu. Okkar hugsjón og markmið
er að byggja upp samfélög en við
höfum meðal annars komið að
gerð íþróttamannvirkja, mennta-
stofnana, heilbrigðisstofnana,
vatnsafls- og jarðvarmavirkjana og
samgönguinnviða á borð við brýr,
vegi, f lugvelli og hafnir.
Það sem gefur Verkís sérstöðu
er sú áratuga reynsla sem býr
innan veggja stofunnar og sá fjöldi
verkefna sem við höfum unnið
að, bæði innanlands og erlendis,“
segir Egill. „Við komum að verk-
efnum frá fyrsta stigi til lokastigs
framkvæmda og höfum sinnt
orkumálum, iðnaði og innviðum
eins og Landsneti, Veitum og öðru
sem heldur samfélaginu gangandi í
miklum mæli.“
Fjölbreytni tryggir
alhliða úrlausnir
„Þjónustuframboð Verkís nær til
f lestallra, bæði stórra sem smárra
viðskiptavina, þó að undan-
farið hafi stærri verkefni aukist í
verkefnasafni stofunnar. Sá fjöldi
sérfræðinga sem við höfum innan
okkar raða gerir það að verkum að
viðskiptavinir geta fengið heild-
stæða úrlausn sinna mála hjá einu
fyrirtæki. Verkís hefur mikla og
fjölbreytta reynslu og kunnáttu,“
segir Egill. „Hér starfa ekki bara
verkfræðingar og tæknifræðingar,
heldur líka náttúrufræðingar,
jarðfræðingar, viðskiptafræðingar,
fiskifræðingar, vistfræðingar og
svo framvegis. Þetta er fjölbreytt-
ari hópur en margir átta sig á.“
Vilja vera sýnileg á afmælisárinu
„Við stefnum á að vera sýnileg
á öllu landinu þetta árið, enda
erum við svo heppin að vera með
starfsstöðvar víða um landið.
Hátíðin er þegar hafin og við
stefnum á að halda að minnsta
kosti fjóra morgunverðarfundi í
höfuðstöðvum okkar í Ofanleiti.
Áherslan á þessum fundum verða
samfélagslega tengd málefni sem
allir hafa gaman af því að kynn-
ast,“ segir Egill. „Við héldum okkar
fyrsta fund núna í mars, þar sem
fjallað var um skipulag og nátt-
úruvá á lágsvæðum. Þar fengum
við gestafyrirlesara og okkar eigin
sérfræðinga til að fjalla um þetta
málefni. Næsti fundur verður svo
með áherslu á íþróttamannvirki,
svo eitthvað sé nefnt.
Við erum líka að bjóða til veg-
Níutíu ára reynsla af stórframkvæmdum
Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís, segir að það sé ýmislegt á döfinni til að fagna stórafmælinu og það verði
meðal annars gert á Verki og viti, þar sem stofan verður með stórglæsilegan og spennandi bás. MYND/PIX.IS
legra nemendaheimsókna til
okkar en það er okkur mikilvægt
að vera í góðu sambandi við helstu
menntastofnanir og skapa tengsl
við þá nema sem koma til með að
taka við keflinu í atvinnulífinu.
Við höfum ráðið til okkar sumar-
starfsfólk á hverju sumri og ráðum
síðan til okkar starfsfólk sem er
nýútskrifað úr háskóla í fram-
tíðarstörf,“ segir Egill. „Svo verður
vegleg afmælishátíð í Perlunni í
maí og þá fögnum við afmælinu
með starfsfólki og viðskiptavinum.
Svo er annað sem kemur fram
þegar líður á árið.“
Fjölmörg spennandi
verkefni í vinnslu
Verkís hefur tekið að sér gríðar-
legan fjölda af mjög fjölbreyttum
verkefnum sem fyrirtækið hefur
unnið að og mun sinna á næstunni.
„Helstu verkefnin okkar í dag
snúa að endurnýtanlegri orku,
samgöngumannvirkjum og ýmsum
innviðaverkefnum,“ segir Egill. „Þau
helstu eru stækkun og endurnýjun
á jarðvarmavirkjunum á Reykja-
nesi, bæði Svartsengi og Reykjanes-
virkjun, stækkun flugstöðvarinnar
í Keflavík, nýjar og endurbættar
akstursbrautir á Keflavíkurflug-
velli, stækkun steypuskála Norður-
áls, endurnýjun á dreifikerfi Veitna,
hönnun síðasta áfanga Arnarnes-
vegar, vatnsaflsvirkjanir í Georgíu,
flutningsverkefni fyrir Landsnet,
ýmis verkefni fyrir Vegagerðina,
nýr skóli í Nuuk á Grænlandi, ný
sundhöll í Bodø í Noregi og stækk-
anir og endurbætur á skólum, leik-
skólum, heilbrigðisstofnunum og
íþróttamannvirkjum um allt land,
ásamt ýmsum öðrum samfélags-
lega áhugaverðum verkefnum.
Þetta er eiginlega bara endalaus
upptalning, en þetta er svona það
allra helsta.
Fram undan eru svo verkefni
sem snúa almennt að orkuskiptum
framtíðarinnar, endurnýjanlegri
orku og loftslags- og umhverfis-
málum, áframhaldandi endur-
nýjun veitukerfa og framkvæmdir
á Keflavíkurflugvelli,“ segir Egill.
„Svo eru alls konar vistvottanir
varðandi sjálfbærni orðnar mjög
stórar þegar til framtíðar er litið,
svo eitthvað sé nefnt.“
Mikið um dýrðir á Verki og viti
„Verkís tekur þátt í Verki og viti, en
sýningin er að okkar mati mikil-
vægur vettvangur til að kynna
þjónustuframboðið og segja frá
því sem við höfum upp á að bjóða,
ásamt því að styrkja viðskiptasam-
bönd og afla nýrra,“ segir Egill. „Við
viljum líka vera sjáanleg og kynna
Verkís. Okkur finnst Verk og vit
vera vettvangurinn sem hentar
Verkís best til þess.
Í ár erum við í afmælisskapi og
lítum björtum augum til framtíðar.
Básinn okkar verður undirlagður af
því að halda upp á stórafmælið og
við ætlum að frumsýna afmælis-
myndband um söguna okkar,“
segir Egill. „Starfsfólk okkar verður
líka á staðnum til að svara spurn-
ingum áhugasamra og taka á móti
gestum og viðskiptavinum sem
sækja sýninguna. Við ætlum líka
að sýna sýndarveruleika sem við
notum í hönnunarvinnu, en slíkri
tækni hefur fleygt fram að undan-
förnu, virkar mjög vel og margir
af okkar helstu viðskiptavinum
vilja í auknum mæli nýta sér þessa
tækni. Hún gerir það að verkum
að hönnuðir og viðskiptavinir geta
gengið um og skoðað mannvirkin
þegar þau eru í hönnun og svo í
lokin þegar hönnun á þeim er lokið
áður en þau eru reist. Þetta er í raun
eins og hönnunarsýning í sýndar-
veruleika.
Út frá þessari tækni hefur svo
ýmis önnur tækni þróast, eins og
sjálfvirkni í hönnun þegar verið
er að endurtaka sama hlutinn, þá
er hægt að teikna hann upp einu
sinni og láta svo hugbúnað endur-
taka hönnunina eins oft og þarf,“
segir Egill. „Það eru því ýmsar
spennandi tækninýjungar að ryðja
sér til rúms á þessu sviði og við
viljum að sjálfsögðu taka þátt og
þróa okkar aðferðir.
Sjón er sögu ríkari og ég hvet
alla til að mæta og sjá það sem fer
fram á sýningunni Verk og vit, þar
verður mikið að sjá í alls konar
flottum básum. Við hlökkum til að
sjá sem flesta, enda held ég að allir
séu orðnir langeygir eftir persónu-
legum samskiptum eftir tvö ár þar
sem þau hafa verið að mestu raf-
ræn. Við erum búin að bjóða mjög
mörgum og hlökkum til að sjá sem
flesta og vonum að þetta heppnist
vel,“ segir Egill að lokum. n
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
Við erum á bás B60,
hlökkum til að sjá ykkur.
ALVÖRU
VERKFÆRI
Á TILBOÐI VEGNA
VERK OG VIT 2022
Taktu þátt, við drögum 28. mars.
Í aðalvinning er þetta glæsilega
Scott Aspect 900 fjallahjól.
Í aukavinning er Milwaukee M12 borvél.
Skannaðu QR kóðann til að skrá þig.
Skannaðu
QR kóðann
til að sjá
öll tilboðin!