Fréttablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 38
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Matthíasson
frá Arnardal, Skutulsfirði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu
Eyri, Ísafirði, mánudaginn 14. mars,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 26. mars, kl. 14.00. Streymt verður frá
athöfninni á Facebook-síðu Viðburðastofu Vestfjarða.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Erna Sigurþóra
Kristinsdóttir
Erluási 54, Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
í Hafnarfirði í faðmi fjölskyldunnar,
sunnudaginn 13. mars sl. Útför hennar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 29. mars kl. 15.00.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sólvangs, Hafnarfirði,
fyrir hlýja og góða umönnun.
Guðmundur L. Jóhannesson
Sólveig Jóhanna Guðmundsd. S. Hjörtur Guðjónsson
Kristín Þórunn Guðmundsdóttir
Valdís Björk Guðmundsdóttir Guðlaugur Jóhannsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Unnur Ólafsdóttir
til heimilis að Hrafnistu Laugarási,
áður Efstasundi 58, Reykjavík,
lést sunnudaginn 20. mars.
Útförin fer fram í Bústaðakirkju
mánudaginn 28. mars klukkan 13. Aðstandendur þakka
starfsfólki Hrafnistu fyrir umhyggju og hlýhug.
Jóhann Jakobsson
Þórlaug Ragnarsdóttir Þorvarður Gunnarsson
Kristín Ragnarsdóttir Lárus Kristinn Jónsson
Garðar Örn, Gissur Páll, Gunnar, Ragnar, Jóhann,
Sverrir, Unnur, Karen og Andrea Kristín,
og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Garðar Karlsson
Mánabraut 15, Þorlákshöfn,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þriðjudaginn 15. mars.
Útförin fer fram frá Þorlákskirkju
í Þorlákshöfn, þriðjudaginn 29. mars kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
körfuknattleiksdeild Þórs Þorlákshafnar,
kt. 680312-0950, reikn. 0152-15-200073.
Sigurður Garðarsson Erla Gunnarsdóttir
Þorsteinn Garðarsson Birna Guðjónsdóttir
Emma Katrín Garðarsdóttir Hermann G. Jónsson
Ásdís Garðarsdóttir
Sigríður Garðarsdóttir Jóhannes G. Brynleifsson
Kristinn Karl Garðarsson Þóra Skúladóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Róslín Erla Tómasdóttir
Drangshlíð 1, Akureyri,
lést 9. mars í faðmi fjölskyldunnar á
Hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð og
kunnum við starfsfólki þar sérstakar þakkir
fyrir hlýju og góða umönnun í veikindum hennar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sævar Sigurpálsson
Heiða Björk Sævarsdóttir
Halldóra Björg Sævarsdóttir Björn Grønvaldt Júlíusson
Tómas Páll Sævarsson Hrafnhildur S. Sigurgeirsd.
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar,
bróðir, fósturfaðir og afi,
Kristján Albert
Guðmundsson
kennari,
frá Látrum í Aðalvík,
lést á Hrafnistu Reykjavík mánudaginn 14. mars.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
30. mars klukkan 13.
Halldór Kristjánsson
Finnur Eðvarð Kristjánsson
Ingibjörg Sólrún Guðmundsdóttir
Friðrik Baldursson Njála Laufdal
barnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þormóður Ásvaldsson
Ökrum, Reykjadal,
lést á dvalarheimilinu Hvammi á
Húsavík þann 16. mars.
Útförin fer fram frá Einarsstaðakirkju
laugardaginn 26. mars kl. 11. Athöfninni verður streymt á
slóðinni: twitch.tv/hljodveridbruar. Aðstandendur þakka
starfsfólki á Hvammi umhyggju og hlýhug.
Þórveig Kristín Þormóðsdóttir
Ásvaldur Ævar Þormóðsson Laufey Skúladóttir
Jón Sigurður Þormóðsson
Sigríður Sólveig Þormóðsdóttir
Svala Guðrún Þormóðsdóttir Baldur Þorgilsson
Jörgen Heiðar Þormóðsson Gerður Ólafsdóttir
Sigurveig Dögg Þormóðsdóttir Jóhann Sigmarsson
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Okkar kæri
Kristján Karl Sigmundsson
Suðurhólum 16,
lést mánudaginn 7. mars.
Systkini, vinir og vandamenn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Benedikt Bjarnarson
Júlíusson
húsasmíðameistari,
lést á Landspítalanum í Reykjavík,
þriðjudaginn 8. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sigríður Fanney Guðnadóttir
Fjóla B. Benediktsdóttir Hörður Grímsson
Sigríður Júlía B. Benediktsd. Ríkharður Bergs Rúnarsson
Júlíus B. Benediktsson Hafdís Sigurðardóttir
Pálína Guðný Emilsdóttir Guðlaugur F. Sigmundsson
Kristín Aðalheiður Emilsd. Gregers Gram
Margrét Sigríðardóttir Helgi Pétur Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Guðmundur Kristinsson
rithöfundur
og fyrrverandi aðalféhirðir
Landsbanka Íslands á Selfossi,
Bankavegi 2, Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum
föstudaginn 18. mars. Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigfús Kristinsson
Þjóðfræðingurinn og rithöfund-
urinn Bryndís Björgvinsdóttir
fagnar fertugsafmæli í dag. Hún
sér fram á einfaldan afmælisdag
og græna áratugi fram undan.
arnartomas@frettabladid.is
„Þetta er fagnaðarefni enda verður
maður að vera kátur með að eldast. Von-
andi heldur það eitthvað áfram!“ segir
rithöfundurinn og þjóðfræðingurinn
Bryndís Björgvinsdóttir hlæjandi um
fertugsafmælið.
Hún er að eigin sögn lítið afmælisbarn
og á sér engar afmælishefðir nema þá að
fá kaffi í rúmið.
„Mér finnst leiðinlegt að vera mið-
punkturinn því þá finnst mér ég svo
ábyrg fyrir að öðrum líði vel. Ég er meira
fyrir að samgleðjast með öðrum,“ segir
hún. „Ég ætla í vinnuna þar sem verður
vonandi kaka og svo fer ég með strákinn
minn á sundnámskeið. Þetta verður
frekar venjulegur dagur.“
Brúsi í stað bolla
Bryndís segist, orðin fertug, vera farin að
huga að seinni kaflanum í lífinu.
„Þetta er kannski sá viðburður þegar
maður er sirka hálfnaður með lífið svo
ég er mikið búin að hugsa hvað mig
langar að gera næstu áratugina,“ segir
Bryndís. „Ég skráði mig í nám við Land-
búnaðarháskólann þar sem ég hef verið
að læra um skógrækt, umhverfismál og
annað.“
Þegar Bryndís var tvítug segist hún
hafa helst viljað vinna fyrir framan tölvu
þar sem hún gæti unað sér fyrir framan
spjallrásirnar með kaffibolla. Nú sé
markmiðið frekar að komast út í náttúr-
una að vinna eitthvað með höndunum
með kaffibrúsa í seilingarfjarlægð.
„Langanirnar hafa breyst mikið á síð-
ustu tuttugu árum en þetta er eitthvað
sem ég held að margir tengi við,“ segir
hún um nýtilkominn gróðuráhugann. „Í
byrjun Covid-faraldursins fengu margir
alls konar dellur. Sumir fóru að prjóna en
ég var ein af þeim sem fengu garðyrkju-
dellu. Þegar það mátti ekki fara á sam-
komur fór ég að sanka að mér plöntum,
sinna garðinum og spjalla við ókunn-
uga yfir garðvegginn, sem varð kannski
kveikjan að skógfræðináminu.“ n
Frá skjánum í skógfræðina
Bryndís er
lítið afmælis-
barn en slær
ekki hendinni
á móti kaffi í
rúmið. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Sumir fóru að prjóna en
ég var ein af þeim sem
fengu garðyrkjudellu.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 24. mars 2022 FIMMTUDAGUR