Fréttablaðið - 24.03.2022, Side 42
TÓNLIST
Sinfóníutónleikar
Verk eftir Missy Mazzoli, Svein
Lúðvík Björnsson og Önnu
Þorvaldsdóttur
Stjórnandi: Daníel Bjarnason
Norðurljósum í Hörpu
föstudaginn 11. mars
Jónas Sen
Aron Copeland sagði einu sinni að
það að hlusta á fimmtu sinfóníuna
eftir Ralph Vaughan Williams væri
eins og að stara á belju í 45 mínútur.
Verkin á tónleikum Sinfóníu
hljómsveitar Íslands á Myrkum
músíkdögum 11. mars voru miklu
áhugaverðari. Þau voru engar
beljur á beit, heldur einkenndust af
spennandi framvindu, kræsilegum
hljómum og mögnuðum hljóðfæra
samsetningum.
Hið fyrsta var Sinfonia (for Orbit
ing Spheres) eftir Missy Mazzoli. Það
er hugleiðing um sólkerfið, um plán
etur sem hringsnúast um sjálfar sig
og um sólina. Á sama hátt fara ólíkir
hljóðfærahópar hring eftir hring, og
heildarmyndin snýst líka. Tónlistin
er þó ekki bara einhver endurtekn
ing, heldur vex ásmegin með kraft
mikilli stígandi.
Nálægð við hljómsveitina
Verkið var flutt í Eldborginni í Hörpu
fyrir ekki löngu síðan, og kom þá
satt best að segja ekkert sérstak
lega vel út. Það virkaði fremur flatt
og litlaust. Hér voru tónleikarnir
hins vegar haldnir í Norðurljósa
salnum sem bauð upp á miklu meiri
nálægð við hljómsveitina. Fyrir vikið
heyrðust smáatriðin betur, og tón
listin virkaði mun hnitmiðaðri; það
gerðist meira í henni.
Daníel Bjarnason stjórnaði hljóm
sveitinni ákaflega vel. Hljóðfæra
leikurinn var nákvæmur og agaður,
en samt gæddur viðeigandi krafti.
Heildarhljómurinn var voldugur og
þéttur. Hvergi var dauður punktur í
tónlistinni.
Næst á dagskrá var tónsmíð eftir
Svein Lúðvík Björnsson sem nefndist
Glerhjallar. Hún var tileinkuð minn
ingu Atla Heimis Sveinssonar, sem
var kennari Sveins.
Fyrir mjög löngu síðan birtist
háðsglósa um Atla í Pressunni – sem
eitt sinn var, um að ef Atli myndi láta
út úr sér um fyrirhugaða tónleika
Iron Maiden í Laugardalshöllinni að
þar væru á ferðinni áhugaverðir tón
listarmenn, þá myndi hann tryggja
að enginn kæmi á tónleikana. Svona
var staðan á nútímatónlist fyrir 30
árum síðan; fáir sýndu henni nokkra
athygli. Þetta hefur sem betur fer
breyst og núna var ágætis mæting,
þrátt fyrir framúrstefnulega dagskrá.
Hrífandi skáldskapur
Verk Sveins kom afskaplega vel
út. Það einkenndist af hvössum,
háværum tónum (einmitt í stíl Atla
Heimis) sem svo umbreyttust í eitt
hvað annað; önnur blæbrigði, aðrar
hljómasamsetningar sem komu
sífellt á óvart. Umgjörð tónlistar
innar var fremur hófsöm, þar voru
engar melódíur, aðeins áferð og
blæbrigði. Engu að síður var skáld
skapurinn hrífandi og hljómsveitin
kom honum prýðilega til skila.
Síðasta tónsmíðin var Catamor
phosis eftir Önnu Þorvaldsdóttur.
Nafnið er myndað úr tveimur
orðum, catastrophe eða katastrófu
og metamorphosis, þ.e. umbreyt
ingu. Innblásturinn mun vera gjör
eyðing mannkyns ef ekkert verður
gert í umhverfismálum, og vonin um
að horfur muni breytast til batnaðar.
Tónlistin var heillandi. Hún byrj
aði á hálfgerðri ringulreið, á sárs
aukafullum hljómum sem líkt og
misstu fókusinn í hvívetna. Smám
saman birti þó til og það var ákaf
lega fagurt. Hljómarnir voru ekki af
þessum heimi, stefbrot og hendingar
voru heillandi, magnþrungin undir
alda skapaðist sem var alveg einstök.
Útkoman var höfugur tónaseiður
sem lengi verður í minnum hafður. ■
NIÐURSTAÐA: Þrjú glæsileg verk
vöktu mikla ánægju.
Vonin um bjartari
framtíð á tónleikum
Anna Þorvaldsdóttir tónskáld.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
LEIKHÚS
Manndýr
Tjarnarbíó í samstarfi við
MurMur Productions
Sviðshöfundur, listrænn
stjórnandi og flytjandi: Aude
Busson
Leikmynd, búningar og
sviðshöfundur: Sigríður Sunna
Reynisdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Björn
Kristjánsson (Borko)
Heimspekikennari: Marion
Herrera
Leikmyndagerð: Steinunn Marta
Önnudóttir
Búningagerð: Ólöf Ágústína
Stefánsdóttir
Lýsingarhönnun: Kjartan Darri
Kristjánsson
Framkvæmdastjórar: Ingibjörg
Huld Haraldsdóttir og Renaud
Durville
Raddir barnanna: Nemendur í
Landakotskóla
Sigríður Jónsdóttir
Af hverju er maðurinn til? Af hverju
eru börn til? Hver er munurinn á
mönnum og dýrum? Hvert erum
við að fara? Til hvers notum við
peninga? Hvað er samfélag? Mann
dýr er þátttökuleikhús fyrir leik
húsgesti á öllum aldri og var ein af
leiksýningunum sem var stöðugt
frestað sökum faraldursins. Í milli
tíðinni var sýningin sýnd í skólum
en komst loksins á svið Tjarnarbíó
um síðastliðna helgi.
Mikilvægt að börn fái að taka þátt
í leikhúsi á sínum eigin forsendum
og að hlustað sé á þeirra raddir. Börn
eru vitsmunaverur sem hafa sterkar
skoðanir, alls konar hugmyndir um
lífið og af þeim sökum skal ekki tala
niður til þeirra. Manndýr teygir sig
nánast alla leiðina aftur í Stóra hvell
og rannsakar í orðum, gjörðum og
hreyfingum hvernig þróun heims
ins og mannfólksins átti sér stað.
Risastórar hugmyndir fyrir lítið
leiksvið enda er ekki á hverjum degi
sem hlutverk heimspekikennara er
skráð í leikskrá en því sinnir Marion
Herrara hér.
Notaleg samverustund
Enginn eiginlegur höfundur er
skráður fyrir Manndýrum heldur
má ætla að sýningin hafi verið
samin af hópnum. Listrænn stjórn
andi og f lytjandi er Aude Busson
sem hefur unnið mikið með börn
um í gegnum tíðina og kann svo
sannarlega að láta þeim líða vel
í leikhúsinu. Hún nær augnsam
bandi við gestina, dregur athyglina
til sín með flæðandi hreyfingum og
laumar litlum verkefnum til hópsins
með fáum orðum. Úr verður notaleg
samverustund sem leynir á sér og
má svo sannarlega mæla með.
Björn Kristjánsson, kannski betur
þekktur sem tónlistarmaðurinn
Borko, sér um tónlist og hljóðmynd.
Tónlistin fellur vel að sýningunni,
ómþýð og stílhrein, og undirstrikar
hversu fjölhæfur tónlistarmaður
hann er. Í byrjun verksins fá áhorf
endur nokkur augnablik til að heyra
raddir nemenda úr Landakotsskóla
þar sem þeir svara á skeleggan máta
spurningunum sem settar voru
fram í byrjun þessa pistils. Raddir
barnanna eru síðan rauði þráðurinn
í sýningunni en þær týnast örlítið
eftir því sem verkefnin verða stærri.
Framúrskarandi umgjörð
Listræn umgjörð Manndýra er
framúrskarandi. Sigríður Sunna
Reynisdóttir hefur verið meira og
meira áberandi síðustu ár, en hún
sá einnig um leikmynd og búninga
í Ástu fyrr á þessu leikári. Henni
tekst að skapa hlýjan og síbreyti
legan heim á leiksviði Tjarnarbíós,
sem er mjög krefjandi svið þar sem
hátt er til lofts og svarti liturinn
stundum yfirþyrmandi. Í stað þess
sitja áhorfendur í kringum fjöl
skrúðugt tré sem geymir marga
leyndardóma. Þær Steinunn Marta
Önnudóttir sem sér um leikmynda
gerð og Ólöf Ágústína Stefánsdóttir
sem sér um búningagerð sjá til þess
að hönnunin komist til skila á eftir
minnilegan máta.
Manndýr er á mörkum þess að
vera leikverk, innsetning og lista
smiðja eins og segir í leikskrá.
Áhorfendur fá tækifæri til að taka
sér hvíld frá amstri dagsins, hugsa
um samhengi hlutanna og búa
til eitthvað fallegt saman. Margt
smátt gerir nefnilega eitt stórt og
samvinna er lykilatriði í samfélagi
ólíkra einstaklinga. Börn feta sig
áfram í líf inu með aðstoð full
orðinna og fyrirmynda en þau eru
líka dugleg að minna okkur eldri á
það sem skiptir máli. Ábyrgðin er
okkar allra, stórra og smárra mann
dýra. ■
NIÐURSTAÐA: Blíð og ljúf leik-
sýning um risastórar hugmyndir.
Stóri hvellur og litla fólkið
Listræn um-
gjörð Manndýra
er framúr-
skarandi, segir
leiklistargagn-
rýnandi Frétta-
blaðsins.
MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Tuttugu ára afmælistónleikar
Kammerkórs Reykjavíkur verða
sunnudaginn 27. mars kl. 16.00.
Gestasöngvarar eru Gissur Páll
Gissurarson tenór, Ingibjörg Aldís
Ólafsdóttir sópran og Ragnar Árni
Sigurðarson tenór.
Gestakórar sem koma fram eru
Söngfjelagið, stjórnandi Hilmar Örn
Agnarsson, Kór Laugarneskirkju,
stjórnandi Elísabet Þórðardóttir,
Kammerkór Seltjarnarneskirkju,
stjórnandi Friðrik Vignir Stefáns
son og ÁR kórinn, stjórnandi Hildi
gunnur Einarsdóttir.
Einsöngvarar kóranna eru Kristín
R. Sigurðardóttir, Ragnhildur Þór
hallsdóttir, Axel Kristinsson, Smári
Vífilsson, Þorsteinn Freyr Sigurðs
son, Ingunn Sigurðardóttir, Þor
steinn Þorsteinsson og Sigurlaug
Arnardóttir.
Blok k f lautuleikari er Helgi
Bjarna son, píanóleikari Jón Sigurðs
son og orgelleikari Elísabet Þórðar
dóttir.
Tónleikarnir eru tileinkaðir
Úkraínu. ■
Afmælistónleikar Kammerkórsins
Kammerkór Reykjavíkur heldur upp á 20 ára afmæli. MYND/AÐSEND
Tónleikarnir eru til-
einkaðir Úkraníu.
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
FUNI dúnúlpa
Kr. 33.990.-
RUMUR flannel skyrta
Kr. 9.990.-
SÓLA zip-o göngubuxur
Kr. 17.990.-
RÖKKVI göngubuxur
Kr. 11.990.-
Þín útivist - þín ánægja
HVÍTANES Merínó hálsklútur
Kr. 4.990.-
HVÍTANES Merínó ennisband
Kr. 2.990.-
BRIMNES
meðalþykkir
göngusokkar
Kr. 2.150.-
HVÍTANES Merino peysa
Kr. 13.990.-
HVÍTANES merino buxur
Kr. 11.990.-
SANDEY Flíshanskar
Kr. 2.990.-
18 Menning 24. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 24. mars 2022 FIMMTUDAGUR