Morgunblaðið - 03.01.2022, Síða 14

Morgunblaðið - 03.01.2022, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eins og jafnan um áramót er margt brýnt viðfangsefnið fram undan. Fyrir ári voru kórónu- veiran og kosningar fyrirsjáanlega fyrirferðarmiklar í umræðunni og svo bættist við eldgos til að krydda tilveruna. Í ár eru kórónuveiran og kosn- ingar fyrirsjáanlega fyrirferð- armiklar í umræðunni og ef marka má jarðhræringar er ekki ólíklegt að eldgos kryddi einnig þetta ár. Af þessum sökum er freistandi að draga upp þá mynd að árið 2022 verði aðeins endur- tekið efni ársins 2021, en það er vitaskuld mikil einföldun. Að auki mun þetta ár eins og önnur einnig einkennast af atburðum sem enginn sér fyrir nú. Það eru þessir óþekktu atburðir, og jafn- vel þeir óþekktu óþekktu, sem, eins og bent hefur verið á, eru enn erfiðari viðfangs. Þó að kórónuveiran muni fyrirsjáanlega lita þetta eins og fyrra ár og raunar fyrri tvö, þá er óvíst að áhrifin verði jafn mik- il nú. Heimurinn er kominn í nokkra æfingu í að fást við far- aldur og það ætti að draga úr áhrifunum þó að þau hverfi að sjálfsögðu ekki. Þá standa vonir til að veiran hafi breyst á þann hátt að hún smiti meira en sé á sama tíma minna hættuleg. Þeg- ar við bætist að bólusetningar hafa gengið vel, þó að þær hafi vissulega ekki skilað öllu því sem vonir stóðu til, þá má vonast til að þegar líður á árið dragi úr áhrifum veirunnar og lífið færist aftur í eðlilegt horf. Raunar er nauðsynlegt að unnið sé að því og að stjórnvöld stigi sem hrað- ast öll þau skref sem unnt er til að ná tökum á þessu viðfangsefni og aflétta þungbærum hömlum. Kosningarnar sem fram und- an eru fela vitaskuld einnig í sér óvissu. Í fyrra var um tíma útlit fyrir að vinstriflokkarnir yrðu sigurvegarar kosninganna með háværan öfgaflokk úr fortíðinni í broddi fylkingar. Þegar nær dró sáu kjósendur í hvað stefndi og ákváðu að hætta sér ekki út á þann hála ís. Þeir höfnuðu öfg- unum, bæði frá nýja fortíðar- hyggjuflokknum og frá öðrum flokkum sem kölluðu á upp- stokkun í atvinnulífi og nýja stjórnarskrá. Sveitarstjórnarkosningar þykja gjarnan síður mikilvægar en kosningar til Alþingis og fyrir því má færa sterk rök. Þetta breytir því ekki að sveitarstjórn- arkosningar eru afar þýðingar- miklar, ekki síst nú. Ástæðan er sú að sveitarfélögin hafa líklega ekki í annan tíma staðið jafn illa fjárhagslega fyrir kosningar og nú. Jafnvel eftir fall bankanna var staða þeirra betri en nú er. Hvað skyldi valda þessum mikla vanda? Á fjármálaráð- stefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldin var í október síðastliðnum kom fram að hratt vaxandi launakostnaður væri ein helsta ógn- in í fjármálum sveit- arfélaganna. Hag- fræðingur sambandsins upp- lýsti að launakostn- aðurinn hefði „ein- faldlega étið upp allar útsvarstekjurnar og þróunin verið í eina átt í töluverðan tíma“. Formaður sambandsins ræddi einnig versnandi fjárhagsstöðu sveitarfélaganna, meðal annars vegna aukinna launaútgjalda. Formaðurinn benti á að hið opin- bera ætti ekki að leiða launa- þróun í landinu, þar ætti almenni markaðurinn að draga vagninn. Sláandi er að síðustu misseri hefur hið opinbera, einkum sveitarfélög, einmitt leitt launaþróunina af fullkomnu ábyrgðarleysi með þeim afleið- ingum sem sjást ekki aðeins í reikningum sveitarfélaganna, heldur einnig í atvinnulífinu al- mennt, sem þarf að keppa við yfirboð hins opinbera á sama tíma og það stendur undir rekstri þess. Það er engin óvissa um hvert stefnir ef ekki verður gripið í taumana. Sveitarfélögin munu hvert af öðru missa tökin á rekstrinum, skuldir æ fleiri þeirra verða ósjálfbærar og við því verður brugðist með hærri sköttum. Þetta þýðir með öðrum orðum lakari kjör almennings, útsvarsgreiðendanna. Þar getur munað háum fjárhæðum fyrir hverja fjölskyldu. Útsvarsgreiðendurnir, kjós- endurnir, geta sagt skoðun sína á fjögurra ára fresti. Næsta tækifæri er nú í vor. Nauðsyn- legt er að kjósendur grípi það tækifæri og sendi fulltrúum sín- um í sveitarstjórn skýr skilaboð um að sú óráðsía sem þrifist hef- ur á sveitarstjórnarstiginu verði ekki liðin lengur. Þessi óráðsía er mest áberandi í stærsta sveitarfélaginu, sem lengst af gat nýtt stærð sína til að ná fram hagkvæmum rekstri, halda út- gjöldum hóflegum og sköttum í lægstu mörkum. Vinstristjórnin í borginni hefur snúið þessu við og borgin er við það að missa tökin á eigin rekstri, hafi hún ekki þegar gert það. Á sama tíma hrekur hún fyrirtæki úr borginni, þrengir að íbúunum, keyrir upp íbúðaverð og áformar stórkarlalegar framkvæmdir upp á að minnsta kosti á annað hundrað milljarða króna í svo- kalla borgarlínu, sem er ekki að- eins óþörf heldur beinlínis skað- leg fyrir samgöngur og skipulag á höfuðborgarsvæðinu. Þarna hafa öfgar og kreddur, í bland við yfirgengilega óráðsíu, tekið yfir og heilbrigð skynsemi vikið. Eigi ekki illa að fara þurfa kosningarnar á þessu ári að snú- ast um að víkja kreddunum til hliðar og taka upp ábyrga stjórn fjármála sveitarfélaganna. Í allri þeirri þoku sem framtíðin býður almennt upp á er útsýnið um þetta óvenjulega gott. Flest er óvíst um framtíðina en sumt er þó augljóst þeim sem líta fram á veg} Um lífsins óvissan tíma H ér á landi eru þrír bankar sem hafa samanlagt hagnast um a.m.k. 960 milljarða frá efna- hagshruninu 2008. Til að setja þessa upphæð í samhengi þá samsvarar hún því að hvert einasta manns- barn í 360.000 manna samfélagi hafi lagt 2,5 milljónir til HAGNAÐAR bankanna. Það er staðreynd að bankarnir stunda í raun sjálftöku á Íslandi. Þeir hafa töglin og hagldirnar gagnvart öllum sínum við- skiptavinum og á milli þeirra er engin sam- keppni heldur fákeppni þannig að ef t.d. einn bankinn hækkar vexti, þá gera hinir það líka. Þessari yfirburðastöðu bankanna ætti að fylgja mikil samfélagsleg ábyrgð en svo er því miður ekki. Þeir eru ekki einu sinni tilbúnir til að greiða bankaskatt upp á 0,376% og það sem verra er; hvorki ríkisstjórn Íslands né nokkur þingmaður, fyrir utan Flokk fólksins, eru tilbúin til þess að krefjast þessa lítilræðis af þeim. Því er haldið fram að ef bankarnir verði látnir greiða sex milljarða í viðbót til samfélagsins, sem t.d. væri hægt að nota til að veita þeim sem minnst hafa 350.000 krónur skatta- og skerðingalaust, muni þeir hækka vexti á neytendur og velta þessum kostnaði yfir á þá. Athugið að einn af þessum bönkum var að greiða hluthöfum sínum 88 milljarða í arð. Bankaskattur upp á sex milljarða er 7% af þeirri upphæð. Af hverju ætti fyrirtæki sem hagnast um tugi millj- arða á hverju ári að þurfa að velta þessum aukaútgjöldum sínum yfir á viðskiptavini? Hvernig getur fyrirtæki með slíkan hagnað nokkurn tímann réttlætt það að hækka álög- ur á viðskiptavini sína? Hvernig getum við, sem þjóð, ríkisstjórnin og alþingismenn tekið þessu háttalagi sem gefnum hlut án þess að rísa upp og mótmæla harðlega? Ef þetta er staðan, þá eru bankarnir orðn- ir of stórir og völd þeirra og áhrif allt of mik- il. Er skynsamlegt að selja banka í hend- urnar á einkaaðilum þegar við þekkjum ekki fyrirætlanir þeirra? Litlir fjárfestar eru eitt en andlitslausir fjárfestingasjóðir annað. Ég tel augljóst að við verðum að grípa inn í og losa tangarhald bankanna á þjóðinni. Til þess þurf- um við í fyrsta lagi að þora að rísa upp gegn hótunum um hefndaraðgerðir í formi hækkaðra vaxta. Þar væri hækkun bankaskatts góð byrjun. Síðan þarf að stofna samfélagsbanka sem snýst um að þjóna fólkinu í stað þess að græða á því. Banka sem setur velferð samfélagsins framar gróðasjónarmiðum og hefur það að markmiði að efla samfélagið í stað þess að hugsa ekki um neitt annað en að hámarka eigin hagnað. Flokkur fólksins þakkar liðið ár og óskar lesendum farsældar á nýju ári. Ásta Lóa Þórsdóttir Pistill Hótanir um hefnd Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is M eginland Evrópu er enn í greipum kórónuveir- unnar, en þrátt fyrir að Ómíkron-afbrigði hennar kunni að breyta miklu um gang faraldursins, þá er hætt við að það gangi síður í mörgum löndum álfunnar vegna þess hve misjafnlega bólusetning hefur gengið þar, aðal- lega vegna efasemda almennings um bólusetningu, sem eru víðtækar í mörgum löndum Evrópu. Þetta hefur vakið töluverðar áhyggjur af því hvernig efnahagslífi í Evrópu muni ganga að reisa sig við, en eftir að það tók að hjarna við á nýliðnu ári hefur aftur hægst nokk- uð á, verðbólga kann að reynast langvinnari en vonast var til og ekki er ósennilegt að ný flóttamanna- bylgja kunni að rísa við strendur Evrópu. Við bætist svo orkukreppa í mörgum löndum, sú versta frá lok- um síðari heimsstyrjaldar, sem í þokkabót er samofin yfirgangssemi Rússa, sem eru óhræddir við að láta reyna á það hversu langt þeir geta gengið og telja, sennilega með réttu, að þeir hafi allt að vinna en fáu að tapa. Kjarnorka þverr í Þýskalandi Þjóðverjar lokuðu þremur kjarnorkuverum fyrir fullt og fast nú um áramótin, einmitt í miðri orkukreppu. Það verður að teljast með nokkrum ólíkindum að lokunin hafi verið látin ganga eftir, því þar var lokað á tryggt framboð ríflega fjögurra gígavatta af grænni orku, sem var á valdi Þjóðverja sjálfra. Kjarnorkuverin – í Gundremm- ingen, Grohnde og Brokdorf – voru tekin í notkun á níunda áratug lið- innar aldar og hefði vel mátt starf- rækja í aldarfjórðung enn, þar til ný- ir grænir orkuinnviðir væru til staðar. Samsteypustjórn Olafs Scholz ákvað hins vegar að láta verða af lokuninni, í trássi við ákall ótal lofts- lagsfrömuða, en til stendur að loka öðrum þremur kjarnorkuverum í lok þessa árs. Erfitt er að sjá að þessar lokanir byggist á traustum rökum eða þörfum Þjóðverja, en hana má rekja til skyndiákvörðunar Angelu Merkel, þáverandi Þýskalandskansl- ara, þegar kjarnorkuslysið í Fuku- shima í Japan reið yfir árið 2011 um að hætta allri orkubeislun í kjarn- orkuverum. Málið snýst þó engan veginn að- eins um orkuþörf Þjóðverja eða al- menna afstöðu til kjarnorkuvera, því þetta gerist sem fyrr segir í miðri orkukreppu og einmitt þegar Vladí- mír Pútín Rússlandsforseti er með mikinn liðsöfnuð við landamæri Úkraínu og notar jarðgasgnótt Rússlands hiklaust til þess að knýja fram vilja sinn gagnvart orkuþyrst- um þjóðum vestan við sig. Rússar í sterkri stöðu Fyrir Rússa er þetta einfalt reikningsdæmi. Velflest ríki Evrópu eru í einstaklega veikri stöðu hvað orku áhrærir og hafa því fáa ef nokkra kosti aðra en að fallast á kröfur Rússa um fullgildingu Nord Stream 2-gasleiðslunnar á botni Eystrasalts, hvað sem líður öllum orkupökkum, Evrópurétti og sátt- málum. Í kaupbæti muni þau einnig neyðast til þess að sætta sig við „finnlandíseringu“ Úkraínu, að hún verði sjálfstætt ríki að því marki sem Kremlverjar leyfa. Auðsætt er að það kann að hafa hnattræn pólitísk áhrif. Afleiðingar eru nú þegar farnar að koma fram á evrópskum orku- markaði, en gasafleiður hafa hækk- að ofboðslega á síðustu vikum og eru um átta sinnum dýrari en á sama tíma fyrir ári. Evrópskir stjórnmálamenn virðast loks hafa vaknað upp við vondan draum um pólitískar afleið- ingar þessa, en það er harla lítið sem þeir geta eða vilja gera. Ógerningur er að segja til um hversu langt Rúss- landsstjórn vill ganga til þess að vinda ofan afleiðingum lykta kalda stríðsins fyrir þremur áratugum, en það er hollt að hafa í huga að Pútín hefur aldrei verið metnaðarlaus maður. Hnattræn kólnun í Evrópu Sennilega hafa evrópskir stjórnmálamenn þó meiri áhyggjur af því í augnablikinu hver viðbrögðin verða hjá kjósendum þeirra heima fyrir. Orkuverð snarhækkar nú þeg- ar veturinn verður harðastur, grænu áformin sortna þegar orkubúskap- urinn verður skyndilega háðari brúnkolanotkun en verið hefur um árabil, skera hefur þurft niður orku- afhendingu til iðnaðar og mikil hætta á að heimili geti orðið raf- magnslaus þegar verst stendur. Þýskaland er ekki eitt um að vera í þröngri stöðu að þessu leyti, en Frakkar eru þegar farnir að finna fyrir sams konar þrengingum. Lög um grænan vöxt, sem samþykkt voru þar í landi árið 2015, kveða á um að fyrir árið 2025 megi kjarn- orkuver ekki framleiða meira en helming raforku í Frakklandi. Líkt og sjá má að ofan eiga mörg burðarríki Evrópu mikið undir því að fá (tiltölulega) hreina orku með jarðgasi frá Rússlandi og afar fá þeirra eru í stöðu til þess að leiða Rússa eða orku þeirra hjá sér. Rússneski orkupakk- inn að sliga Evrópu Evrópulönd eru háð gasi frá Rússlandi Hlutfall gasinnflutnings einstakra landa frá Rússland Slókavakía Eistland Pólland Þýskaland Ítalía Litháen Grikkland Holland Frakkland Spánn Belgía Bretland Portúgal 100%90%80%70%60%50%40%30%20%10%0%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.