Morgunblaðið - 03.01.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022
✝
Almar Yngvi
Garðarsson
fæddist í Reykja-
vík 15. desember
1992. Hann lést 19.
desember 2021.
Almar var sonur
Margrétar Orms-
dóttur og Garðars
Guðmundssonar.
Eiginmaður Mar-
grétar og uppeld-
isfaðir (pabbi) Al-
mars er Jóhann Helgi
Hlöðversson.
Eftirlifandi unnusta Almars
er Ásta Steina Skúladóttir og
sonur þeirra er Eiríkur Skúli.
Systkini Almars eru Elísabet
Ögn Jóhannsdóttir, maki Kári
fram til 13 ára aldurs en þá
fluttu foreldrar hans að Vatns-
holti í Flóahreppi. Almar lærði
framreiðslu á Vox Nordica Hil-
ton og útskrifaðist sem fram-
reiðslumaður frá Hótel- og
matvælaskólanum í Kópavogi
vorið 2015. Almar starfaði sem
framreiðslumaður á Hilton og
Slippbarnum og síðar tók hann
þátt í stofnun og rekstri á veit-
ingastöðunum Reykjavík Meat
og Sjáland.
Útförin fer fram í Fríkirkj-
unni í Reykjavík í dag, 3. jan-
úar 2022, klukkan 13. Gestir
þurfa að framvísa neikvæðu
hraðprófi sem er ekki eldra en
48 klst. við komu.
Í ljósi fjöldatakmarkana og
þess hve Almar var vinmargur
eru vinir hans hvattir til að
fylgjast með útförinni í streymi
á Youtube undir Almar Yngvi
og skála fyrir honum.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
Einarsson og börn
þeirra Frosti og
Ása. Sigurbjörn
Hlöðver Jóhanns-
son, maki Ólöf
Helga Jónsdóttir,
börn þeirra eru
Victor Þór, Aría
Lóa og drengur.
Victor Páll Jó-
hannsson (d. 2003).
Daníel Aron Dav-
íðsson, maki Berg-
lind Rut Bragadóttir. Hanna
Lind Garðarsdóttir, maki Ólaf-
ur Thors og börn þeirra Harpa
Sóley og Fannar. Þrjú önnur
systkini eru búsett í Dan-
mörku.
Almar ólst upp í Hafnarfirði
Elsku Almar minn.
Ég sit hér og hlusta á uppá-
haldsjólalagið okkar á „repeat“
og reyni að skrifa niður kveðju-
orð til þín. En hvernig í ósköp-
unum á maður að kveðja sálu-
félaga, lífsförunaut og sinn besta
vin? Ég var búin að ákveða það
að þú værir minn lífsförunautur
sama hvað myndi bjáta á í lífi
okkar. Við áttum að sitja saman í
ellinni með kampavín og gleðjast
yfir lífsafrekum okkar. Því ef
það var eitthvað sem við vorum
góð í, þá var það að við gátum
alltaf fundið tilefni til að skála,
þótt það væri bara þriðjudagur.
Við höfum alltaf verið mikið fyr-
ir það að fagna og halda upp á
hluti, búa okkur til fallegar
minningar saman og allar þær
minningar sem ég á eru ómet-
anlegar og er ég þér óendanlega
þakklát fyrir að hafa gefið mér
þetta líf og gefið mér þitt líf. Það
mikilvægasta af öllu er að ég er
þér þakklát fyrir að hafa gefið
mér soninn okkar Eirík Skúla.
Elsku Almar minn, elsku fal-
lega tilfinningavera og drama-
tíska ástin mín. Við hlógum svo
oft að því hvað þú gast verið
dramatískur, þegar þú varst að
tala um eitthvað alvarlegt og
dæstir, þá gat ég ekki annað en
hlegið að þér og þá hlóst þú líka.
Það var alltaf stutt í grínið hjá
þér, þótt tilfinningasemin væri
þar líka. Það einkenndi þig samt
svo mikið sem mannveru og eitt
af því sem ég elska þig svo mikið
fyrir. Þú komst mér alltaf til að
hlæja, þótt ég vildi alls ekkert
hlæja, og þú sást alltaf björtu
hliðarnar á öllu. Þú lést mér líða
eins og ég gæti allt og studdir
mig við hvert einasta skref sem
ég tók mér, hvort sem það var að
koma mér í gegnum námið mitt,
finna mína vinnu sem ég vildi
vinna við eða bara daglega lífið
og þær áskoranir sem okkur
voru gefnar. Varðst minn helsti
klettur og ég þinn. Hefur verið
Eiríki besti faðir sem hægt er að
hugsa sér, og mun ég passa það
að hann muni ávallt vita hversu
fallegur og flottur maður faðir
hans var. Eiríkur Skúli mun
aldrei gleyma þér og lofa ég þér
því að halda minningu þinni á
lífi. Að eilífu ertu minn og ég þín.
Hlakka til að sjá þig að lokum,
þangað til þá elska ég þig alla
leið til tunglsins og alla leið til
baka.
Þín unnusta
Ásta Steina.
Elsku Almar. Af hverju? Ég
veit að þegar stórt er spurt er
oft fátt um svör. Ég veit samt að
bæði ég og allir sem þekktu þig
elskuðu þig út af lífinu. Þú varst
hvers manns hugljúfi og hrókur
alls fagnaðar. Ég var svo hepp-
inn að fá að verða samferða þér
frá því þú varst rúmlega átta ára
og hafa haft þau forréttindi að
vera kallaður pabbi af þér. Við
höfum alltaf verið miklir vinir og
sálufélagar enda skrambi líkir
með margt. Frá upphafi hafið
þið systinin Elísabet, Sigur-
björn, Victor og Daníel Aron,
ásamt mökum, verið mjög sam-
rýnd og miklir vinir enda höfum
við sem fjölskylda lagt mikla
áherslu á samverustundir, viku-
leg matarboð, óvissu- og utan-
landsferðir. Hinn 30. október
2003 lést Victor Páll bróðir þinn
í bílslysi sem hafði mikil áhrif á
okkur öll og ekki síst þig en þið
voruð miklir mátar. Ævi þín var
viðburðarík, enda keyptum við
móðir þín jörðina Vatnsholt í
Flóahreppi þar sem við lékum
okkur að því að eignast nánast
allar dýrategundir sem fyrir-
finnast á Íslandi. Þar nutuð þið
bræðurnir Sigurbjörn og Daníel
Aron þess að fá að vera börn
náttúrunnar og sjá um haug af
hestum, holdanautum, hundum,
köttum, kanínum, svínum, geit-
um, refum, hröfnum, hænum, fa-
sönum, kalkúnum, kornhænum
og öllum hinum börnum náttúr-
unnar. Þú fékkst meðal annars
hestinn Gorm í fermingargjöf.
Ég veit að minningabankinn í
hjarta ykkar er stór frá þessu
tímabili. Þú varst alltaf mjög vel-
virkur í æsku og ég fór með í all-
ar greiningar á þér með móður
þinni, og komst að því að ég var
líka með ADHD.
Þú hefur alla tíð verið dríf-
andi, duglegur, jákvæður, ósér-
hlífinn og með’etta. Þegar þú
byrjaðir nám í þjóninum á Hil-
ton og eignaðist þar hana Ástu
þína, sem varð bæði ástin í lífi
þínu og jarðtenging og ankeri,
virtist lífið fullkomið. Hinn 8.
apríl 2019, á afmælisdegi Sigur-
björns bróður þíns, eignuðust
þið Ásta Eirík Skúla og Sigur-
björn og Ólöf eignuðust Aríu
Lóu. Sannarlega samheldin fjöl-
skylda. Þú varðst eftirsóttur í að
koma upp nýjum veitingastöðum
og til að sjá um flottustu veisl-
urnar. Álagið var mikið og oft
örugglega alltof mikið því þú
kunnir þér aldrei hóf og stóðst
alltaf þína plikt. Allir vissu að ef
Almar var við stjórntaumana þá
var allt í lagi. Enginn þurfti að
hafa gigg-áhyggjur. Við opnuð-
um sveitahótel í Vatnsholti árið
2010 og eftir að Almar útskrif-
aðist sem framreiðslumaður og
með alla sína reynslu frá Hilton
og víðar var engin veisla of stór
ef Almar var á staðnum eða okk-
ur innan handar. Við vitum að
álagið á þér var oft langt yfir
hættumörkum en þú kunnir þér
aldrei hóf. Meðalmennska var
ekki í boði. Elsku Almar, þú
kunnir ekki alltaf að halda vörð
um sjálfan þig heldir settir alltaf
alla aðra í fyrsta sætið og að lok-
um brenndir þú kertið þitt með
eldvörpu. Sorgin er mikil enda
var ást á þér mikil. Sjáumst,
elsku sonur, þegar að mér kem-
ur og þá veit ég að móttökurnar
verða góðar. Elska þig út í geim
og til baka, eins og mamma þín
sagði alltaf við þig. Kveðja Jói
pabbi.
Jóhann Helgi Hlöðversson.
Ég man þig, elsku litli frændi
minn.
Ég man að áður en þú komst í
heiminn þá var ég yngstur í stór-
fjölskyldunni. Þú varst því fyrsti
litli frændi minn. Ég var fjórtán
ára gamall og skildi ekkert í þér
að fæðast á afmælisdegi mömmu
þinnar. Mér þótti þú svo hrika-
lega skemmtilegur og fannst
alltaf mjög gaman að passa þig.
Ég man hvernig hárið á þér
sem ungbarn virtist óháð þyngd-
araflinu þegar þú vaknaðir á
morgnana, stóð út í loftið eins og
þú hefðir stungið fingri í raf-
magnsinnstungu.
Ég man þegar ég passaði þig í
Faxaskjólinu. Eitt skiptið var
eins og sagði í laginu með
Baggalúti, þá þurfti mamma þín
að djamma. Ég ætlaði að vera
mjög hljóðlátur en mamma þín
sagði mér að hafa sjónvarpið eða
tónlistina hátt stillta, það væri
best fyrir þig að læra að sofa í
gegnum svoleiðis. Ég er að
kenna syni mínum það sama í
dag.
Ég man einn vetur þegar ég
var með þig á róló og var að ýta
þér í rólunni, þú tveggja eða
þriggja ára gamall. Óvart ýtti ég
aðeins of fast og þú dast aftur á
bak úr rólunni. Hjartað í mér
stoppaði, ég hélt að ég hefði slas-
að þig. Þú lást hlæjandi í snjón-
um en ég tek þig upp í mínu óða-
goti. Þér þótti þetta bara
æðislega gaman. Ég fór strax
aftur með þig heim, litla frænda-
hjartað mitt gat ekki umborið
meira að því sinni.
Ég man hvað mér þótti mér
alltaf ofboðslega vænt um að
hitta þig, auðvitað eru mínar
minningar til þín aðrar en þínar
til mín.
Litla frændahjartað mitt er
sorgmæddara en orð fá lýst en
veit að ég hitti þig aftur.
Ég man þig elsku litli frændi
minn.
Óli Gunn og fjölskylda.
Ólafur Gunnar Jónsson.
Það var 15. desember 1992.
Magga varð 20 ára þennan dag
og fékk fagran svein í afmæl-
isgjöf. Hann fékk nafnið Almar
Yngvi og var mikill gleðigjafi.
Jafnframt urðu einnig tímamót
hjá mér, ég var orðin ömmusyst-
ir, en samt hvorki gráhærð né
með mjög áberandi hrukkur,
einstæð móðir með Óla Gunn, 14
ára. Árin liðu allt of fljótt og við
Óli fengum stundum að hafa Al-
mar hjá okkur. Ég man sérstak-
lega eftir einni ferð upp í sum-
arbústað, Almar var þá líklega
fjögurra ára. Þegar upp eftir var
komið og búið að gera það sem
gera þurfti til að dvölin yrði sem
ánægjulegust fóru þeir Óli út að
leika með hundana Terrý og
Hnoðra. Mikið gaman, grillað
um kvöldið, farið að sofa eftir
góðan dag. Daginn eftir skein sól
í Esjuhlíðum. Ég var vöknuð,
fékk mér stól, fór út á pallinn og
fann mér skjól. Skömmu síðar
heyrði ég í litlum fótum hlaup-
andi um húsið, síðan kom Almar
í gættina og sagði með skjálfandi
röddu: Hvar er hún mamma
mín?
Það var eftir því tekið, eftir að
Magga og Jói tóku saman, hvað
þau voru dugleg við að sameina
fjölskyldurnar. Vatnsholtið var
klætt í sparifötin og ættingjar og
vinir kallaðir til. Þetta voru góð-
ar og skemmtilegar samveru-
stundir.
Með sorg og þakklæti í hjarta
kveðjum við Almar í dag. Við
Barði sendum öllum aðstand-
endum og vinum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóst þitt fái svala.
(Davíð Stefánsson)
Kristín Jónsdóttir (Didda).
Almar Yngvi
Garðarsson
Elsku pabbi,
hvernig getur stað-
an bara verið svona,
hvernig má það
vera að ég sitji hér að setja niður
minningarorð um þig. Hvar í
ósköpunum á ég að byrja. Það er
svo ótrúlega mikið að segja frá.
Pabbi var hinn eini sanni sjó-
maður af gamla skólanum, fór
allt og gerði allt sem hann vildi.
Alveg var það magnað að hvað
sem manni datt í hug, hversu
asnaleg sem hugmyndin var, þá
peppaðir þú mig alltaf áfram. Þú
lést mig trúa að ég gæti allt sem
mér datt í hug (með þinni aðstoð
oftast), þú peppaðir mig alltaf
áfram. Veiðiferðirnar voru ótelj-
andi og stendur smá upp úr
Veiðivatnaferðin þar sem við fór-
um ein feðginin. Þú ætlaðir held-
ur betur að taka styttri leiðina
heim sem endaði með að við villt-
umst og úr varð heljarinnar
ævintýri sem tók auka tvo
klukkutíma og enduðum svo í
Eyktarási, næstum bensínlaus,
maður minn hvað við hlógum að
þessu.
Einnig laxveiðifjölskylduferð-
in eina sanna, þar sem við mæðg-
ur máttum helst ekki koma of ná-
lægt bakkanum því jú, við
Þráinn Þór
Þórarinsson
✝
Þráinn Þór
Þórarinsson
fæddist 6. nóv-
ember 1965. Hann
lést 14. desember
2021.
Útförin fór fram
23. desember 2021.
myndum styggja
laxana sem lágu í
hylnum þótt enginn
hefði svo endað uppi
á bakkanum. Þess-
ari bakteríu arf-
leiddirðu svo sann-
arlega Aron að,
hann er bara eins og
míní-þú og var hann
þér við hlið í öllum
ykkar veiðiferðum
síðustu árin. Hann
lítur svo upp til þín, afi „cool“
eins og hann segir.
Þessa dagana ættum við að
vera að vafra um netið að leita að
rétta flugeldapakkanum, hvar er
besti díllinn. Jólin og áramótin
eru þín hátíð þó að gamlárskvöld
sé þinn dagur, það heldur enginn
upp á gamlárskvöld eins og þú.
Og bara við öll fjölskyldan, alltaf
öll saman í þessu sprengjuæði.
Pabbi, ég sit hér með tárin
streymandi niður andlitið, ég vil
ekki trúa þessu, ég vil ekki þurfa
að læra að halda áfram án þín, þú
fórst góðum 30 árum of snemma.
Sorgin er svo rosaleg að ég
hreinlega veit ekki hvernig ég
mun komast í gegnum þetta.
Hversu ósanngjarnt getur lífið
verið, þú á þínum bestu árum far-
inn að hlakka til að geta farið að
slaka á, sem þú gerðir aldrei,
njóta lífsins með mömmu í ný-
byggða húsinu ykkar og dekra
við barnabörnin sem eru þér svo
kær. Ég elska hvað þú varst allt-
af stoltur af okkur. Ég get lofað
þér því að ég mun sjá til þess að
strákarnir heyri allar sögurnar
af þér, ég lofa að passa upp á
mömmu, Þórdísi og Særós, ég
lofa að hjálpa ömmu Huldu með
allt sem ég get.
Elsku pabbi, ég sakna þín svo
ótrúlega mikið þótt ég skilji ekki
hvernig er hægt að sakna ein-
hvers sem maður trúir ekki að sé
farinn. Pabbi, þú ert kletturinn
minn sem ég mun geyma með
mér að eilífu. Elska þig meira en
orð fá lýst.
Þar til næst.
Þín elsta dóttir,
Kolbrún (Kolla).
Elsku pabbi, síðustu dagar eru
búnir að vera svo óraunverulegir.
Svo sárir.
Þú varst eins og akkeri í
miðjum mæðgnahópnum. Þú
gafst okkur slaka til þess að reka
aðeins áfram, fara okkar eigin
leiðir, þroskast og gera mistök.
En þú varst alltaf þessi festa sem
hélt okkur saman á okkar stað.
Akkeri táknar líka von. Ég vona
að þú sért einhvers staðar á góð-
um stað og að þér líði vel. Ég trúi
því að þú sért á leiðinni á Þing-
völl. Að þú verðir þar með afa
Dúdó. Í Eyktarási að njóta þess
sem þið byggðuð saman.
Þú hefur alltaf verið svo dug-
legur pabbi. Alveg frá því ég man
eftir mér fyrst á Hólavöllunum.
Svo laghentur. Svo iðinn. Þú
byggðir mér heimili sem barn,
aðstoðaðir okkur Árna við að
byggja okkar heimili og nú síðast
byggðir þú þér og mömmu heim-
ili. Þar ætluðuð þið að njóta.
Njóta alls þess sem þið hafið lagt
á ykkur og afrekað í gegnum
árin. Þú fékkst aldrei að njóta
pabbi.
Þú hafðir svo marga góða
kosti. Þú varst töffari, sá allra
mesti. En þú varst líka svo mjúk-
ur, umhyggjusamur og hjarta-
hlýr. Þú varst réttsýnn, hjálp-
samur og fylginn sjálfum þér.
Umfram allt varstu vinur. Sá
allra traustasti. Ég mun leggja
mig alla fram við að tileinka mér
þína góðu kosti. Því ég veit að þú
mast ekkert meira en heiðarleika
og vináttu.
Það er svo margt sem mig
langar að segja. Margt sem ég vil
minnast. Engin orð eru nógu
stór, engin orð eru nógu hlý. Þú
varst mér allt. Alveg eins og við,
fjölskyldan, vorum þér allt.
Pabbi, þú lifir í hjarta mínu og
ég hugga mig við minningar, svo
ótal margar, hlýjar og góðar.
Ég veit að það er brot af þér í
hjörtum allra sem þótti vænt um
þig. Þú lifir í öllu því sem þú
gerðir fyrir okkur. Ég mun halda
persónu þinni á lífi. Ég ætla aldr-
ei að hætta að segja Emil frá afa
Þráni. Hann mun þekkja þig og
hann mun vera stoltur af afa, al-
veg eins og ég er svo ótrúlega
stolt af pabba.
Ó, pabbi minn, hve undursamleg
ást þín var.
Ó, pabbi minn, þú ávallt tókst
mitt svar.
Aldrei var neinn svo ástúðlegur
eins og þú.
Ó, pabbi minn, þú ætíð skildir allt.
Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn.
Brosandi blítt, þú breyttir sorg í gleði.
Ó, pabbi minn, ég dáði þína léttu lund.
Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt.
Ó, pabbi minn, hve undursamleg
ást þín var.
Æskunnar ómar ylja mér í dag.
(Þorsteinn Sveinsson)
Elsku hjartans pabbi minn,
þar til næst.
Þín dóttir og vinkona,
Þórdís Þöll Þráinsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og bróðir,
ÆVAR HARÐARSON,
Suðureyri við Súgandafjörð,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 4. janúar klukkan 13.
Gestir vinsamlega framvísi hraðprófi við inngang.
Útförinni verður streymt á streyma.is.
Alma Lilja Ævarsdóttir
Arna María Ævarsdóttir
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
ÓLAFUR GUÐJÓN BRAGASON,
Färgelanda,
Svíþjóð,
lést á líknardeild Uddevalla-sjúkrahússins
þriðjudaginn 21. desember.
Mathilda Ólafsdóttir
Helga Adele Ólafsdóttir Ellen Ólafsdóttir
Bragi Antonsson Kristjana Bragadóttir
Thelma Gísladóttir
Hanna Hansson
Okkar ástkæri
GUÐJÓN ELÍSSON,
Grundargötu 70,
Grundarfirði,
lést á Landspítalanum hinn 29. desember
síðastliðinn. Útför verður auglýst síðar.
Fyrir hönd ástvina,
Grazyna Zofia Bajda
Kristján Guðjónsson