Morgunblaðið - 03.01.2022, Page 20

Morgunblaðið - 03.01.2022, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 ✝ Árni Byron fæddist 24. ágúst 1923 á Kros- seyrarvegi 3 í Hafnarfirði. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Drop- laugarstöðum í Reykjavík 21. des- ember 2021. Foreldrar hans voru Hermannía Sigríður Anna Markúsdóttir, f. 5.11. 1901, d. 19.5. 1995, og Pétur Jón Sig- urðsson Njarðvík, netagerðar- meistari, f. 8.10. 1897, d. 28.11. 1957. Systkini Árna Byrons voru fimm. Alsystir var Kristín Anna Guðjónsdóttir, f. 10.9.1927, d. 25.8. 2020. Samfeðra eru Hall- grímur (Peter) Njarðvík, f. 31.12. 1930, og Njörður P. Njarðvík, f. 30.6. 1936. Sam- mæðra var Hlín Schenbaker Frost. Maður Dagrúnar er Páll Gestsson og eiga þau þrjá syni: Hallgrím, Gest og Kára. Fyrri eiginkona Árna var Dagrún Erla Hauksdóttir, f. 9.4. 1953, d. 14.4. 1989, en þau eiga dótt- urina Rósu Hrönn. Synir henn- ar eru Arnar Freyr og Hall- grímur Árni. Síðari eiginkona Árna er Helga Árnadóttir en hún á börnin Fríðu Gylfadóttur og Gunnar Þorberg Gylfason. Kona Gunnars Þorbergs er Þór- unn Halldóra Þórðardóttir og eiga dæturnar Finnborgu Helgu og Gerði Theódóru. Stefanía Anna Árnadóttir Njarðvík, f. 17. desember 1959. Hún á fimm börn. Maður henn- ar var Magnús Steinn Loftsson, þau skildu. Ingibjörg Njarðvík og á hún fjögur börn, Veigar Örn, Guðrúnu Eddu, Steinunni Birtu og Filip Örn. Maður henn- ar Gunnar Örn Árnason. Hlín Magnúsdóttir Njarðvík. Maður hennar er Gunnar Lár Gunn- arsson og eiga þau þrjú börn: Hlyn Lár, Anítu Björk og Jökul Lár. Árni Dagur Magnússon Njarðvík. Ásta Magnúsdóttir Njarðvík. Maður hennar er Ar- on Wei Quan og eiga þau soninn Líam. Katrín Magnúsdóttir Njarðvík. Maður hennar er Jesse Waterhouse og eiga þau dæturnar Éowyn Ástu og Ayl- esh Eleanor. Axel Árnason Njarðvík, f. 2. maí 1961. Kona Axels er Sig- þrúður Jónsdóttir. Börn þeirra eru Pálína og Jón Karl. Kona Pálínu er María Kristín Árna- dóttir. Kona Jóns Karls er Nanna Sveinsdóttir. Afkomendur Árna Byrons og Ingibjargar telja 31. Árni vann hjá Haraldi Árna- syni kaupsýslumanni í 12 ár eða til ársins 1950. Hjá Flugfélagi Íslands og síðar Flugleiðum starfaði Árni í yfir 41 ár og til starfsloka 1993, lengst af á varahlutalager. Hann var vel virkur félagi í Svifflugfélagi Ís- lands frá unglingsárum og hafði félagsnúmerið 121. Hann náði silfur C 11. júlí 1987. Árni hafði einnig einkaflugmanns- próf. Útför Árna Byrons fer fram frá Neskirkju í dag, 3. janúar 2022, klukkan 13. Steymt er frá útförinni á: www.sonik.is/arnibyron Virkan hlekk er einnig að finna á: www.mbl.is/andlat Magnúsdóttir, f. 30.3. 1926, d. 15.5. 2015. Ættleidd systir er Kristín Anna Karlsdóttir, f. 4.7. 1937. Árni Byron kvæntist hinn 28. febrúar 1948 Ingi- björgu Axels- dóttur, f. á Eyr- arbakka 13. desember 1926. Foreldrar hennar voru hjónin Stefanía Stefánsdóttir, f. 9.11. 1903, d. 1.6. 1970, og Valdimar Axel Gunnarsson, f. 26.11. 1899, d. 1.8. 1975. Börn þeirra eru þrjú: Árni Árnason Njarðvík, f. 8. mars 1952. Með Hafdísi Brands- dóttur eignaðist Árni dæturnar Evu Björk og Dagrúnu. Maður Evu Bjarkar er Juha Vainionpää. Eiga þau þrjú börn: Veru Jóhönnu Frost, Rósu Mat- ildu Frost og Stefán Nicolas Það var í gönguferð um Þjórsárver að við Axel Árnason fórum að tala í alvöru um að reyna að staðfesta – eða af- sanna – þrálátan orðróm um að faðir hans Árni Byron Jóhanns- son (eins og hann hét þá) væri hálfbróðir minn að faðerni. Mér fannst þetta alltaf óskilj- anlegt. Hvers vegna skyldi Pét- ur faðir minn ekki gangast við barni fæddu 1923, 26 ára gam- all, einhleypur og sex árum áð- ur en hann kynntist móður minni á Ísafirði? Eða var það móðir Árna, Hermannía, sem ekki vildi tilgreina hann sem föður? Og hví þá að kenna barn- ið við einhvern Jóhann? Eða hafði faðir minn lofað því að segja aldrei neinum frá þessu? Við þessum spurningum fáum við aldrei svör, enda eru þau bæði tvö látin fyrir löngu. Sann- leikurinn var grafinn og skyldi nú loksins opinberaður. Við Axel ákváðum að ganga hreint til verks og fá vísinda- lega skorið úr þessu. Blóðsýni voru send til Skotlands og svör- in voru ótvíræð. Hinn 4. sept- ember 2008 fórum við Árni saman í Héraðsdóm Reykjavík- ur og gengum fyrir dómara. Ég hafði með mér tvær myndir af Árna og föður mínum ungum, sýndi dómaranum, enda voru þeir svo nauðalíkir að nær ógerningur var að vita hvor var hvað. Dómarinn sagðist ekki þurfa að kveða upp neinn dóm, heldur einungis úrskurð til formlega lagalegrar staðfest- ingar. Og bætti svo við, að svona lagað gerðist sjaldan og enn sjaldnar í sátt og samlyndi. Við Árni héldumst í hendur þegar við gengum út. Hann sagði við mig að hann hefði vilj- að fá að halda svona í hönd föð- ur síns. 85 ára gamall hafði hann loks fengið rétt faðerni. Það óréttlæti sem hann hafði mátt þola langa ævi verður aldrei leiðrétt í reynd. En sann- leikurinn var loksins grafinn upp. Árni var ekki aðeins líkur föður okkar í útliti, hann var einnig mjög líkur Sigurði afa okkar, bæði að ytri sýn og lund- erni. Lund hans var að vísu særð af löngu ranglæti, en ef ég ætti að lýsa honum í fáum orð- um, myndi ég segja ljúfmenni sem sýndi af sér mildi og hlýju. Og nú kveð ég þennan sein- fundna bróður minn með þessu ljóði mínu: Að dagslokum deyrð þú ekki heldur heimurinn hann deyr þér er þú hverfur gegnum hugann og heyrir ekkert Þar þéttist þögnin að þér og vísar veg í óþekkta átt að áfangastað á langri leið inn úr sjálfum þér þangað sem enginn sér en allir eiga heima að lokum á degi sem lifir ekki framar og deyr ekki framar. Njörður P. Njarðvík. Við sátum tvö við eldhús- borðið, ókunnug hvort öðru, og talið barst að fuglunum sem Árni sá þegar hann gekk til vinnu í gegnum Litla Skerja- fjörðinn. Þarna náðum við strax einhverri tengingu sem hélst alla tíð. Árni varð síðar tengda- faðir minn. Árni var hógvær maður og ljúfur og honum voru gefnar margar talentur en þær náðu ekki allar að dafna vegna þeirra aðstæðna sem mótuðu líf hans. Ungur fékk Árni mikinn áhuga á flugi og gekk til liðs við Svifflugfélag Íslands á styrjald- arárunum og tók síðar einka- flugmannspróf. Hann var frá- bær og næmur flugmaður sem kom m.a. vel í ljós þegar hann með yfirvegun, kjarki og út- sjónarsemi náði oftar en einu sinni að bjarga sér úr hættu- legum og tvísýnum aðstæðum. Áhugi og þekking hans á hvernig flugvélar eru settar saman og virka kom sér vel í starfi Árna á varahlutalager Flugleiða þar sem hann vann áratugum saman. Það lék flest í höndum Árna og hann gat gert við alla skap- aða hluti, hvort sem voru svif- flugur, bílar eða gleraugu, stundum dugði teip ágætlega! Börn fundu einlægan hlýhug og velvilja hjá Árna og hændust að honum. Hvar sem hann fór voru börn komin í fang hans og voru þar róleg og sæl. Þess fengu afa- og langafabörnin að njóta í ríkum mæli og búa þau að því alla tíð. Ég held að ekk- ert hafi verið honum eins á móti skapi og að börn liðu skort eða byggju við ástleysi. Sjálfur þekkti hann fátækt úr æsku og vildi ekki að önnur börn færu á mis við svo margt sem hann sjálfur naut ekki í uppvextinum. Gestrisni og hlýja einkenndu heimili Árna og Eddu, þar var alltaf pláss og matur fyrir gesti og gangandi og hef ég fengið að njóta þess ríkulega frá því ég gekk þar fyrst inn um dyr. Árni var heilsuhraustur, reglumaður og fór í gönguferðir fram á síðustu ár. Lífsgöngu hans er nú lokið, 98 ára að baki, verkefnin stór og smá. Ég kveð Árna Byron með þakklæti. Eft- ir lifir ættmóðirin og stólpi okk- ar hún Edda, eins og fjölskyld- an kallar hana, og bið að henni muni áfram auðnast líf og heilsa. Sigþrúður Jónsdóttir. Árni Byron Pétursson Er við félagar í Karlakórnum Fóst- bræðrum minnumst Hjartar Á. Magnús- sonar koma ávallt sömu orðin upp í hugann; traustur, ósérhlíf- inn, hnyttinn, glaðvær, jafnlynd- ur, gull af manni. Hjörtur gekk í raðir kórsins Hjörtur Ágúst Magnússon ✝ Hjörtur Ágúst Magnússon fæddist 4. ágúst 1939. Hann lést 14. desember 2021. Útför Hjartar Ágústs fór fram 28. desember 2021. 1967 og söng með Fóstbræðrum um áratuga skeið. Hann var ætíð virkur inn- an vébanda kórsins, gegndi ýmsum trúnaðarstörfum og lét sitt ekki eftir liggja þegar leggja þurfti hönd á plóg. Meðal annars var Hjörtur einn af smiðum Fóst- bræðraheimilisins sem vígt var í apríl 1972. Hjörtur var öflugur söngmað- ur, söng 1. og 2. bassa með kórn- um og var m.a. í sönghópnum „Átta Fóstbræður“ sem starf- ræktur var frá 1984 og fram und- ir aldamót. Fyrir hönd okkar félaga í Fóstbræðrum vil ég senda Jónu og fjölskyldu okkar innilegustu samúðaróskir og það er með hlý- hug í hjarta sem við minnumst fallins fóstbróður og félaga. Blessuð sé minning þessa mæta manns. Halldór Þórarinsson, form. Karlakórsins Fóstbræðra. Það var í janúar 1990 sem Hjörtur Ágúst Magnússon hóf störf sem kennari við húsasmíða- braut Fjölbrautaskólans í Breið- holti. Hjörtur hætti störfum hjá FB árið 2009 vegna aldurs eftir 19 ára starf. Hann gegndi ýms- um ábyrgðarstörfum fyrir deild- ina, var t.d. deildastjóri og sá einnig um innkaup fyrir hana. Fyrir utan að vera með kennslu- réttindi var Hjörtur menntaður húsgagnasmiður og húsasmiður, sem nýttist honum vel við kennslu. Hirti var mjög annt um nemendur sína og í lok hverrar annar var mikið að gera hjá hon- um við að aðstoða nemendur í að ljúka við verkefni sín, því allir urðu að ljúka verkefnunum og standast áfangann. Hjörtur var einstakt ljúfmenni, alltaf með bros á vör og tilbúinn að aðstoða eða leiðbeina okkur sem ekki vorum eins reyndir í kennslunni og hann. Hann var mjög farsæll sem kennari og enn í dag koma nemendur í heimsókn í skólann og minnast Hjartar með hlýhug og þakklæti fyrir þau ár sem þeir áttu með honum. Hjörtur átti mörg skemmtileg orðatiltæki. Eitt notaði hann mikið þegar eitthvað hafði farið úrskeiðis hjá nemandanum en það var „þetta er svo sem allt í lagi, þetta er nú engin kirkja“. Hjörtur var mjög hagmæltur og þegar hann sat yf- ir í prófum komu iðulega ein- hverjar vísur frá honum um sam- starfsfólkið. Við fyrrverandi vinnufélagar Hjartar á húsasmíðabraut Fjöl- brautaskólans í Breiðholti viljum þakka honum fyrir allar góðu og ánægjulegu stundirnar sem við áttum með honum meðan hann starfaði með okkur og einnig heimsóknirnar til okkar eftir að hann lét af störfum meðan heilsa hans leyfði. Fyrir hönd húsasmíðabrautar FB, Stefán Rafnar Jóhannsson kennari, Víðir Stefánsson aðstoðarskólameistari. Sumir eru skemmtilegri en aðrir. Það má segja um Hjört Á. Magnússon. Hann var einstak- lega skemmtilegur húmoristi, með yndislega nærveru, einlæg- ur, ljúfur og hjálplegur í alla staði. Fyrsta minning mín um til- veru Hjartar var á gamlaársdag 1965, þegar hann og Jóna móð- ursystir mín létu pússa sig sam- an á Akranesi. Þá kom önnur systir þeirra mömmu að Vals- hamri til að sækja Sigga afa minn og Óla frænda, sem skyldu vera viðstaddir brúðkaupið, en foreldrar mínir áttu ekki heim- angengt þennan dag. Í mínum huga voru Jóna og Hjörtur eitt. Þau voru alltaf nefnd bæði í einu. Hjörtur var einstaklega bóngóður og æði oft leitaði ég til hans t.d. við bíla- kaup. Þá leit hann á gripinn og lýsti yfir hvort eitthvert vit væri í kaupunum. Hjörtur hafði mikið vit á bílum og hans eigin bílar báru alltaf af öðrum hvað snyrti- mennsku varðaði. Heimili Hjartar og Jónu stóð mér alltaf opið þegar ég var ung- lingur. Þá kom fyrir að ég þurfti að gista ef leiðin lá í borgina og skemmtanalífið var kannað. Hjörtur var einnig boðinn og bú- inn að snúast með mig í tíma og ótíma. Hjörtur sjálfur var alger bind- indismaður. Oftar en ekki var hann hrókur alls fagnaðar í sam- kvæmum og skálaði þá í tíma og ótíma í óáfengum drykkjum en enginn veitti því athygli. Hjörtur var trésmiður og kennari að mennt og til þeirra verka hans var ekki kastað til hendinni frekar en annarra. Snyrtimennska og vandvirkni réð ríkjum hjá Hirti, hvar sem komið var við. Hjörtur var söngmaður góður og söng í fjöldamörg ár með Fóstbræðrum og ferðuðust þau hjónin oft með þeim þar sem söngurinn réð ríkjum og nutu þau góðs félagsskapar og eign- uðust marga góða vini í hópi Fóstbræðra og kvenna þeirra. Það er margs að minnast í samskiptum við Hjört og Jónu. Ég man hvað ég hlakkaði til er von var á þeim að Valshamri þeg- ar ég var barn og unglingur. Þau kom oft og hjálpuðu til við hey- skap og fleira. Þá var alltaf gam- an. Svo fórum við oft veiðiferðir í nágrenninu og eggjatínslu, en ég minnist þess sérstaklega hvað Hjörtur var þolinmóður. Hann vildi alltaf veiða aðeins meira, eða tína nokkur egg í viðbót. Stundum hélt ég að hann gæti aldrei hætt. Nú eru breyttir tímar. Ekkert jólakort þessi jól með velskrif- aðri vísu frá Hirti. Hann kastaði oft fram góðum vísum við ýmis tækifæri, t.d. fallegum náttúru- vístum, afmælisvísum með léttu gríni og jólavísum, og hafði ekk- ert fyrir því. Það er skrítið að geta ekki kvatt Hjört við útför hans, hann sem átti svo stóran þátt í lífi mínu frá því að ég var smápolli. Við hjónin erum í covideinangrun eins og margir þessi jól, en við fylgjumst með streyminu hér heima. Elsku Jóna, Inga Kolla, Siggi Ágúst og fjölskyldur. Okkar inni- legustu samúðarkveðjur til ykk- ar. Minning um einstakan og góðan mann lifir. Hver minning er dýrmæt perla. Hálfdán Helgason Háhóli. Einhver ævintýraljómi og hressileiki virtist svífa yfir vötn- um í byrjun sjöunda áratugar lið- innar aldar á heimili mætra hjóna, Páls Jónssonar frá Bjarnastöðum og Eddu Magnús- dóttur í Smiðjuholti á Reykholts- stað. Heimilið og trésmiðjan ið- aði af lífi og fjöri, fólk í blóma lífsins fetaði leiðir framtíðar- brauta. Jonni bróðir í hópnum að hefja smíðaferil sinn á þessum árum hjá meistara Páli, og meðal vinnufélaganna kátu bráðmynd- arlegur ungur maður, Hjörtur Ágúst Magnússon. Við Þurý kynntumst honum ekki mikið á þessum árum, en þau kynni áttu eftir að aukast og dýpka nokkrum árum síðar. Fyrst á Lynghaganum, þar sem hann vann að viðhaldsverkefnum með bræðrum mínum, Jonna og Oddi, en síðan í Fossvogi árið 1972 þegar við hófum byggingu húss okkar í Kvistalandi. Þríeyk- ið sem það reisti var skipað önd- vegissmiðum, Hirti, Edda Stein- gríms og Sigga Björns. Með þeim var gott að starfa, og við að lynda. Eftir að við fluttum í húsið hálfkarað varð Hjörtur síðan „smiður hússins“ árum saman, vandvirkur, áreiðanlegur og ein- staklega þægilegur í allri um- gengni. Krakkarnir okkar hænd- ust mjög að honum, og horfðu í forundran á ýmis skemmtileg uppátæki hans. Aldrei stríddi hann þeim þótt hann skyti skemmtilegum skotum á okkur, sem mörg hver eru enn rifjuð upp við ákveðin tilefni. Eftir- minnilegast líklega „þetta er full- gott hérna í Fossvoginum“, en það sagði hann oft þegar hann lauk einhverju verkefni, ávallt þó með sóma. Því miður skrifaði ég ekkert af gullkornum hans hjá mér, en þau voru mörg, enda snikkarinn síkáti orðhagur með afbrigðum. Við leiðarlok er margs annars að minnast úr samskiptum við þann góða og skemmtilega dreng Hjört Magnússon. Við Þurý minnumst hans með virðingu og þökk, sendum Jónu og fjölskyldu þeirra allri hugheilar sam- hryggðarkveðjur, og ég veit að ég mæli og fyrir hönd bræðra minna þegar ég segi að vinar sé sárt saknað. Rödd söngvins Fóstbróður er þögnuð – skarð er fyrir skildi. Óli H. Þórðarson. Bróðir minn og frændi okkar, INGI STEINAR GUÐJÓNSSON frá Hermundarstöðum í Þverárhlíð, lést á Landspítalanum hinn 15. desember síðastliðinn. Útför hefur farið fram. Jón Guðjónsson og systkinabörn Ástkær sonur okkar, KORMÁKUR ÆGISSON, lést á heimili sínu miðvikudaginn 15. desember. Útförin fer fram í Siglufjarðarkirkju föstudaginn 7. janúar klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Píetasamtökin á Akureyri. Kirkjugestir eru beðnir að framvísa neikvæðu hraðprófi sem er ekki eldra en 48 klst. gamalt. Hallfríður J. Hallsdóttir Ægir Bergsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.