Morgunblaðið - 03.01.2022, Síða 21

Morgunblaðið - 03.01.2022, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 ✝ Valdimar Ei- ríksson fæddist í Reykjavík 2. nóv- ember 1956. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 24. desem- ber 2021. Foreldrar Valdimars voru Þór- dís J. Valdimars- dóttir, f. 10. október 1928, d. 14. ágúst 2004, og Eiríkur Þorgeirsson, f. 5. apríl 1917, d. 11. nóvember 2010, en hann var einkasonur foreldra sinna. Árið 1978 kvæntist Valdimar Ásu Bryngeirsdóttur. Börn þeirra eru: 1) Eiríkur Ari, kvænt- ur Ragnheiði Á. Ólafsdóttur, börn Eiríks eru: Viktor Smári, f. 2001, Anja Dís, 2006, og Þorgeir Óli, f. 2011. 2) Valva, í sambúð með Sigurði Egg- erti Halldórusyni, börn Völvu eru: Benedikt, f. 2002, Patrekur, f. 2007, og Hilmar Logi, f. 2017. 3) Þórdís Lísa, í sambúð með Kristjáni Mar, börn Lísu eru: Rakel Ósk, f. 2011, Valdi- mar Máni, f. 2013, og Ástrós Ása, f. 2020. 4) Tómas Helgi, kvæntur Telmu Sif Guðmundsdóttur, börn Tómasar eru: Alexander Már, f. 2010, Manúel Máni, f. 2018, og William Andri, f. 2020. Útförin fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, 3. janúar 2022, klukkan 13. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Elsku pabbi minn. Það er svo ofboðslega erfitt og sárt að þurfa að kveðja þig svona snemma en á sama tíma er ég svo þakklát fyrir allar minningarnar sem munu lifa áfram með mér. Þú varst svo mikil fyrirmynd fyrir mig og ég mun taka svo mik- ið sem ég lærði af þér með mér út í lífið. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig þegar ég þurfti á þér að halda og sagðir mér alltaf það sem ég þurfti að heyra en ekki endilega það sem ég vildi heyra. Þú varst alltaf úti í bílskúr að dunda þér eitthvað og smíða og þegar börnin mín vantaði nýtt rúm fórstu bara í Húsasmiðjuna og keyptir spýtur og smíðaðir rúm fyrir þau, mig langaði í kertaarin og þá bara smíðaðirðu kertaarin handa mér, svo smíðaðirðu auðvit- að líka sumarbústað sem var alltaf í boði fyrir alla hvenær sem við vildum og það var alltaf svo gott að koma þangað og þá sérstaklega um verslunarmannahelgina þegar við vorum saman að spila og hlusta á tónlist, hlæja og hafa gam- an. Pítsupartíin sem þú bauðst í reglulega þar sem reglan var „ég borga, þú sækir“ og alltaf var hleg- ið jafn mikið og það var svo gaman. Þú hringdir í mig klukkan 17.30 á hverjum einasta degi bara til að heyra í mér og vera viss um að allt væri í lagi hjá mér, spurðir út í hvernig dagurinn minn hefði verið og hvort Rakel, Valdimar og Ást- rós væru ekki hress líka og auðvit- að Kristján. Þú lést mig alltaf vita hvað þú værir stoltur af mér og hvað ég stæði mig vel og það fannst mér svo dýrmætt að heyra. Ég mun sakna þín svo mikið en minning þín mun lifa með mér að eilífu. Ég elska þig elsku pabbi minn. Þín dóttir, Lísa. Elsku pabbi minn, mikið sem lífið er ósanngjarnt núna. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að fara að án pabba en það er eitthvað sem ég verð að finna út úr því hann hefði ekki tekið það í mál að ég myndi leggjast í eitthvert þung- lyndi og hætta að lifa lífinu; „komdu þér á fætur og gerðu eitt- hvað!“ hefði hann sagt enda þoldi hann ekki leti og aðgerðaleysi. Pabbi hefur alla tíð verið minn klettur í lífinu og ef það var eitt- hvað sem bjátaði á hjá mér gat ég leitað til hans og við fundum lausn í sameiningu því eins mikið og pabbi var tilbúinn að hjálpa mér í einu og öllu þá vildi hann frekar leiðbeina mér í rétta átt en að leysa vandamálið fyrir mig og fyr- ir það er ég mjög þakklát því þá kenndi hann mér eitthvað í leið- inni. En það sem mig vantar hann núna til að hjálpa mér og leiðbeina í rétta átt með þetta erfiða og ósanngjarna verkefni sem það er að missa hann. Ég gæti skrifað heila bók um hann pabba minn en þar sem ég verð að hafa þetta stutt þá eru orðin sem standa upp úr til að lýsa honum best: virðing því hann sýndi fólki alltaf virð- ingu, kurteis, þakklátur, yfirveg- aður, vinnusamur og bestur allra. Hann var pabbi og minn allra nán- asti vinur og hann var einnig mín fyrirmynd í lífinu og ég ætla að halda áfram með hann í hjarta og alltaf að hugsa áður en ég fram- kvæmi „hvað myndi pabbi gera?“ Hann hringdi í mig á hverjum degi á slaginu 16:30 og það klikkaði ekki nema um nokkrar mínútur enda var hann vægast sagt vana- fastur; „bið að heilsa strákunum þínum og heyri í þér á morgun“, þannig endaði hvert eitt og ein- asta símtal frá honum. Takk fyrir allt pabbi minn, ég er heppin að eiga svo mikið af minningum um þig sem munu ylja mér um hjarta- rætur um ókomna tíð. Mér þykir vænt um þig og hvíldu í friði besti minn, ég skal passa vel upp á bú- staðinn þinn og það verður plástur á sárið að halda áfram að skapa góðar minningar þar og ég veit að þú verður með okkur þar. Þín dóttir, Valva. Valdimar Eiríksson ✝ Jósef Gottfreð Blöndal Magn- ússon fæddist 18. desember 1933. Hann lést 14. nóv- ember 2021. Jósef var sonur hjónanna Ingibjargar Vil- hjálmsdóttur hús- freyju, f. 22. ágúst 1912, d. 31. desem- ber 2005, og Magn- úsar Jósefssonar sýning- arstjóra, f. 28. desember 1911, d. 8. janúar 1994. Systkini Jósefs eru Guðríður Helga skrifstofustjóri, f. 20. apr- íl 1938, d. 8. okt. 2019, og Jakob Braghildur Sif Matthíasdóttir. Börn þeirra eru Jósef Ari og Matthías Vilhjálmur. Jósef nam flautuleik við Gu- ildhall School of Music and Drama í London en starfaði megnið af starfsævi sinni sem flautuleikari í Sinfóníuhljóm- sveit Íslands. Samhliða sinnti hann tónlistarkennslu í Barna- músíkskólanum, síðar Tónmenntaskólinn, Tónlistar- skólanum í Reykjavík og undir það síðasta í Laugarnesskóla. Hann var um tíma í lúðrasveit- inni Svani, lúðrasveit Hafn- arfjarðar og lúðrasveit Reykja- víkur. Hann var í hljómsveit Íslensku óperunnar auk þess að taka þátt í ýmsum uppfærslum í Þjóðleikhúsinu. Úför hefur farið fram í kyrr- þey. Hörður veitinga- maður, f. 1. ágúst 1950. Eiginkona Jósefs var Rut Magnússon óperusöngkona, f. 31. júlí 1935 í Car- lisle á Englandi, d. 7. febrúar 2010. Synir þeirra eru: 1) Magnús Yngvi rannsóknarstjóri, f. 27. júní 1966. Eigin- kona hans er Sigríður Guð- steinsdóttir. Börn hennar eru Rósa Birgitta, Guðsteinn Þór, Nína Björk og Ívar Rósinkrans. 2) Ásgrímur Ari leigubílstjóri, f. 2. júní 1969. Eiginkona hans er Þegar ég rifja upp minningar um hann afa þá koma helst til greina nokkrar, þá sérstaklega þegar ég var yngri og var í miklu söngstarfi í Langholts- kirkju, þetta hefur verið árin 2005-07. Flesta daga þegar það var æfing hjá kórnum fór ég til ömmu og afa bæði fyrir og eftir æfingar. Þar var alltaf kvöld- matur eftir æfingar. Fyrir æf- ingar var mér alltaf hjálpað ann- aðhvort með heimanámið fyrir skólann eða ég fór að spila í tölv- unni hans afa, þetta var sá tími dagsins sem mér fannst hvað skemmtilegastur. Svo er ég nú með slatta af góðum minningum um hann afa þar sem við fórum stundum saman upp í sumarbústað í Kjós- inni til að sjá um bústaðinn en ég aðstoðaði við að annaðhvort slá grasið eða fékk að mála bú- staðinn. Þar man ég eftir því þegar við kíktum stundum yfir til hans Sigga frænda en hann var með módelflugvélarnar sínar sem mér fannst og finnst enn í dag rosalega spennandi. Afi var alltaf hress og kátur og kom manni alltaf í gott skap. Hann var mikill tónlistarmaður sem kom mér meðal annars út í kórstarf þegar ég var yngri og kom mér svo út í það að spila á saxófón, sem hann gerði nú sjálfur líka. Afi var hvað mest að spila á flautu hjá Sinfóníuhljóm- sveit Íslands eftir nám í Guild- ford í Bretlandi og vann hjá sin- fóníunni í 33 ár. Það voru svo nokkrir bíltúrar sem við fórum í af og til þegar ég var kominn með bílpróf en þá bauð ég honum afa stundum í bíltúr og við keyrðum inn Hval- fjörðinn. Hann sagði mér ótal sögur um svæðið og sagði mér einnig eina sögu sem verður allt- af með mér. Þetta var þegar hann var lítill strákur og var uppi í Kjós. Þetta hefur verið annaðhvort snemma í stríðinu eða seint í því. Þá man hann eft- ir því að þegar hann var úti á túni kom þýsk flugvél innan úr dalnum með aðra vél á eftir sér frá bandamönnum þar sem skot- ið var á þýsku vélina og henni fylgt út dalinn þar sem Bretar komu með aðra vél á móti og enduðu þeir einhvers staðar inni í Svínadalnum, þar sem mér skilst að þýska vélin hafi verið skotin niður. Þessa sögu hef ég alltaf spáð í þar sem ég hef alltaf haft rosalega mikinn áhuga á sögu mannsins og stríðinu, en ég tel að hann afi hafi haft mikil áhrif á það hjá mér. Hann afi var indælasti og flottasti maður sem ég vissi um. Manni leið alltaf vel þegar mað- ur var hjá honum og hann hafði alltaf meiri áhyggjur af öðrum en sjálfum sér. Hann var alltaf góður við mig og vildi mér bara það besta. Hann hjálpaði mér í gegnum mikið á lífsleiðinni og ég veit að hann mun vaka yfir mér og fylgjast með mér dafna í líf- inu. Hvíldu nú í friði elsku afi minn, ég mun sakna þín rosalega en ég veit að þú ert kominn á betri stað til hennar ömmu. Matthías Vilhjálmur Little. Nokkur fátækleg kveðjuorð til Jósefs bróður míns. Fyrir nokkru hafðir þú sam- band, varst að hugsa um ítölsku og komst þér upp kennslubók. Næst þegar ég heimsótti þig gafstu mér svona bók, þú hafðir nefnilega keypt tvær. Þetta er alveg lýsandi dæmi um þig, svona varst þú við mig alla tíð, vildir kenna mér hitt og þetta og hafa mig með. Bara góðar minningar koma í hugann þegar ég kveð þið nú Jósef bróðir. Þegar ég fór að muna eftir mér heima á Hofs- vallagötu varst þú farinn út í líf- ið enda talsvert eldri en ég. Fórst til Englands að læra tón- list og hittir Rut, þinn lífsföru- naut. Ég man eftir skemmtileg- um bréfum frá þér um fjóra unga stráka sem voru að slá rækilega í gegn á þessum tíma, það voru Bítlarnir. Þú skrifaðir um þá og fannst þeir merkilegir. Þú komst heim og vildir sýna mér svo margt. Við fórum út seint á kvöldin og gláptum upp í himininn vestur í bæ og þú kenndir mér stjörnumerkin. Þú fórst í spilamennskuna, Sinfóníuhljómsveit Íslands og leikhúsið, og Rut í sönginn. Ég man eftir mér baksviðs í Há- skólabíói þegar þú varst að æfa með Sinfóníunni og mér fannst þú flottastur og bestur með flautuna. Þið pabbi töluðuð um og spiluðuð tónlist alla daga heima. Þú komst til mín í sveitina í útreiðartúr með Rut að sýna henni Kjósina þar sem þú hafðir líka verið í sveit og unnir alla tíð. Svo kenndir þú mér fluguveiði við Meðalfellsvatn, gafst mér stöng og fyrsta fluguveiðihjólið mitt, sem ég á ennþá. Arnarvatnsheiðin – þvílík ævintýri. Vikuferðir upp á heið- ina á sumrin í mörg ár með hópi vina, ekkert útvarp eða neitt svo- leiðis og helst ekki talað um neitt nema veiði, mat og náttúruna. Gist í tjöldum og kofum. Rut líka oft með og var dásemdin ein að sjá ykkur njóta ykkar í íslenskri náttúru á heiðinni fögru undir Eiríksjökli. Ég var þakklátur þátttakandi. Þú fannst alltaf hjá þér ein- hverja þörf fyrir að sýna mér og kenna, og þegar þú varst hættur að vinna, varst heima að hugsa um Rut og fjölskylduna, ákvaðstu einn daginn að kenna mér á saxófón. Það varð úr að hljóðfæri var keypt og við hitt- umst einu sinni í viku, ég náði tökum á hljóðfærinu og við spil- uðum dúetta saman. Tónlist, það var málið. Stund- um þegar ég kom í Skipasundið og steig út úr bílnum heyrðust fallegir flaututónar út á götu og dagurinn varð bjartur og falleg- ur, þú varst að æfa. Ég heyri þetta núna þegar ég loka aug- unum. Fyrir stuttu þegar ég sat hjá þér horfðir þú á mig og sagðir: „Æ Kobbi minn, ég veit eigin- lega ekki hvað ég er að gera hér lengur, nú er þetta búið, ég má ekki keyra bílinn minn lengur og kemst því ekki upp í Kjós.“ Æðrulaus með húmor, þannig varst þú. Minningin um hæglátan, ljúf- an, skemmtilegan og góðan bróð- ur er dýrmæt og hana á ég í hjarta mínu. Nú þegar þú ert farinn til for- feðra okkar, mömmu, pabba, Gurríar systur og Rutar þinnar, kveð ég þig með söknuði og þakka fyrir allar ljúfu minning- arnar sem þú bjóst til fyrir mig. Innilegar samúðarkveðjur til að- standenda. Jakob H. Magnússon. Gamall félagi er fallinn frá, Jósef Magnússon fyrrverandi flautuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, fjölhæfur á mörgum sviðum enda góðum gáfum gæddur. Auk starfa í Sinfóníu- hljómsveitinni kom hann víða við þar sem hópar komu saman í við- bót við kennslu við Tónlistar- skólann í Reykjavík, sem þá var eins konar tónlistarakademía landsins. Ófáir voru þeir flaut- unemar sem nutu tilsagnar hans á þeim völlum. Sjálfur nam hann fræðin undir handleiðslu þekkts flautuleikara og kennara, Geof- reys Gilberts í London, þar sem hann dvaldi í nokkur ár. Það var á þessum árum sem leiðir hans og ungrar glæsikonu lágu saman. Á þessum árum hét hún Ruth Little og átti vísan frama sem söngkona í þessari stóru tónlistarborg. Þarna voru stigin gæfuspor, ekki einungis fyrir Jósef og Ruth heldur auðg- aðist íslenskt tónlistarlíf um starfskrafta tveggja frábærra tónlistarmanna. Eftir ákvörðun um að gera Ísland að sínu heimalandi íslenskaði Ruth enskt nafn sitt og hét nú Rut L. Magnússon. Jósef var margt til lista lagt, taflmaður góður, sem sumir koll- egar skemmtu sér við að reyna að knésetja, oftast með litlum árangri. Þau hjónin komu sér upp aðstöðu til dvalar á kær- komnum stað í Kjósinni og þar nutu þau íslenskrar náttúru og friðsældar frá erli dagsins í rík- um mæli. Nokkuð er um liðið síðan Jós- ef hætti afskiptum af erilsömum tónlistarstörfum en lagði því meiri alúð við umönnun konu sinnar, sem hafði orðið fyrir heilsubresti og átt erfið síðustu ár. Mörg ár eru nú liðin síðan Jósef barðist ásamt félögum sín- um í Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir tilvist hljómsveitarinnar og leggja þannig einn hornstein að menningu þjóðarinnar. Megi minning hans lengi lifa. Kristján Þ. Stephensen. Jósef Magnússon Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MÓSES GEIRMUNDSSON verkstjóri, Grundarfirði, lést á heimili sínu miðvikudaginn 29. desember. Útför auglýst síðar. Dóra Haraldsdóttir Lilja Mósesdóttir Ívar Jónsson Hildur Mósesdóttir Aðalsteinn Gunnarsson Ásta Mósesdóttir Páll Þórir Hermannsson Dögg Mósesdóttir Hilmar Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær vinkona okkar, REGÍNA BERNDSEN, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. janúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna eru gestir vinsamlegast beðnir að framvísa neikvæðu hraðprófi við innganginn sem er ekki eldra en 48 klst. Athöfninni verður streymt á slóðinni www.sonik.is/regina Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á að láta Píetasamtökin njóta þess. Þökkum starfsfólki deildar 7B á Landspítalanum Fossvogi fyrir hlýja og góða aðhlynningu. Bergþór Ingi Leifsson Bogi Halldórsson Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Litlakrika 2a, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum mánudaginn 27. desember. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. janúar klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana takmarkast fjöldi viðstaddra við fjölskyldu, nána ættingja og vini. Streymt verður frá athöfninni á www.vimeo.com/660972818. Vigfús Þorsteinsson Þráinn Vigfússon Þórunn Vigfúsdóttir Reynir Sigurðsson Eiríkur Vigfússon Telma Halldórsdóttir ömmu- og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi. SÆMUNDUR GUNNÓLFSSON frá Þórshöfn Sóleyjarima 17 Lést á Landspítalanum Hringbraut 27. desember. Útför hans fer fram í Grafavogskirkju 5. janúar kl. 15:00. Allir sem vilja fylgja honum eru velkomnir en vegna sóttvarna þarf að sýna neikvætt Covid-19 hraðpróf við innganginn, tekið af viðurkenndum aðila og ekki eldra en 48 tíma. Auður Stefánsdóttir Halldór Berg Sæmundsson Arnar Gylfason Cecilía Foelsche Hallur Eiríksson Berglind Þorsteinsdóttir Guðlaug A. Gunnólfsdóttir Gísli Geir Guðlaugsson afabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.