Morgunblaðið - 03.01.2022, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 03.01.2022, Qupperneq 29
Nýjasta útspil hins mjög svo fjölhæfa Benna Hemm Hemm eru tvö spunaverk sem voru tekin upp í Seyðis- fjarðarkirkju og -skóla. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Benni Hemm Hemm, Bene- dikt Hermann Hermanns- son, hefur starfað að alls kyns tónlist í gegnum tíðina. Hann hefur gefið út grípandi indírokk en einnig tilraunakennd hljóðverk og þetta verk, Church/School, fellur kirfilega í seinni flokkinn. Og þó. Um er að ræða spunaverk í tveim- ur hlutum sem býr þó yfir heil- miklu melódíunæmi. Tilurð verksins er allrar athygli verð. Benni lýsir því sem svo að hann hafi verið á göngu heim til sín eitt síðdegið, nánar til- tekið 19. febr- úar 2019, og hafi þá fengið nokkurs konar vitrun. Það hafi runnið upp fyrir sér hvað hann þyrfti að gera sem tónlistar- maður og á einu augnabliki hafi hann móttekið allt sem hann þurfti að vita hvað varðaði lagasmíðaferl- ið, upptökumál, spunann, texta, hljóðblöndun, framkomu, allt. Hann hafi uppgötvað í einni svip- hendingu að þetta væri það sem hann yrði að gera, nú og eftir- leiðis. Fyrst um sinn hafi hann þó haldið að hann væri að missa vitið og fór hann því leynt með þetta fyrst um sinn. En áætlun um tón- listargjörninginn var engu að síður klár í hausnum. Þegar fjölskylda hans skrapp svo úr bænum eina helgi ákvað hann að tilreyna allar Allt fram streymdi þær hugmyndir sem blöstu við honum. Ef útkoman yrði hræðileg þá væri bara ljóst að hann væri búinn að tapa vitinu fyrir fullt og allt. Eftir að hafa skutlað fjöl- skyldunni út á flugvöll hafi hann svo farið beinustu leið í Seyðis- fjarðarkirkju og hafist handa við upptökur. Hann lék á Steinway- píanóið í hálftíma og tónlistin flæddi fram. Hann færði sig síðan yfir í Seyðisfjarðarskóla þar sem hann tók upp þar til brast á með morgunskímu. Trommur, bassi, hljómborð, blástur, gítarar, raddir, ásláttur o.s.frv. Heim fór hann, svaf í fjóra tíma, og svo aftur af stað. Mikill uppgangur en ótti við að vera að detta í maníu var farinn að láta á sér kræla. En vissan um að vel hafi verið að verki staðið var því sterkari. En hvernig er verkið þá lesandi góður? Á ég að segja þér frá því? Ég greini spunann vel, maður heyrir það t.d. í píanó- sprettum en þetta er um leið unnið verk, skipulegt og uppraðað. Þetta er það besta úr báðum heimum, tamið flæði eiginlega. „Church“ byrjar með hljóðabylmingi, nokk- urs konar spunayfirlýsing, en svo koma melódíur sem meika sens, leiknar af manni sem er auðheyri- lega enginn aukvisi. Lýsingin á ferlinu gefur mögulega til kynna að þetta sé klukkustundarlöng súpa sem einkennist af gargi og geðveiki en svo er ekki. Bæði verkin eru falleg í raun, nostrað hefur verið við þau og maður finn- ur alveg að þetta hefur verið afar losandi ferli fyrir Benna. Það eru kaflar í „School“ sem vísa í ýmis- legt sem ég veit að hann þekkir. Nútímatónlist, tilraunir Talk Talk, raftímabil Miles Davis, nútíma- djass. Þetta flögrar þarna um að einhverju leyti a.m.k. Þetta er þó fyrst og fremst afdráttarlaust. Hrein sköpun. Gakktu inn í kirkj- una/skólann eða bara slepptu því. Verkið kom út 30. október síðastliðinn og streymir nú á Bandcamp og Spotify. Gerðarleg vínilútgáfa, tvöföld, kemur svo út í apríl á næsta ári. Þar verður einn- ig að finna myndefni og annað ámóta eftir Peter Liversidge. Téð- ur Peter útbjó einnig myndbands- verk við báða hluta Church/School en þau má finna á Vimeo. » Hann hafi upp- götvað í einni svip- hendingu að þetta væri það sem hann yrði að gera, nú og eftirleiðis. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 The Matrix Resurrections, fjórða og nýjasta mynd flokksins, sem Lana Wachowski leikstýrir og heimsfrumsýnd var fyrr í þessum mánuði, fellur í grýttan jarðveg meðal gagnrýnenda. Peter Bradshaw, gagnrýnandi The Guardian, segir að myndin sé þurrausin lífi af hendi Hollywood- vélarinnar. Rifjar hann upp að fyrstu tvær myndir flokksins hafi verið framúrskarandi og serían villst af leið í þriðju myndinni. „Fyrsta myndin bjó yfir nýsköpun með sprengikrafti en nýja myndin er bara enn eitt ófrumlega verkið um upplýsingatækni og algrím,“ skrifar Bradshaw og gefur kvik- myndinni tvær stjörnur af fimm mögulegum. Peter Debruge, gagnrýnadi hjá Variety, segir að trílógíunni hafi lokið fyrir 18 árum með andláti Trinity og því að Neo fórnaði sér fyrir mannkynið. Í nýjustu mynd- inni rannsaki Lana Wachowski hins vegar hvað hefði gerst ef Neo hefði valið bláu pilluna í stað þeirrar rauðu á sínum tíma. „Í stuttu máli bætir Wachowski litlu við ríkulegu goðsögnina sem hún skapaði ásamt systur sinni Lilly og hún gætir þess vandlega að skemma hana heldur ekki,“ skrifar Debruge og bendir á að það felist ákveðin írónía í því að á sínum tíma hafi Matrix-þríleik- urinn þótt afar framsækinn en nýj- asta myndin hafi fyrst og fremst nostalgískt gildi. John Wenzel, gagnrýnandi Denver Post, segir að The Matrix Resurrections viti ekki hvers konar mynd hún vilji vera og að sjarmi Keanus Reeves bjargi ekki málum. Richard Brody, gagnrýnandi The New Yorker, harmar gerð fjórðu myndar seríunnar. „Wachowski plantar nokkrum góðum hug- myndum og nokkrum góðum leik- urum í slöppustu mynd seríunnar.“ Par Keanu Reeves og Carrie-Anne Moss í hlutverkum sínum sem Neo og Trinity. Nýja Matrix fellur í grýttan jarðveg Ljósberi Benni Hemm Hemm komst að miklum sannleik fyrir rúmum tveimur árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.