Morgunblaðið - 12.01.2022, Side 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*
-�-"%
,�rKu!,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Vonandi léttist á biðröðinni með þeim aðgerðum sem við
undirbúum nú,“ segir Díana Óskarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Flesta morgna
er löng og á köflum tvöföld bílaröð við verslunarhús
Krónunnar á Selfossi þar sem sýnatökur vegna Covid-19
fara fram. Bílarnir eru á stundum í hundruðum og röðin,
sem minnir helst á ógnarlangan orm, hlykkjast um göt-
urnar vestast í byggðinni á Selfossi, nærri kirkjunni.
Lest þessi blasir til dæmis við þegar komið er inn í bæinn
úr vestri að Ölfusárbrú. Stundum getur tekið nokkrar
klukkustundir að komast í próf – og á meðan gerir fólk
sér biðina bærilega með því að líta í bók eða símann sinn.
Þá hafa konur stundum sést taka upp prjónana sína.
Öngþveiti og óþægindi
Í bókun bæjarráðs Árborgar frá því á dögunum er til
þess mælst að HSU leita allra leiða til að breyta fyrir-
komulagi sýnatöku svo ekki skapist sú örtröð sem verið
hefur að undanförnu í götum nálægt sýnatökustað. Öng-
þveiti þetta valdi íbúum, til dæmis við götuna Þóristún,
talsverðum óþægindum. Telur bæjarráð ljóst að sýna-
tökustaðurinn í Krónunni anni ekki öllu því álagi sem
þangað er beint. Um þetta segir Díana að vandinn sé ljós
og sífellt sé reynt að finna leiðir til að létta á stöðunni.
Kalli er svarað
Eins og sagði frá í Morgunblaðinu á mánudag var
stjórnendum HSU í síðastliðinni viku send áskorun 600
íbúa í Þorlákshöfn sem vilja sýnatökur þar í bæ. Ótækt
sé að bæjarbúar þurfi að sækja slíka þjónustu á Selfoss
eða til Reykjavíkur eins og nú er. Þessu kalli Þorláks-
hafnarbúa hefur nú verið svarað og ætlunin er að á morg-
un, fimmtudag, verði opnaður sýnatökustaður í Þorláks-
höfn. Sá verður í ráðhúsi sveitarfélagsins við Hafnar-
berg, þar sem eru stór og rúmgóð salarkynni sem þykja
henta vel fyrir þessa starfsemi. Securitas sér um sýna-
tökurnar, líkt og gert er á Selfossi og á Hvolsvelli.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Veira Fólk bíður í bílum sínum eftir að komast í sýnatökur, sem eru í kjallara verslunarhúss Krónunnar. Lestin
langa hlykkjast um vesturbæinn á Selfossi og er íbúum til ama, svo bæjaryfirvöld hafa gert athugasemdir.
Biðröð á Selfossi minnir
helst á ógnarlangan orm
- Létt á með nýjum sýnatökustað - Þjónusta í Þorlákshöfn
Engar breytingar verða á fyrir-
komulagi sóttvarnaaðgerða næstu
þrjár vikurnar. Enn verða 20 manna
samkomutakmarkanir með undan-
þágum fyrir 50 manna samkomur á
sitjandi viðburðum og 200 manna
samkomum með neikvæðum hrað-
prófum fyrir Covid-19.
Willum Þór Þórsson heilbrigðis-
ráðherra tilkynnti um þetta að rík-
isstjórnarfundi loknum í gær.
Áfram verður stuðst við tveggja
metra nálægðarmörk á milli fólks
sem ekki er í nánum tengslum og
eins metra nálægðarmörk þar sem
er grímuskylda.
Aðspurður segir Willum Þór að
einhugur hafi ríkt um ákvörðunina
að framlengja núverandi aðgerðir
innan ríkisstjórnar. Þá kvaðst hann
hafa farið eftir tillögum sóttvarna-
læknis, samkvæmt minnisblaði hans,
í einu og öllu.
Spá 90 manns á spítala
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir og Már Kristjánsson, yfir-
læknir Covid-göngudeildarinnar,
sögðu á opnum fundi velferðarnefnd-
ar Alþingis um sóttvarnaaðgerðir í
gær að kórónuveirusmit verði eitt-
hvað í kringum þúsund á dag innan-
lands fram í febrúar og spár geri ráð
fyrir því að 90 muni liggja inni á
Landspítala vegna veirunnar í lok
janúar, þar af 20 á gjörgæslu.
Dekkri spá gerir ráð fyrir 30 sjúk-
lingum á gjörgæsludeild en þeir yrðu
10 samkvæmt bjartsýnni spá.
Már sagði ljóst að ef verstu spár
gengju eftir yrði eitthvað undan að
láta. Hörgull yrði á starfsfólki og
spítalinn þyrfti að skrúfa niður kröf-
ur; láta færra starfsfólk glíma við
fleiri sjúklinga.
Hann sagði enn fremur að fræði-
lega séð væri hægt að hafa 45 í rúmi
á gjörgæslu en spítalinn hafi ekki
sérhæfðan mannskap til að sinna svo
miklum fjölda.
Þórólfur sagði að stjórnvöld væru
alveg á brún þess að þurfa að herða
aðgerðir enn frekar til að koma í veg
fyrir alvarlega stöðu. Markmiðið
væri nú að ná smitum niður í 500 á
dag. Þá fór Þórólfur yfir mikla upp-
sveiflu í faraldrinum vegna tilkomu
Ómíkron-afbrigðisins og sagði útlit
fyrir að það afbrigðið tæki alveg yfir
hægt og bítandi.
Áfram 20 manna fjöldatakmörk
- Einhugur í ríkisstjórn - Tillögum sóttvarnalæknis fylgt í einu og öllu - Fræðilega séð geti 45 verið á
gjörgæslu - Alveg á brún þess að þurfa að herða aðgerðir - Markmið að ná smitum niður í 500 á dag
Fjöldi innanlandssmita og innlagna á
LSHmeðCovid-19 frá 1. júlí 2021
júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan.
206
1.553
1.191
41 virkt smit
greindist á
landamærum
Heimild: LSH og covid.is
43 einstaklingar
eru látnir
154
1.191
nýtt innanlandssmit
greindist sl. sólarhring
Fjöldi staðfestra smita innanlands
Fjöldi staðfestra virkra smita á landamærum
Fjöldi innlagðra sjúklinga á LSHmeð staðfest Covid-19-smit
10.326 erumeðvirktsmit
og í einangrun
9.732 einstaklingar
eru í sóttkví
39 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af sjö á gjörgæslu,
fjórir í öndunarvél
1.500
1.250
1.000
750
500
250
0
39
41
Ráðstafanir framlengdar um þrjár vikur
20 manna almennar samkomutak-
markanir, 50 á sitjandi viðburðum,
200með neikvæðum hraðprófum. 2 metra
nálægðarmörk.Grímuskyldam.a. í verslun-
um og almenningssamgöngum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjórnvöld Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra ræddu við fjölmiðla að loknum ríkisstjórnarfundi í gær.
Alþýðusamband Íslands hefur lagt
sitt af mörkum til að koma upplýs-
ingum til innflytjenda um bólusetn-
ingar vegna Covid-19 og hvatt þá til
að þiggja hana. Þau ítreka að at-
vinnurekendur megi ekki ganga
lengra en löggjafinn í skyldubólu-
setningum.
Þetta sagði Drífa Snædal, forseti
Alþýðusambands Íslands, á opnum
fundi efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis í gær. Tilefnið var áhrif
sóttvarnaaðgerða á atvinnulífið og
mótvægisaðgerðir.
„Við höfum lagt okkar af mörkum
til að koma upplýsingum til innflytj-
enda í gegnum okkar „kanala“ um
bólusetningar til að upplýsa fólk og
hvetja það. Að því sögðu hef ég tölu-
vert miklar áhyggjur af því að þetta
búi til misrétti á vinnumarkaði, að
við séum að ganga inn í eitthvert
tímabil þar sem eru bólusettir ann-
ars vegar og óbólusettir hins vegar.
Þetta getur varðað atvinnuöryggi
beinlínis að kjósa að bólusetja sig
ekki,“ sagði Drífa.
Hluti launa endurgreiddur
Annar gestur fundarins var Hall-
dór Benjamín Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins.
Í ræðu sinni sagði hann að ríkis-
stjórnir Norðurlandanna hefðu
brugðið á það ráð að endurgreiða
fyrirtækjum hluta launa starfs-
manna sinna sem hafa verið skikk-
aðir einangrun. Hann segir þetta
stærsta einstaka bjargræðið sem
hægt er að veita inn í íslenska at-
vinnulífið núna.
Hafa áhyggjur
af atvinnuöryggi
- Hvetja innflytjendur til bólusetningar