Morgunblaðið - 12.01.2022, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.01.2022, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022 ✝ Hrefna Jak- obsdóttir fædd- ist á Akureyri 9. júlí 1936. Hún andaðist á hjúkrunarheim- ilinu Hlíð á Akur- eyri 27. desember 2021. Foreldrar hennar voru Jakob Ólafur Pétursson, kennari og ritstjóri á Akureyri, f. 13. mars 1907, d. 7. febr. 1977, og Margrét Ágústa Jónsdóttir húsfreyja, f. 14. maí 1913, d. 13. apríl 2001. Hinn 17. apríl 1955 giftist Hrefna Yngva R. Loftssyni kaup- manni, f. 1. nóvember 1932 á Ós- landi í Óslandshlíð í Skagafirði, d. 8. mars 2019. Foreldrar hans voru Loftur Rögnvaldsson, bú- fræðingur og bóndi á Óslandi, f. ágúst 1978. Börn þeirra eru Yngvi Haukur, Baldur Hrafn og Rannveig Ásta. b) Sindri, f. 27. júlí 1988, kvæntur Særúnu Andr- ésdóttur, f. 19. apríl 1988. Börn þeirra eru Jakob og Rebekka. 2) Nanna Guðrún, f. 2. febr. 1960, gift Sigmundi Jónssyni, f. 14. júlí 1962. Dóttir Nönnu og Þorsteins Stefáns Eiríkssonar, f. 6. sept. 1955, er Ragna Dögg, f. 11. febr. 1987. Hrefna bjó alla sína tíð á Akureyri og starfaði framan af sem húsmóðir ásamt því að taka virkan þátt í fyrirtækjarekstri Yngva eiginmanns síns. Árið 1981 stofnaði hún verslunina Heilsuhornið sem var sérverslun með heilsuvörur á Akureyri. Ár- ið 1994 seldi hún verslun sína og starfaði sem húsmóðir eftir það. Hrefna var virk í starfi Sjálf- stæðisflokksins á Akureyri og meðlimur í Oddfellowreglunni. Útför Hrefnu fer fram í Höfðakapellu á Akureyri í dag, 12. janúar 2022. Einungis nán- ustu aðstandendur verða við- staddir. 16. nóv. 1891, d. 5. nóv. 1944, og Nanna Ingjalds- dóttir frá Öxará í Ljósavatnshreppi, S.-Þing., húsfreyja, f. 20. sept. 1898, d. 17. júní 1981. Systir Hrefnu var Erna Jakobsdóttir, lyfja- fræðingur á Ak- ureyri, f. 26. októ- ber 1941, d. 6. maí 1993. Dóttir Ernu er Ólöf Jak- obína Ernudóttir, f. 4. maí 1969. Börn hennar eru Erna Sóley og Tómas Oddur. Dætur Yngva og Hrefnu eru tvær. 1) Margrét, f. 21. jan. 1956. Börn hennar og Ástmars Leifs Þorkelssonar, f. 23. maí 1955, eru: a) Hrefna, f. 25. apríl 1977, gift Hafsteini Þór Haukssyni, f. 11. Hrefna var í mínum huga fyrst og fremst amma. Ekki bara því hún var amma mín heldur einnig af því að hún var eins og ömmur ættu að vera. Hún tók ávallt á móti fólki með kærleik, hlýju faðmlagi og í stað þess að dæma þá hlustaði hún og gaf gott að borða. Amma Hrefna og afi Yngvi voru bæði svo opin og þolinmóð með flest. Þau leyfðu mér að gera alls konar sem mig langaði að gera sem barn sem ég fékk ekki að gera annars staðar. Með ömmu var hægt að vera frjáls og maður sjálfur. Þau léku sér bæði með mér því þau voru svo tengd við barnið inni í sér. Amma Hrefna var tilfinninga- rík, viðkvæm og jafnframt eins og ljónynja þegar brotið var á einhverjum sem henni þótti vænt um. Hún var mikið fyrir að kúra og lesa í hlýju rúmi og erum við líkar að því leyti. Það var ekki sjaldan sem ég hoppaði upp í rúm til hennar hvort sem var í hádeg- ishléum eða eftir skóla og við kúrðum saman. Einnig áttu vin- konur mínar til að gera það sama því þannig var það heima hjá ömmu og afa. Allir voru velkomn- ir í kúr og spjall upp í rúm. Amma var ekki staðalímyndin af ömmu. Hún bakaði ekki nema við stór tilefni, hún hafði gaman af því að fá sér í glas og seildist í allt glingrið mitt og töskur enda fannst henni skemmtilegast að fá glingur eða fallegar peysur að gjöf. Henni fannst skemmtileg- ast þegar mikið fjör var í kring- um hana og sóttist hún eftir því að vera með ungu fólki, enda náði hún bestu sambandi við ungu konurnar sem unnu á Hlíð. Hún hafði einstakt lag á að tengjast ungu fólki gegnum kaldhæðin húmor og einlægan áhuga á að vita hvað væri í gangi í samfélaginu og einkalífi þeirra. Þegar ég var barn eyddum við amma ógleymanlegum stundum saman. Mér fannst skinkuhorn góð svo þá bökuðum við þau sam- an. Mér fannst gaman að byggja virki og fara í hlutverkaleiki og þá gerðum við það saman. Sigga og Magga voru bóndakonur sem bjuggu í torfkofum seint á 19. öld en þær voru hugarfóstur okkar ömmu. Á dimmum vetrum á Akureyri slökktum við á öllu raf- magni, kveiktum á kertum og fórum í gamaldags föt. Ég átti svo heima í torfbæ í stofunni og hún í eldhúsinu. Tímunum saman gátum við flúið inní þennan heim þar sem við töluðum gamaldags íslensku og ræddum um búskap- inn, eldamennsku og fleira í þeim dúr. Mikið þakklæti býr í hjarta mér fyrir þessar stundir, þegar lífið var erfitt og mikil huggun fékkst með að flýja raunveruleik- ann með ömmu. Það var mér mikil gæfa og gleði að hafa valið þig sem ömmu. Nú finnur þú ekki lengur til, þér er ekki lengur kalt og færð að sjá systur þína, afa Yngva og fleiri aftur svo ekki sé minnst á pabba þinn, en þú varst mikil pabbas- telpa. Ég spurði þig stundum hvort þú hlakkaðir til að sjá Fróða í sumarlandinu og nú færðu loksins að knúsa hann. Ég mun sakna þín og minnast þín ævilangt. Þú varst manneskjan mín. Þangað til næst elsku amma. Daggperlur glitra um dalinn færist ró. Draumar þess rætast sem gistir Vaglaskóg. Kveldrauðu skini á krækilyngið slær. Kyrrðin er friðandi, mild og angurvær. (Kristján frá Djúpalæk) Ragna Dögg Þorsteinsdóttir. Við áramót leiðum við gjarnan hugann að því liðna, minnumst fólks og atburða sem liðnir eru og finnum rækilega fyrir því að eng- inn stöðvar tímans þunga nið, svo gripið sé til orða Davíðs Stefáns- sonar frá Fagraskógi. Þessi til- finning er sterk nú þegar við hjónin eigum ekki lengur ömmur eða afa á lífi. Hrefna Jakobsdóttir var amma Hrefnu eiginkonu minnar. Ég fékk því að kynnast og fylgj- ast með þessari glæsilegu og merkilegu konu í tuttugu ár. Hrefna var atorkusöm, já- kvæð, lifandi og skemmtileg kona. Þau hjónin voru um langt skeið á kafi í verslunarrekstri á Akureyri, fylgdust með öllu og þekktu alla. Yngvi Ragnar og Hrefna stóðu vaktina í hjarta bæjarins, hann í Hafnarbúðinni en Hrefna í Heilsuhorninu þar sem hún var frumkvöðull á sviði verslunar með heilsueflandi vörur. Það var gjarnan haft á orði að verslun þeirra hjóna væri ekki síður félagsmálastofnun heldur en fyrirtæki, enda hlupu þau hjón gjarnan undir bagga með fólki sem sárlega þarfnaðist þess. Hrefna var virk í starfi Sjálf- stæðisflokksins á Akureyri og öll- um hnútum kunnug þar, enda dóttir Jakobs Péturssonar, rit- stjóra Íslendings um áratuga- skeið, og alin upp við rökræður um landsins gagn og nauðsynjar. Þá var hún einnig félagi í Odd- fellow-reglunni. Samhliða öllu þessu bjó Hrefna fjölskyldu sinni yndislegt heimili. Saman mynduðu Hrefna og Yngvi einstakt og ógleyman- legt teymi. Að dvelja hjá þeim heiðurshjónum fyrir norðan minnti mig á samfélag æsku minnar. Útihurðin var ólæst og vinir og ættingjar gengu óhindr- að inn og út af heimilinu. Umferð- in um heimilið gat verið mikil en öllum var vel tekið. Þegar ég kom í fyrsta sinn til þeirra, rúmlega tvítugur að aldri, heilsaði Yngvi mér með orðunum: „Nei, mikið andskoti ertu myndarlegur!“ Þannig var ísinn brotinn og svo settumst við öll að spjalli eins og við hefðum alltaf þekkst. Hrefna var nýjungagjörn og naut þess að ferðast og læra nýja hluti. Saman sigldu þau hjónin á yngri árum í ævintýraferðir með Gullfossi. Seinna var ferðast með dætrum og svo barnabörnum á suðlægar slóðir. Þegar síðustu fjölskyldumeðlimirnir fluttu frá Akureyri og hún og Yngvi voru ein eftir fyrir norðan lærði Hrefna á snjallsíma, far- og spjaldtölvur til þess að geta fylgst betur með og átt í sam- skiptum við fjölskylduna. Sú kunnátta kom sér vel undir það síðasta þegar Hrefna bjó á dval- arheimilinu Hlíð, oft við strangar samkomutakmarkanir vegna heimsfaraldurs. Það hlýtur að hafa vakið upp erfiðar minningar fyrir Hrefnu sem þurfti að dvelja í einangrun á Kristnesi sem lítið barn vegna berklasýkingar. Nú fáum við Hrefna og börnin okkar, Yngvi, Baldur og Rann- veig, ekki að njóta þess að hafa langömmu Hrefnu lengur hjá okkur. Þótt enginn viti hvað tek- ur við handan móðunnar miklu, leyfum við okkur að vona að Yngvi Ragnar hafi tekið á móti Hrefnu sinni. Og ef svo er getum við verið viss um að það er líf og fjör í tuskunum. Hafsteinn Þór Hauksson. Hrefna Jakobsdóttir ✝ Pálína Matt- hildur Sigurð- ardóttir fæddist í Reykjavík 26. febr- úar 1928. Hún and- aðist á dvalarheim- ilinu Sóltúni í Reykjavík þann 2. janúar 2022. For- eldrar hennar voru Sigurður Guðmunds- son, f. 13. september 1893, d. 27. maí 1977, verkamaður og skrifstofumaður, frá Haukatungu í Kolbeins- staðahreppi og kona hans Krist- jana Sigurást Helgadóttir, f. 9. september 1896, d. 11. júní 1974, húsfreyja frá Ólafsvík. Matthildur var önnur í röð sjö systkina; Sig- urrós, f. 20. desember 1926; Árný, f. 5 janúar 1930; Guðmundur Helgi, f. 15. maí 1932, d. 29. mars 2018; Guðný, f. 16. október 1935; Svanhildur Guðbjörg, f. 17. febr- úar 1938, d. 31. desember 1995; og Fenger, börn hans eru Hákon Helgi, f. 16. september 1987, unn- usta Dröfn Haraldsdóttir; Helga Björt, f. 15. júlí 1989, maki Arnar Gunnarsson og barn þeirra Mó- eiður Líf; Hörður Hákonarson, f. 22. október 1955, sambýliskona hans er Margrét A. Frederiksen, dóttir hans er Elín Björg, maki hennar er Jón Þór Ólason, og börn þeirra Tryggvi Garðar og Arna Sif. Matthildur ólst upp hjá for- eldrum sínum á Freyjugötu 10A í Reykjavík, gekk í Austurbæjar- skóla og síðar í Ingimarsskóla. Hún flutti til tengdaforeldra sinn- ar í Efstasund 74, þar til þau Há- kon festu kaup á íbúð í Sólheimum 27. Þar bjuggu þau síðan alla ævi. Að loknu námi vann Matthildur í Haraldarbúð í Austurstræti og hjá Magnúsi Benjamínssyni úrsmið, matráðskona í símstöðinni Brú í Hrútafirði, tók að sér fata- viðgerðir heima, en lengst af starfaði hún hjá Náttúrufræði- stofnun Íslands við Hlemm, sem skrifstofustjóri og við fleiri störf. Útförin er fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jarðsett verður í Gufunes- kirkjugarði. Páll Valgeir, f. 3. maí 1940. Matthildur giftist hinn 14. nóvember 1953 Hákoni Bjarnasyni, f. 29. febrúar 1928, d. 30. mars 2005, loft- skeytamanni frá Reykjarfirði við Djúp. Foreldrar hans voru hjónin Bjarni Hákonarson, f. 28. apríl 1890, d. 20. maí 1965, bóndi og söðlasmiður frá Reyk- hólum, og Guðrún Ólafsdóttir, f. 14. desember 1892, d. 5. maí 1957, húsmæðrakennari frá Reykjarfirði við Djúp. Börn Matthildar eru; Sigurður Jónsson, f. 12. ágúst 1947, börn hans eru Soffía Auður, f. 1974, maki Viðar, og synir þeirra Ey- þór Ingi og Kári Hrafn, og Atli, f. 1984; Bjarni Hákonarson, f. 6. apríl 1954; sambýliskona Hjördís Elsku mamma, þá er komið að kveðjustund. Þótt aldurinn hafi orðið hár, 93 ár, er söknuðurinn alltaf jafn mikill. Ég veit að pabbi tekur vel á móti þér í sumarlandinu. Frá mörgu er að segja á langri ævi sem þú hefur lifað, ekki síst umburðarlyndinu og hinni miklu þolinmæði sem þú bjóst yfir. Þú tókst öllum sem jafningjum, sama hverjir þeir voru. Hvatning þín og umhyggja var yndisleg, alltaf var gott að eiga þig í sínu liði. Gott að eiga þig að. Mamma fæddist í Reykjavík 26. febrúar 1928 og hafði lifað tím- ana tvenna. Hún var gift Hákoni Bjarnasyni, f. 29.2. ’28, d 30.3. ’05. Mamma átti þrjá syni, Sigurð, f. ’47, Bjarna, f. ’54, og Hörð, f. ’55. Þau byggðu sér myndarlegt heimili pabbi og mamma í Sól- heimum 27 í Reykjavík. Þar var ætíð gestkvæmt og margir sóttu til þín. Notalegheitin við að heim- sækja ömmu Matt, eins og þú varst alltaf kölluð seinni árin, voru mikil. Mamma var mikil hannyrðamanneskja og saumaði mikið út. Hún saumaði myndir og lét ramma þær inn. Garnið mjög fínt og allt handbragð til fyrir- myndar. Seinni ár átti hestamennska hug hennar. Þau pabbi byggðu sér hesthús í Víðidalnum í Reykjavík, þar sem þau stunduðu sína hesta- mennsku ásamt fjölskyldu, og svo á sumrin í Gufunesi. Mamma hafði yndi af allri úti- veru. Margar voru ferðirnar sem pabbi og mamma fóru í, bæði hér- lendis og erlendis. Tjaldútilega, hestamennska og laxveiði, öll úti- vera var henni að skapi. Elsku mamma, ég á þér svo margt að þakka og söknuðurinn er svo mikill. En ég veit að nú ert þú í vinahópi og þér líður vel. Ég er viss um að við hittumst aftur og þá verður gaman. En þakklætið og minningin um yndislega móður mun ávallt lifa. Þinn sonur, Hörður. Mamma er látin. Amma er lát- in. Hún var hjartahlý kona sem trúði á gæsku allra manna. Var mikill spekúlant, hugsjónakona og víðsýn. Skemmtilega samsett innhverf félagsvera. Gat verið fyndin og uppátækjasöm, og séð skondnar hliðar á hversdagslegu lífinu. Mamma sinnti starfi sínu af alúð og mikilli vandvirkni, hvar sem hún starfaði, heima eða á vinnustað. Listfeng í sínum hann- yrðum og vinnu allri og lét fjöl- skyldu og vini njóta án þess að hika. Henni var annt um náttúr- una, fuglana, hestana, og gat náð augnsambandi við dýrin í haga og skynjað líðan þeirra. Elskaði að ferðast um landið sitt og faðma víðfeðmi náttúrunnar. Taldi aldr- ei eftir sér að tjalda og þáði alla gistingu glöð í sinni. Henni leið best hjá sínu fólki. Mamma snerti líf ótalmargra þótt það væri ekki opinbert eða í umræðunni. Hugs- andi góðleg móðir með hlýjan hug og sinn skammt af breysk- leika. Gat verið grandalaus, stundum rati í tæknimálum, en þá lærði hún það sem þurfti. Hrein kona með heitt hjarta sem beitti sér á sinn hægláta máta fyrir heill og betra lífi fólks, barna sinna, barnabarna, barna- barnabarna, fjölskyldu og vina. Hún hafði þegið mjög stóran skammt af þolinmæði og kær- leika í vöggugjöf, en var viðkvæm manneskja. Góð kona með stórt bakland. Ljósið hennar, sem slokknaði á öðrum degi nýs árs, verður lifandi í minningum okkar allra, þótt skarðið sem hún skildi eftir verði ekki fyllt. Umfram allt er minningin um kærleika henn- ar, fórnfýsi og óendanlega þolin- mæði sem við þökkum. Bjarni Hákonarson, Hjördís Fenger, Hákon Helgi Bjarnason, Dröfn Haraldsdóttir, Helga Björt Bjarnadóttir, Arnar Gunn- arsson, Móeiður Líf. Englar eins og þú. Þú tekur þig svo vel út hvar sem þú ert. Ótrúlega dýrmætt eintak, sólin sem yljar og umhverfið vermir. Þú glæðir tilveruna gleði með gefandi nærveru og færir bros á brá svo það birtir í sálinni. Sólin sem bræðir hjörtun. Í mannhafinu er gott að vita af englum eins og þér. Því þú ert sólin mín Sem aldrei dregur fyrir. (Sigurbjörn Þorkelsson) Takk fyrir allt Matta mín. Guð geymi þig. Þín tengdadóttir, Margrét A. Frederiksen. Nú hefur hún Matta fengið að kveðja þetta jarðlíf, það hefur ver- ið öllum erfitt síðustu árin. Ég kynntist Möttu 1938 þegar ég byrjaði í Barnaskóla Austurbæj- ar. Fyrsti kennarinn í vorskóla var Valgerður Guðmundsdóttir föðursystir Möttu. Hún sagði við mig: „Ég ætla að setja þig við hlið- ina á frænku minni, henni Öddu.“ Árný er alltaf kölluð Adda, við urðum strax perluvinkonur og þar með varð ég heimagangur hjá fjölskyldunni á Freyjugötu 10. Á þessum árum var algengt að börn færu í sveit á sumrin. Kona sem var sveitungi pabba bauð mér að koma í sveit til sín í Mýr- dal í Kolbeinsstaðahreppi. Þang- að komu líka systkini úr Reykja- vík, Matta og Mummi, og þekkti ég þau af Freyjugötunni. Við und- um okkur öll vel þar. Þarna feng- um við að kynnast búskapnum og taka þátt í öllu sem var að gerast. T.d. var tekinn upp mór úr mó- gröfum við tjörnina. Þegar mó- kögglarnir höfðu verið fluttir heim á hlað var þeim skipt í flögur og var okkur krökkunum kennt að raða flögunum í hrauka. Þetta fannst okkur skemmtilegt, líkt og að byggja spilaborgir. Sama var með sauðataðið, það var stungið út úr húsunum þegar kindurnar voru farnar út á vorin, hnausun- um skipt niður í flögur og raðað upp í hrauka. Þetta var gert til að þurrka flögurnar, seinna voru þær svo fluttar í sérstakar geymslur því þetta var vetrar- forði heimilisins til að kynda upp íbúðarhús, til þess voru kolavélar sem jafnframt var eldað á og þetta var eldiviður til að drýgja kolin. Svona lærðum við ýmislegt um gamla tímann, sem fáir kunna skil á í dag. Mér þótti mjög vænt um að þótt Matta væri orðin gleymin og við sæjumst orðið sjaldan, þá þekkti hún mig og nefndi með nafni ef hún sá mig. Nú er komið að kveðjustund og kveð ég gamla og góða vinkonu og votta öllum aðstandendum mína dýpstu samúð. Dóra G. Jónsdóttir. Pálína Matthildur Sigurðardóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MUNDHEIÐUR GUNNARSDÓTTIR, lést í faðmi fjölskyldunnar á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 6. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Lýður Jónsson Gunnhildur Lýðsdóttir Gunnar Helgi Hálfdanarson Anna Jóna Lýðsdóttir Sigurður Pálmi Sigurðsson Bryndís Lýðsdóttir Jón Axel Pétursson Jónína Lýðsdóttir Eggert B. Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SVAVAR HALLDÓR BJÖRNSSON, Strandgötu 4, Neskaupstað, lést á gjörgæslunni í Fossvogi sunnudaginn 9. janúar. Líneik Haraldsdóttir Heiða Berglind Svavarsdóttir Jón Hilmar Kárason Ásdís Fjóla Svavarsdóttir Vilberg Hafsteinn Jónsson barnabörn og langafastrákur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.