Morgunblaðið - 12.01.2022, Side 21

Morgunblaðið - 12.01.2022, Side 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022 Faxafeni 14, 108 Reykjavík www.z.is Faxafeni 14, 08 Reykjavík w .z.is Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HEYRÐIRÐU EKKI Í MÉR BANKA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hlaupa saman til styrktar verðugu málefni. EFTIR ÞVÍ SEM MAÐUR ELDIST FATTAR MAÐUR HVAÐ SKIPTIR MÁLI EINSOG … AÐ VERÐA EKKI GAMALL HVENÆR SKYLDI HEIMURINN VERÐA BETRI? STRÁKAR, VIÐ ERUM BÚIN AÐ BÆTA STERKUM KJÚKLINGA- VÆNGJUM VIÐ MATSEÐILINN! OG ÞAR KOM SVARIÐ! „ÓKEI, SKO – ÞETTA ER HEILBRIGÐA LÖPPIN.“ eins dags ferðum og upp í tíu daga ferðir. „En svo náttúrlega þegar Covid kom þá voru engir túristar lengur og ég fór að mála. Svona hefur þetta verið gegnum tíðina; maður hefur flakkað milli þessara þriggja starfa eftir því hvernig vindar hafa blásið, og ég hef gert allt þetta þrennt að undanförnu, verið málari, söngvari og leiðsögumaður. Það er skemmti- legt að geta skipt reglulega um bún- ing.“ Fjölskyldan Sambýliskona Snorra er Klara Hallgrímsdóttir, f. 19.8. 1971, kenn- ari og leiðsögukona. Þau búa í Kópa- vogi. Foreldrar Klöru eru hjónin Hallgrímur Hallgrímsson, f. 4.2. 1944, fluggagnafræðingur, og Stein- unn Jónsdóttir, f. 7.7. 1942, þroska- þjálfi. Þau búa í Hafnarfirði. Fyrri kona Snorra er Unnur María Þór- arinsdóttir, f. 30.11. 1963. Börn Snorra og Unnar eru: 1) Hekla Wium, f. 13.8. 1988, sjúkraliði, búsett í Clacton-on-Sea á Englandi Maki: Mark Woodroffe. Börn: Gabrí- el Máni Björnsson, f. 2011, Viktor Bjarki Woodroffe, f. 2017, og Vala Árný Woodroffe, f. 2020; 2 ) Vala Wium, f. 9.12. 1994, nemi, bús. í Reykjavík Maki: Bjarki Ásgeirsson; 3) Guðrún Fríða Snorradóttir Wium, 7.5. 1997, nemi, búsett í Reykjavík; 4) Kári Wium, f. 5.11. 2001, nemi. Dótt- ir Klöru og stjúpdóttir Snorra er Sara Mjöll Schneider, f. 1.10. 2002. Systkini Snorra eru Þórdís Wium, f. 4.11. 1960, viðskiptafræðingur, bú- sett í Kópavogi, Heimir Wium, f. 7.7. 1965, málari og leiðsögumaður, bú- settur í Kópavogi, og Sólveig Wium, f. 23.4. 1973, hjúkrunarfræðingur, búsett í Garðabæ. Foreldrar Snorra: Hjónin Rann- ver Hans Narfi Wium, f. 21.7. 1936, d. 29.5. 1994, málarameistari, bjó í Reykjavík alla tíð, og Svanhvít Lilja Aðalsteinsdóttir, f. 19.1. 1941, hús- móðir, búsett í Reykjavík. Snorri Wium Guðrún Árnadóttir húsfreyja í Svartárkoti og á Ásláksstöðum Snæbjörn Þórðarson bóndi í Svartárkoti í Bárðardal og á Ásláksstöðum í Kræklingahlíð Árný Snæbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík Aðalsteinn Ó. Þórarinsson trésmíðameistari í Reykjavík Svanhvít Lilja Aðalsteinsdóttir húsmóðir í Reykjavík Una Jónsdóttir húsfreyja á Blönduósi og í Reykjavík Þórarinn Bjarnason járnsmiður á Blönduósi og í Reykjavík Málhildur Þorkelsdóttir húsfreyja í Keflavík Guðlaugur S. Eyjólfsson skipasmiður í Keflavík Þorbjörg G. Guðlaugsdóttir Wium húsfreyja í Reykjavík Páll M. H.Wium málarameistari í Reykjavík Rannveig Pálsdóttir húsfreyja í Bárugerði Gissur Hans Wium bóndi í Bárugerði í Miðneshreppi, Gull. Ætt Snorra Wium Rannver Hans NarfiWium málarameistari í Reykjavík Ég hitti karlinn á Laugaveginum og spurði tíðinda. Hann svar- aði: Ég hygg þó að ekki sé lýðum ljóst og lítið sjáist á skrápnum sé endirinn sá sem enginn við bjóst að ýmislegt finnist í skápnum Ólafur Stefánsson yrkir á Boðn- armiði og kallar „Vetur í bæ“: Jörð við sólu jagast janúar í garði. Ástand ekkert lagast útsynningurinn harði. Að versla kemst ég varla, – veiru svikalævi. Víxlar vona falla vesöl búands ævi. En Hækkar himnesk sólin hænufet á degi. Sjást brátt sumarhjólin svífa um færa vegi. Von þá aftur vaknar vermist grund og hlíðar. sortans þá enginn saknar né svalrar vetrartíðar. Guðmundur Arnfinnsson yrkir undir afdráttarhætti: „Fremsti staf- ur tekinn framan af hverju orði í fyrrihluta vísu og kemur þá öll vís- an í ljós, innihaldið reynist oft tómt bull, en gæta þarf að réttri stuðla- setningu og rími“: Krakki þvælir, kreika stelpur, krangur gargar, rakki vælir, reika telpur, rangur argar. Helgi Jensson skýrir „skilgrein- ingu á nýju „starfsheiti“: Frækið starf og frekar svalt er ’fræðimannadisser’ Kann sá flest ef ekki allt enda ’besservisser’. Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir: Norðanvindur nýtur þess að nota heljaraflið sitt og haustið sendir sms inn í sálartetrið mitt. Anton Helgi Jónsson yrkir „Upp- gjörslimru dagsins“ þar sem „Geir- þrúður rifjar upp helgarferð í Eden“: Ég kallaði rósina RÓS og RÓSUNUM á hana jós því RÓSU skal kjósa og RÓSINNI hrósa uns RÓSIRNAR koma í ljós. Hörður Björgvinsson skrifar: „Úr neðstu skúffunni (þegar ég var í sveit)“: Fengu drengir kvöld og kvöld koss við engjasætur. Við buxnastrengi og brjóstahöld börðust lengi nætur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Í skápnum og vetur í bæ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.