Morgunblaðið - 28.01.2022, Side 4

Morgunblaðið - 28.01.2022, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Mögulegt er að neyðarstig á Land- spítala verði lækkað niður í hættu- stig í næstu viku. Spítalinn hefur verið á neyðarstigi frá því 28. des- ember og hefur það að miklu leyti staðið yfir vegna fjarveru starfs- manna. Í gær voru 219 starfsmenn í einangrun og er það metfjöldi síð- an faraldurinn hófst. Á annan tug starfsmanna Klíník- urinnar sem lagt hafa hönd á plóg innan Landspítala síðustu viku snúa aftur til starfa á Klíníkinni í næstu viku. Samkvæmt upplýsingum frá spít- alanum er sífellt verið að endur- skoða neyðarstigið en vonir standa til að hægt verði að aflétta því í næstu viku. Smitfjöldi hefur haldist nokkuð jafn síðustu daga og fjöldi innlagna sömuleiðis. Andlát af völdum veirunnar Alls greindust 1.567 smit innan- lands í fyrradag og var það einnig nýtt met en síðasta met var á mánudaginn er 1.558 smit greind- ust á einum degi. 14 daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100.000 íbúa er nú 4.968 og hefur það hækkað síðan á þriðjudag þegar nýgengið var 4.883. Í gær voru 33 sjúklingar á Land- spítala með Covid-19. Þar af voru 23 í einangrun með virkt smit og tíu í bataferli. Þrír voru á gjör- gæslu, tveir í öndunarvél og annar þeirra í hjarta- og lungnavél. Þá lést kona á níræðisaldri á smit- sjúkdómadeild. Hún var með veir- una en einnig alvarleg undirliggj- andi vandamál. Kynna afléttingar Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir skilaði nýju minnisblaði til Willums Þórs Þórssonar heilbrigð- isráðherra í gær. Minnisblaðið verður kynnt og rætt á ríkisstjórn- arfundi í dag. Á Alþingi í gær sagði Willum að afléttingar yrðu kynntar ásamt af- léttingaáætlun samkomutakmark- ana. Sagði ráðherrann þá áætlun vera á grundvelli upplýsinga og stöðunnar hverju sinni. Willum sagði að stjórnvöld stæðu alltaf með heilbrigðiskerfinu og spít- alanum og því þyrfti að fara með gát. Aflétta líklega neyð- arstigi á Landspítala - Metfjöldi starfsmanna í einangrun - Kynna afléttingar Fjöldi innlagðra á LSH með Covid-19 frá 1. júlí 2021 júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. 24 46 33 32 Heimild: LSH og covid.is 46 einstaklingar eru látnir 1.567ný innanlandssmit greindust sl. sólarhring 33 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,þar af þrír á gjörgæslu, tveir í öndunarvél 40 30 20 10 0 Landspítali/Þorkell Smit Mikill fjöldi starfsmanna Landspítala er í einangrun. málum var sérstaklega boðið. Í kynningunum var farið yfir þá sam- eiginlegu sýn Vestfirðinga að áherslu skyldi leggja á uppbyggingu heildstæðra atvinnusvæða á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum með þrennum jarðgöngum, Súðavíkur- göngum og göngum um Mikladal og Hálfdán auk breikkunar Breiðadals- og Botnsheiðarganga. Engin göng í samgönguáætlun Á fundinum kom fram að engin jarðgöng á Vestfjörðum væru í gild- andi samgönguáætlun og ekki í aug- sýn fyrr en eftir 2035, ef ekkert yrði að gert. Hins vegar er gert ráð fyrir ýmsum vegaframkvæmdum á Vest- fjörðum í samgönguáætlun á næstu árum. Þannig er reiknað með 20,5 milljörðum til ársins 2028. Þar af eru 7,2 milljarðar í veg um Gufudals- sveit. Vestfjarðastofa efndi til fjarfundar í gær þar sem ný jarðgönguáætlun heimamanna var kynnt og sömuleið- is samfélagsgreining KPMG. Fram kom m.a. að kostnaður við jarðgöng á Vestfjörðum til ársins 2050 gæti numið tæpum 90 milljörð- um króna, þar af væru 17 milljarðar í Súðavíkurgöng á milli Skutulsfjarð- ar og Álftafjarðar, 15 milljarðar í göng undir Kleifaheiði, 15 milljarðar í göng undir Hálfdán og 13 milljarð- ar í jarðgöng undir Dynjandisheiði. Fundurinn í gær var öllum opinn en öllum sveitarstjórnarmönnum á Vestfjörðum, þingmönnum og emb- ættismönnum í ráðuneytum og stofnunum sem tengjast samgöngu- Göng á Vestfjörðum til 2050 gætu kostað 90 milljarða - Vestfjarðastofa kynnti nýja jarðgangaáætlun á fjarfundi í gær Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Vestfirðir Heimamenn kalla eftir meiri jarðgangaframkvæmdum. Hafísspöng var tæpar tíu sjómílur (18,5 kílómetra) vestnorðvestur af Ryt í gærmorgun. Mjög gisinn hafís var í kringum hana en talsvert lengra var í þéttan ís, að sögn Ingi- bjargar Jónsdóttur, dósents í land- fræði við Háskóla Íslands. Spáð var suðvestlægum áttum á þessum slóðum til hádegis í dag þeg- ar vindur á að snúast til norðlægrar áttar. Aftur er spáð suðvestlægri átt á svæðinu upp úr hádegi á morgun, laugardag, og svo snýst vindurinn meira til vestlægrar áttar á sunnu- dag samkvæmt veðurspám. Ingi- björg telur líklegast að hafísinn verði þarna á þvælingi fram og til baka næstu daga en stefni ekki upp að landi, standist veðurspárnar. „Það eru þokkalega góð skilyrði í hafinu fyrir ísmyndun. Um leið og hann fær frið þá myndast meiri ís,“ sagði Ingibjörg. Tunga af köldum sjó myndast oft norðan við Horn og fyrir rúmri viku var þar töluverð ný- myndun íss. En þegar er mikið rok er ekkert næði í sjónum til ísmynd- unar. gudni@mbl.is Hafísmilli Íslands ogGrænlands Ísjaðarinn var 10 sjómílur VNV af Rit kl. 08.30 í gær Ísjaðar Þéttur ís Gisinn ís Mjög gisinn ís Hafísspöng Stakur ísjaki Staðan kl. 11.40 í gær Unnið eftir radarmyndum frá Sentinel-1 gervitunglinu Kort: Veðurstofa Íslands Góð skilyrði fyrir nýmyndun hafíss Alþingi samþykkti í gær þings- ályktunartillögu Katrínar Jakobs- dóttur forsætisráðherra um breytta skipan ráðuneyta í Stjórn- arráði Íslands. Tillagan var sam- þykkt með 34 atkvæðum gegn sex en 15 greiddu ekki atkvæði. Frá- vísunartillaga Eyjólfs Ármanns- sonar í Flokki fólksins var felld með 34 atkvæðum gegn 10. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu tillöguna og sögðu það býsna skrítið að verja fjármunum í þetta mál en forsætisráðherra sagði ríkisstjórnina þora að gera breytingar. Bergþór Ólason, þingmaður Mið- flokksins, spurði hvort ekki væri best að fara vel með skattfé og sagði að kosningasigur Framsókn- arflokksins ætlaði að reynast þjóð- inni dýr. Þessar breytingar væru eingöngu gerðar til að stilla af valdahlutföllin innan ríkisstjórnar- innar. Fjárfest í Framsókn Eva Sjöfn Helgadóttir, þingmað- ur Pírata, spurði hver forgangsröð- unin væri. Ekki væri hægt að nið- urgreiða sálfræðiþjónustu en hægt væri að bæta við ráðuneyti. Þá sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Við- reisnar, að þessar breytingar fælu ekki í sér að fjárfest væri í fólki heldur að fjárfest væri í Framsókn. Samþykktu breytta skipan - Fjölgun ráðuneyta umdeild en tillaga forsætisráðherra samþykkt - Kosningasigur Framsóknar sagður vera dýr Morgunblaðið/Eggert Alþingi Þingsályktunartillaga Katr- ínar Jakobsdóttur var samþykkt. „Við sjáum um það sem snýr að okk- ur og okkar framkvæmd hjá Ríkisút- varpinu. Það á allt að vera í samræmi við ströngustu reglur og við í raun- inni göngum oftar en ekki lengra, bara til þess að tryggja öryggi í okk- ar starfsemi,“ segir Stefán Eiríksson útvarpsstjóri. Erfiðlega hefur gengið að fá svör við spurningum um afhendingu Ís- lensku bókmenntaverðlaunanna á Bessastöðum á þriðjudagskvöld. Eins og komið hefur fram í Morgun- blaðinu og á mbl.is var fjöldi gesta í salnum vel yfir því sem samkomu- takmarkanir leyfa og gestir báru ekki grímur meðan á afhendingu verðlaunanna stóð líkt og sjá mátti í beinni útsendingu Ríkisútvarpsins. Stefán Eiríksson sagði í Morgun- blaðinu á fimmtudag að RÚV væri með sömu undanþágu og sviðslistir og að ekki hefði verið sótt um sér- staka undanþágu fyrir þennan eina viðburð. Morgunblaðið og mbl.is hafa ítrekað reynt að fá útskýringar á umræddri undanþágu hjá heil- brigðisráðuneytinu en engin svör hafa fengist þaðan í vikunni. Þær upplýsingar fengust frá almanna- vörnum að samkvæmt gildandi tak- mörkunum ættu allir gestir að nota andlitsgrímu á atburðum sem þess- um. Stefán segir aðspurður að allt starfsfólk RÚV á Bessastöðum hafi verið með grímu og bætir við að framkvæmd verðlaunaafhendingar- innar hafi verið á höndum Félags ís- lenskra bókaútgefenda. „Ég geri engar athugasemdir við útskýringar framkvæmdastjóra félagsins sem stendur fyrir þessum viðburði.“ Skýrt að gestir áttu að bera grímur - Engar upplýsingar fást frá ráðuneyti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.